Fréttablaðið - 22.04.2010, Síða 73

Fréttablaðið - 22.04.2010, Síða 73
FIMMTUDAGUR 22. apríl 2010 Kvikmyndir ★★★ The Messenger Leikstjóri: Oren Moverman Aðalhlutverk: Ben Foster, Woody Harrelson, Samantha Morton. Sýnd á Bíódögum Græna ljóssins. Maður hefur einhvern veginn aldrei pælt í því en hermennska gengur víst út á fleira en að drepa og deyja. Þannig þurfa til dæmis einhverjir óheppnir hermenn að sinna því niðurdrepandi hlutverki að fara uppádressaðir heim til nán- ustu aðstandenda þeirra sem far- ast við skyldustörf og tilkynna andlátið. The Messenger segir frá tveim- ur slíkum hermönnum. Sá frábæri leikari Woody Harrelson leikur annan þeirra. Hann er búinn að vera fastur í þessu starfi boðbera válegra tíðinda býsna lengi og tekur að sér að þjálfa upp nýliða sem Ben Foster leikur. Woody er eldri en ekki jafn stríðsreyndur. Hann var því miður upp á sitt besta þegar Bandaríkja- menn fóru í auðvelda stríðsleið- angra til Granada. Hann hefur því ekki kynnst lífsháska stríðs svo heitið geti. Hinn er ungur og ákaf- ur, hetja úr geðbiluninni í Írak sem finnst þetta verkefni vera langt fyrir neðan sína virðingu. Þessir ólíku menn bindast þó óhjákvæmilega vinaböndum í ömurlegum leiðöngrum sínum og það er eitthvað pínu sjúkt en sætt við samband þeirra í þessari mannlegu og drungalegu mynd þar sem þó leynist alltaf eitthvert ljós í myrkrinu. Woody er kaldur og tilfinninga- krepptur óvirkur alki sem hefur brynjað sig fyrir sorg viðskipta- vina sinna og fer tilfinningalaust með möntruna um að Sámi frænda þyki leitt að einhver hafi dáið frá föður, móður, konu eða barni í til- gangslausu stríðinu í Írak. Tilfinningalíf unga mannsins er í öllu meira uppnámi og hann getur ekki sætt sig við aðferðir leiðbein- andans og gengur meira að segja svo langt að vingast við ekkju her- manns. Þetta setur hann vitaskuld í smá siðferðiskreppu en auðvitað gengur honum gott eitt til. The Messenger er ekkert sér- staklega amerísk mynd og því ekki að undra að hún rati í bíó fyrir til- stilli hins góða græna ljóss. Það er fengur að þessari mynd og í henni leynist von og smá „feelgood“ þótt nístandi sársauki syrgjenda nísti í hjartað í átakanlegum og alveg hreint mögnuðum atriðum. Harrelson er auðvitað mik- ill meistari, jafn vígur á grín og alvöru, og sýnir hér hvað í honum býr á síðarnefnda sviðinu. Fost- er skilar sínu einnig með sóma og hinn undursamlegi leikari Steve Buscemi lyftir svo tveimur atrið- um upp í hæstu hæðir í litlu auka- hlutverki. Þórarinn Þórarinsson Niðurstaða: Falleg, átakanleg og ósköp mannleg mynd um tvær tættar sálir í bandaríska hernum sem mæta í einkennisbúningum heim til fólks sem misst hefur ástvini í stríði. Boðberar dauðans MAGNAÐUR KAPPI Woody Harrelson er traustur í hlutverki sínu sem kaldur og tilfinningakrepptur óvirkur alki í The Messenger sem sýnd er á Bíódögum Græna ljóssins. VILTU VINNA EINTAK? 10. HVERVINNUR! FULLT AF AUKAVINNINGUM TÖLVULEIKIR • DVD MYNDIR • GOS OG MARGT FLEIRA! SENDU SMS SKEYTIÐ EST AVA Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ EINTAK! FRÁ JAMES CAMERON KEMUR STÆRSTA MYND ALLRA TÍMA LENDIR Í ELKO Á DVD OG BLU-RAY HD 21. APRÍL Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 199 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.