Fréttablaðið - 30.04.2010, Síða 28
30. apríl 2010 FÖSTUDAGUR4
Stærsta pitsa heims var bökuð í Norwood í Suður-Afríku árið 1990. Hún
var 100 fet, eða um 30 metrar í þvermál.
Flestar pitsur eru borðaðar á laugardögum.
Vinsælasta áleggið í Bandaríkjunum er pepperoni.
Óvinsælasta áleggið í Bandaríkjunum eru ansjósur.
Bandaríkjamenn borða um 40 hektara af pitsu á dag.
Á sextándu öld sannfærði Maria Carolina, drottning af Napolí, eiginmann
sinn, Ferdinand IV., um að baka hinn þjóðlega rétt í konunglegum ofni.
Árið 1889 bjó Raffaele Esposito, frægur pitsukokkur, til pitsu fyrir Margar-
ítu drottningu, með tómötum, basil og osti, til heiðurs ítalska fánanum.
Sú pitsa er enn í dag grunnur allra pitsa.
Fyrir utan Ítalíu er líklega hægt að fá besta ítalska
matinn í Argentínu en yfir sextíu prósent
íbúa Búenos Aíres eru af ítölskum
uppruna.
Flest börn á aldrinum þriggja
til ellefu ára velja pitsu fram
yfir flest annað samkvæmt
Gallup-könnun.
Sniðugar staðreyndir um pitsuna
PITSAN HEFUR UNNIÐ SÉR STÓRAN SESS Í HJÖRTUM MANNA. HÉR ERU NOKKR-
AR STAÐREYNDIR UM ÞENNAN ÁSTSÆLA MAT.
Pitsan hefur fengið nokkrar
útfærslur, til dæmis calzone og
stromboli.
Ein frægasta útfærsla pitsunnar
er calzone eða hálfmáninn. Í raun
er það pitsa sem hefur verið brotin
saman til að mynda hálfmána og er
fyllt af áleggi. Hefðbundin ítölsk
calzone er með tómötum og mozz-
arella-osti en Bandaríkjamenn
setja einnig skinku, spægipylsu og
grænmeti. Yfirleitt er borin fram
marinarasósa með hálfmánanum
en ofan á hálfmánann er oft sett
olía með hvítlauk og steinselju.
Hálfmánar á stærð við samlok-
ur eru vinsælir á Ítalíu og oft sem
fólk kaupir sér slíkt í hádeginu og
borðar jafnvel á hlaupum.
Önnur pitsuútfærsla kallast
stromboli en það er deiglengja sem
rúllað er upp og inniheldur ýmiss
konar álegg.
Hálfmáninn góði
Calzone-hálfmáninn er fylltur með
ýmsum áleggstegundum.
Pitsur í mismunandi
löndum taka mið af
þeirri menningu sem
þar ríkir. Til dæmis
eru pitsur í Indlandi
oft mun sterkari
en á Vesturlöndum
og boðið er upp á
pitsur með tandoori-
kjúklingi.
wikipedia.org
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-1
6
0
8
Uppskriftin að föstudags-
pizzunni er á gottimatinn.is
rKo nax-hveiti er framleitt með mismunandi baksturseiginleika
rP óteinríkt hveiti hentar t.d. vel í pizzur og brauð en hveiti sem
ni nheldur minna prótein hentar betur í kökur og kex.
Kornax framleiðir 2 gerðir af hveiti ásamt heilhveiti og rúgmjöli.
Á heimasíðu Kornax, www.kornax.is,
má finna ýmsan fróðleik, hollráð og uppskriftir
sem falla vel að bakstri úr Kornax-hveiti.
Veldu íslenska
gæðaframleiðslu!
Ferskasta hveitiÐ!
- alltaf nýmalaÐ
hí uga sem byggja á próteininnihaldi hveitisins.
Kornax hveitimylla | Korngörðum 11 - 104 Reykjavík | Sími: 540 8700 | kornax@kornax.is | www.kornax.is