Fréttablaðið - 30.04.2010, Page 38
6 •
Addi Intro, eða Intro
Beatz, liðsmaður hiphop-
sveitarinnar Forgotten
Lores, er með nóg af
tækjum og tólum í hljóð-
verinu sínu. Poppið kíkti í
heimsókn.
„Einu sinni átti ég ógeðslega mikið
af græjum en núna á ég eiginlega
bara akkúrat það sem ég þarf, sem
er algjör snilld. Þá þarf maður ekki að
hugsa um of margar græjur,“ segir
Addi Intro, sem heitir réttu nafni
Ársæll Þór Ingvarsson. „Ég er með
litla stúdíóaðstöðu heima hjá mér.
Hún er til bráðabirgða þangað til ég
smíða mitt eigið stúdíó.“
Fyrstu græjurnar sem Addi keypti
sér voru plötusnúðagræjur, enda hóf
hann tónlistarferil sinn sem plötu-
snúður. „Síðan vaknar áhugi út frá
því að gera mína eigin tónlist. Ég
keypti mér AKAI MPC 2000 XL
og notaði hann á hverjum einasta
degi frá 1999 til 2008. Þá þurfti ég
að losa mig við hann því hann var
orðinn gamall og takkarnir lúnir.
Þannig að ég uppfærði settið upp
í AKAI MPC 5000 sem er akkúrat
„all in one“ græja, sem er snilld fyrir
tónlistarmenn eins og mig sem elska
enn þá að vinna með „hardware“ og
eru ekki alveg komnir inn í að henda
öllu „hardware“ fyrir „software“. Allar
smágræjur sem ég hef verið að sanka
að mér eru inni í þessari græju. Það
má segja að ég nördi mjög mikið í
kringum hana,“ segir Addi.
Sumar græjur hefur hann keypt
á eBay, þar á meðal trommuheila
frá árinu 1988. „Þetta var átta bita
trommusampler og þú gast aðeins
samplað fimm sekúndur inn í einu,
sem gerði náttúrulega tónlistarfram-
leiðsluna dálítið einfalda,“ segir hann.
Í framhaldinu keypti hann aðra, enn
þá betri græju af Jóni Skugga sem
hafði lengra sampla-minni og hann
lítur á sem Cadillakkinn sinn. „Hún er
metin á tvö þúsund dollara á eBay en
ég tími ekki selja hana því hún hefur
svo mikið tilfinningalegt gildi.“
MEÐ CADILLAC
Í HLJÓÐVERINU
INNAN UM GRÆJURNAR Fyrstu græjurnar sem Addi Intro keypti voru plötusnúðagræjur. Upp frá því vaknaði áhugi á að gera eigin
tónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
8
9
7
6
5
3
2
1
4
1. „AKAI MPC 5000, „all in one“-græjan. Sequenser, sampler,
8 rása multitracker, þriggja-„oscillator virtual analog syntha-
vél“ með innbyggðum „arpeggiator“ og 80gb hörðum diski.
Í rauninni það eina sem ég virkilega þarf. Hin tækin eru alveg
fín en ég gæti gert allt á græjuna staka, með innstungu og
heyrnartólum.“
2. „DJ-settið mitt, 2 x technics 1210 plötuspilarar og Rane
TTM 57SL dj mixer. Byrjaði 12 ára að fikta við dj-mennsku og
má segja að ég hafi byrjað í tónlist út frá dj-græjunum mínum
– gæti ekki verið án þeirra!“
3. „Protools-settið mitt, Pro Tools 8 LE með DIGI003 Mixer.
Tek allt upp í protools. Klippi, mixa og mastera og er frekar
snöggur að því þó ég segi sjálfur frá.“
4. „Græja sem ég keypti 2006 af Jóni Skugga sem ég lít á
eins og Cadillac. EMU SP-1200, framleidd ´86-´87 sem var
mikið notuð á tíunda áratugnum í hiphop-senunni. „Mega
crunchy 8 bita sound“ en aðeins 10 sekúndna sample-minni
svo maður þarf að vera frekar snjall til að gera heilt lag á
hana. Nota hana reyndar ekki rassgat núna en tími alls ekki
að selja hana.“
5. Tölvuskjárinn: 24 tommu iMac.
6. Hátalarnir: M Audio BX8A.
7. Kötturinn Jimi: „Hann hefur mikið dálæti á því að kroppa
í græjurnar mínar. Ég er oft með hann í kringum mig þegar
ég er að gera búta. Hann á það til að leggjast á græjuna sem
hann er ofan á og reyna að sofna. Við erum svona svipað
„chillaðar“ persónur.“
8. Numark PT01 Portable Turntable-ferðaplötuspilari.
9. Mackie, 12 rása hljóðmixer.
DÓTAKASSINN