Fréttablaðið - 30.04.2010, Qupperneq 54
30. apríl 2010 FÖSTUDAGUR6
Fjölskylduhátíð Fríkirkjunnar í
Hafnarfirði verður haldin í Kald-
árseli á sunnudag.
„Hátíðin er haldin í tuttugasta
sinn sem vorhátíð og alltaf fjöl-
menni sem mætir til að skemmta
sér saman í stórkostlegri náttúr-
unni í Kaldárseli,“ segir Jóhann
Guðni Reynisson formaður og
bætir við að dagskráin nú verði
fjölbreytt að venju.
„Hljómsveit kirkjunnar og
starfsfólk sér um að skemmta
gestum og vonir standa til þess
að hestamenn mæti á staðinn og
bjóði börnunum á hestbak. Á vor-
hátíðinni er ávallt séð um að full-
orðna fólkið finni sitthvað við
sitt hæfi og nú ætlar Dagur Jóns-
son vatnsveitustjóri að bjóða upp
á klukkustundar gönguferð og
kynningu á vatnsbólum Hafnar-
fjarðar, enda dásamlegt að ganga
um nágrenni Kaldársels, með-
fram skógræktinni, um hraunið
og skoða hellana í kring,“ segir
Jóhann um dagskrána sem hefst
klukkan 11.
„Svo er vitaskuld ómissandi
að grilla pulsur fyrir börnin á
vorhátíðinni og kaffihlaðborð
verður í Kaldárseli. Ég hlakka
mikið til því alltaf myndast ljúf
og skemmtileg stemming, og
alveg óborganlegt að heyra börn-
in taka undir með hljómsveitinni
svo undir tekur í Helgafelli.“
Rútuferð verður frá kirkjunni
klukkan 10.30 fyrir þá sem ekki
koma á eigin bílum og öllum vel-
komið að gera sér glaðan dag á
fögrum stað. - þlg
Vori verður fagnað
Frá fjölskylduhátíð Fríkirkjunnar í Hafn-
arfirði við Kaldársel í fyrra.
MYND/FJARÐARPÓSTURINN - GUÐNI GÍSLASON
Kerrupúl sf. fer af stað með ný
námskeið á morgun í Laugar-
dalnum sem kallast Leikjapúl.
Leikjapúl er leikjanámskeið fyrir
börn á skólaaldri og foreldra
þeirra. Markmiðið er að auka
samverustundir foreldra og barna
þeirra, og auka þannig leikgleðina
og hreyfinguna hjá foreldrum og
börnum. Fátt er skemmtilegra en
að leika sér með barninu sínu úti í
góðu veðri, rifja upp gömlu góðu
leikina sem voru vinsælir þegar
við vorum lítil, læra nokkra nýja
leiki og finna barnið í sjálfum sér
í leiðinni.
Námskeiðin verða kennd þrjá
laugardagsmorgna á tímabilinu 1.
maí-15. maí klukkan 10.30 í Laug-
ardalnum. Námskeiðsgjaldið er
3.990 krónur fyrir eitt foreldri
með eitt til tvö börn með sér.
Hægt er að skrá sig á kerrupul@
kerrupul.is.
Leikjapúl hefst
í Laugardalnum
Kerrupúl sf. hefur séð um skemmtilega hreyfingu fyrir foreldra og byrjar nú með
leikjanámskeið fyrir börn á skólaaldri og foreldra þeirra.
Sæluvika Skagafjarðar nær
hámarki um helgina og lýkur á
sunnudag.
Margt er í boði og hér verður
fátt eitt nefnt:
Léttsveit Reykjavíkur syngur bar-
áttu- og bjartsýnisljóð í Hóladóm-
kirkju í kvöld klukkan 20.
Á laugardaginn verður kóramót í
Menningarhúsinu Miðgarði klukk-
an 20.30. Þar syngja Rökkurkórinn
og Karlakórinn Heimir en gesta-
kórar verða Söngsveit Hveragerðis
og Karlakór Hreppamanna.
Stéttarfélögin í Skagafirði bjóða
upp á hátíðardagskrá í tilefni af 1.
maí og Æskan og hesturinn verður
haldin í reiðhöllinni Svaðastöðum
klukkan 13 og 16.30.
Á sunnudaginn verða sýndar
tvær myndir Friðriks Þórs í Menn-
ingarhúsinu Miðgarði, Englar
alheimsins klukkan 14 og Mamma
Gógó klukkan 20, en aðgangur er
ókeypis.
Þetta er aðeins brot af því sem
verður í boði en benda má á
heimasíðu Sæluvikunnar, www.
saeluvika.is, til frekari upplýsinga.
Sæluviku lýkur
MARGT SKEMMTILEGT ER Í BOÐI Í
SÆLUVIKU Í SKAGAFIRÐI SEM LÝKUR
Á SUNNUDAGINN.
Kvikmyndin Mamma Gógó verður
sýnd í Menningarhúsinu Miðgarði á
sunnudag.
Sól, sól skín á mig
Öll gleraugu á 1500 kr
Ný sending
Skeifunni 11 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 • Fax: 517-6465
www.belladonna.is
Flott sumarföt
fyrir fl ottar konur
Stærðir 40–60
20% afsláttur
af öllum vörum
í dag
Lokað 1. maí
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10-18, laugard. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.isVertu vinur
Gerð: 55K
Stærðir: 36 - 41
Verð: 13.950.-
Gerð: 5022
Stærðir: 36 - 42
Verð: 13.950.-
Góð breidd
Mjúkir og þægilegir
götuskór fyrir dömur.
Laugaveg 54,
sími: 552 5201
HELGARTILBOÐ
Leðurjakkar
áður 24.990
Nú 14.990
Skokkar
áður 16.990
Nú 7.990
Sumarfrakkar
áður 14.990
Nú 7.990
Ath
opið
laugardag
1. maí
Sumarklútarnir
komnir
Frá 2500 kr
Mikið úrval
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447
Föstudaga