Fréttablaðið - 30.04.2010, Blaðsíða 60
28 30. apríl 2010 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Unglingafélagið Adrenalín gegn
rasisma hefur að markmiði að vinna að
víðsýni og samstöðu unglinga af ólík-
um uppruna og uppræta fordóma. Tíu
ár eru nú liðin síðan Laugarneskirkja,
Austurbæjarskóli og Laugalækjarskóli
tóku sig saman og stofnuðu félagið og
segir Bjarni Karlsson, sóknarprestur
Laugarneskirkju, starf þess hafa gefið
góða raun.
„Reynslan sýnir að krakkar sem
hafa tekið þátt í starfinu okkar standa
sig marktækt betur í framhaldsskól-
um og hafa fundið sig betur í unglinga-
samfélaginu. En það hefur því miður
verið vandamál að unglingar sem hafa
flutt til landsins hafa tilhneigingu til að
flosna upp úr framhaldsskólum,“ bendir
séra Bjarni á, en hann var á sínum tíma
hvatamaðurinn að stofnun félagsins og
hefur nú yfirumsjón með starfi þess.
En hvernig gengur starfsemin fyrir
sig? „Við fáum til okkar nemendur úr
8., 9. og 10. bekkjum Laugalækjarskóla
og innflytjendadeild Austurbæjar-
skóla. Síðan taka allir þátt í spennandi
viðburðum sem koma adrenalínflæð-
inu af stað, svo sem sjósundi, fjallgöng-
um, hellaferðum og fleiru. Krakkarn-
ir hjálpast að við að ná sameiginlegu
markmiði og læra þannig að treysta
hverjir öðrum, sem verður oft kveikj-
an að vináttu. Áhersla er líka lögð á að
bera virðingu fyrir eigin bakgrunni og
annarra,“ segir séra Bjarni og bætir
við að þar sem vinátta sé ferðalag sem
kosti bæði kjark og forvitni sé hefð
fyrir því að fara saman í ferðalög.
Síðast héldu 34 hressir krakkar og
nokkrir fullorðnir með séra Bjarna í
fararbroddi í könnunarferð í Gullborg-
arhelli í Hnappadal á dögunum. „Þetta
var ögrandi og töluverð mannraun að
komast í gegnum hellinn,“ rifjar prest-
urinn upp, en hópurinn gisti í Stykkis-
hólmi um nóttina. Farið var með Baldri
út í Flatey á Breiðafirði daginn eftir
og gist í húsinu Vogi. „Þar ræddum við
allt milli himins og jarðar og komumst
meðal annars að því að þrátt fyrir ólíkt
þjóðerni og trúarbrögð værum við öll
manneskjur og með því að tala saman
byggðist upp vinátta til að treysta
öðrum. Við fögnum því fjölbreytileik-
anum og vinnum gegn fordómum í
eigin hjarta.“
Séra Bjarni segir ferðina gott
dæmi um hvernig félagið vinnur að
því að auka víðsýni unglinga sem eru
fæddir og uppaldir hérlendis ásamt
því hjálpa aðfluttum unglingum
betur að fóta sig í íslensku samfé-
lagi. „Adrenalín gegn rasisma er lif-
andi sönnun þess að fjölbreytileiki er
flottur og áhugaverður.“
roald@frettabladid.is
UNGLINGAFÉLAGIÐ ADRENALÍN GEGN RASISMA: Á TÍU ÁRA AFMÆLI
Fjölbreytileikinn er flottur
UNGIR ELDHUGAR „Þeir eru náttúrulega dásamlegir, litfríðir og fjölbreyttir og fullir af jákvæðri
orku,“ segir séra Bjarni Karlsson um hressa krakka sem lögðu af stað í æsispennandi ferð út í
Flatey á Breiðafirði á dögunum undir formerkjum Adrenalíns með það að leiðarljósi að auka
víðsýni og uppræta fordóma. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LARS VON TRIER
FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1956.
„Í sannleika sagt óttast ég
allt í lífinu, nema kvikmynda-
gerð.“
Lars von Trier er danskur kvik-
myndaleikstjóri og einn upp-
hafsmaður Dogme 95-hreyfing-
arinnar í kvikmyndagerð. Meðal
mynda hans má nefna Break-
ing the Waves og Dancer in the
Dark, en söngkonan Björk Guð-
mundsdóttir fór með aðalhlut-
verkið í þeirri síðarnefndu.
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks tók við völdum á
þessum degi árið 1990. Davíð
Oddsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, varð forsætisráðherra,
en Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins, utanrík-
isráðherra.
Forsvarsmenn flokkanna héldu
því fram að stjórnin þyrfti að berjast við fortíðarvanda, sem kæmi meðal
annars fram í hallarekstri á ríkissjóði, tómum sjóðum vegna mislukk-
aðra fjárfestinga í loðdýrarækt og fiskeldi og yfirvofandi verðbólgu, sem
henni tókst að halda niðri. Í tíð stjórnar gerðist Ísland aðili að Evrópska
efnahagssvæðinu (EES) og ríkisstjórnin hóf sölu á ríkisfyrirtækjum. Þá
varð Ísland fyrst ríkja til að viðurkenna á ný sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna
Eistlands, Lettlands og Litháens eftir hrun Sovétríkjanna. Viðeyjarstjórnin
starfaði allt til ársins 1995 þegar Davíð sleit samstarfinu og myndaði rík-
isstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Sjá www.wikipedia.org.
ÞETTA GERÐIST: 30. APRÍL 1990
Viðeyjarstjórn tekur við völdum
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Theodóra Guðnadóttir
frá Höllustöðum, Reykhólahreppi,
lést á Dvalarheimilinu Barmahlíð Reykhólum,
miðvikudaginn 28. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristrún Samúelsdóttir Karl I. Karlsson
Jónas Samúelsson Bergljót Bjarnadóttir
Þorgeir Samúelsson
Ingvar Samúelsson
Björn Samúelsson Ágústa Bragadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra er auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Hennings Kr.
Kjartanssonar,
Aðalgötu 5, Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hjúkrunarheimilinu
Garðvangi Garði, fyrir einstaklega góða umönnun og
hlýtt viðmót.
Jónína Ingólfsdóttir
Inga María Henningsdóttir Ólafur Sigurjónsson
Bjarney Sigríður Snævarsdóttir Bjarni Friðrik
Jóhannesson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Erlingur Hansson,
Fannborg 5, Kópavogi,
lést fimmtudaginn 22. apríl. Útför hans fer fram frá
Hjallakirkju þriðjudaginn 4. maí kl. 15.00. Blóm og
kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hans er góðfúslega bent á líknarstofnanir.
Alfreð Svavar Erlingsson Guðrún Sigurðardóttir
Búi Ingvar Erlingsson Anna Gunnhildur Jónsdóttir
Hanna Erlingsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Ólafur Friðrik
Ögmundsson,
til heimilis að Grænumörk 5, Selfossi,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands þann
20. apríl síðastliðinn verður jarðsunginn frá
Víkurkirkju laugardaginn 1. maí kl. 14.00.
Ögmundur Ólafsson Helga Halldórsdóttir
Alda Guðlaug Ólafsdóttir
Lilja Guðrún Ólafsdóttir Björn Friðriksson
Erna Ólafsdóttir Eyjólfur Sigurjónsson
Guðlaugur Jón Ólafsson Angela Rós Sveinbjörnsdóttir
Baldur Ólafsson Kristín Erna Leifsdóttir
Halla Ólafsdóttir Guðni Einarsson
Jón Geir Ólafsson Ólöf Ragna Ólafsdóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir hlýjar kveðjur
og vinarhug vegna andláts og útfarar
eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
Jóns Böðvarssonar,
fyrrverandi skólameistara.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Landspítalanum
í Fossvogi, starfsfólks heimahjúkrunar og á
Hjúkrunarheimilinu Eir.
Guðrún Erla Björgvinsdóttir
Björgvin Jónsson Sigríður Dóra Magnúsdóttir
Böðvar Jónsson Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir
Sigríður Jónsdóttir
Ásthildur Jónsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Óskar Valdimarsson
vélstjóri, síðast til heimilis að
Hrafnistu í Hafnarfirði,
andaðist 21. apríl 2010. Útför hans hefur farið fram
í kyrrþey.
Sigríður Óskarsdóttir Eiríkur Skarphéðinsson
Þóra Óskarsdóttir Olav Ballisager
Jón Óskarsson Sigdís Sigmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.