Fréttablaðið - 30.04.2010, Page 68
36 30. apríl 2010 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Þolir ekki Cameron
ENGIR KÆRLEIKAR Kate Hudson ber engan
hlýhug til leikkonunnar Cameron Diaz.
Leikkonan Anna Svava Knútsdóttir frumsýnir
einleikinn Dagbók Önnu Knúts – Helförin mín á
Rosenberg á sunnudag. Anna Svava samdi verkið
ásamt leikstjóranum Gunnari Birni Guðmunds-
syni og er það að hluta til unnið upp úr gömlum
dagbókarfærslum Önnu Svövu. Að sögn leikkon-
unnar er verkið eins konar sambland af einleik og
uppistandi, en hún stendur ein á sviðinu og segir
frá unglingsárum Önnu Knúts fyrir gesti sem eiga
eftir að engjast um í pínlegum hlátri.
„Verkið fjallar um unglingsárin sem voru svo
vandræðaleg fyrir marga. Það er kaldhæðið og
brandarinn er kannski svolítið pínlegur enda voru
þessi ár mikil helför fyrir marga. Persónunni
Önnu Knúts líður augljóslega mjög illa og gerir
hvað sem er til að passa inn í hópinn en það mis-
heppnast alltaf,“ segir Anna Svava. Aðspurð segist
hún kvíða því að þurfa að standa ein á sviðinu og
er þetta í fyrsta sinn sem hún sýnir slíkan einleik.
„Það verður hræðilega erfitt að þurfa að standa
þarna einn, en okkur fannst henta verkinu best að
taka burt búninga, leikmynd og aðra karaktera og
setja það frekar upp í þessu formi. En ég hlakka
líka mikið til að sýna verkið,“ segir hún.
Að sögn Önnu Svövu var verkið samið fyrir
tveimur árum en bæði hún og Gunnar Björn voru
of upptekin til að geta sett það á svið fyrr en nú.
„Við ákváðum fyrir jól að ljúka þessu bara af.
Verkið verður frumsýnt núna á sunnudag og svo
eigum við tvö önnur kvöld bókuð á Rosenberg
seinna til að endurtaka leikinn ef vel gengur.“
Sýningin hefst klukkan 21.00 og kostar 1.000
krónur inn. - sm
Pínlegar minningar unglings
PÍNLEG ÁR Anna Svava Knútsdóttir sýnir verkið Helför mín
– Dagbók Önnu Knúts sem fjallar um pínleg unglingsár ungrar
stúlku.
> FANGAKLEFAR
ÖRUGGIR STAÐIR
Leikarinn Robert Downey
Jr. sagði í nýlegu viðtali
að honum hafi þótt hann
mjög öruggur þegar hann
dvaldi í fangelsi. „Þegar
hurðin lokast á eftir þér,
þá ertu öruggur. Þá er
ekkert sem getur gert þér
mein, svo lengi sem klefa-
nautur þinn er í lagi.“
Hjartalæknirinn Helgi Júlíus Óskarsson
hefur gefið út sína fyrstu plötu, Sun for a
Lifetime. Hann hefur starfað í Bandaríkj-
unum síðan hann útskrifaðist þaðan árið
1993 en starfar nú einnig á Íslandi.
„Þetta hefur verið mín afslöppunar-
aðferð eftir langan vinnudag í gegnum
árin sem læknir,“ segir Helgi Júlíus um
tónlistina. Hann spilar bæði á gítar og
hljómborð og hefur verið duglegur við að
semja lög í gegnum árin. Hann segist eiga
heilmikið efni á lager og stefnir á að klára
aðra plötu á þessu ári.
Á Sun for a Lifetime spilar Helgi Júlíus
bæði djass og þjóðlagatónlist og er útkom-
an afar þægileg áheyrnar. Syngur hann
bæði á ensku og íslensku. Honum til halds
og trausts á plötunni var tónlistarmaður-
inn Svavar Knútur sem hann kynntist
í gegnum KK. „Ég sendi honum tölvu-
póst og spurði hvort hann myndi nenna
að hlusta á nokkur lög sem ég hafði tekið
upp. Hann var mjög jákvæður og stappaði
svolítið stálinu í mann,“ segir Helgi um
KK. „Það var óskaplega skemmtilegt að
vinna með Svavari og ég geri ráð fyrir því
að hann vinni með mér á næstu plötu.“
Helgi er einn fjölmargra lækna sem
sinna tónlist í frístundum sínum. „Ein-
hvern tímann var mér sagt að það sé mjög
há prósenta. Allir hafa sína leið til að
slappa af og dreifa huganum. Að glamra
á gítarinn, spila á píanó og söngla með
hefur verið mín aðferð.“
Sun for a Lifetime er fáanleg í 12 tónum
og Smekkleysu og er væntanleg í fleiri
verslanir á næstunni. - fb
Hjartalæknir með sólóplötu
HELGI JÚLÍUS ÓSKARSSON Fyrsta plata hjarta-
læknisins Helga Júlíusar, Sun for a Lifetime, er
komin út. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Merkileg tímamót urðu í
sögu Sjónvarpsins í gær-
kvöldi þegar sjónvarps-
áhorfendum var ekki boðið
gott kvöld af þulu heldur
andlitslausri Jóhönnu Vig-
dísi Arnardóttur og skjá-
mynd. Páll Magnússon
vonar að áhorfendur hafi
ekki fengið sjokk.
Margrét Rós Gunnarsdóttir á
síðustu þuluvaktina en uppsagn-
arfrestur sjónvarpsþulna RÚV
rennur út í dag. Ekki er þó víst
að sjónvarpsáhorfendur fái að sjá
Margréti því nýtt dagskrárforrit
var keyrt í gærkvöldi. „Þetta eru
auðvitað blendnar tilfinningar, að
vera á síðustu þuluvaktinni og vita
ekki einu sinni hvort maður kemur
í mynd eða ekki,“ segir Margrét
Rós í samtali við Fréttablaðið.
„Maður er kannski bara búin með
sína síðustu dagskrárkynningu,“
bætir hún við en Margrét hefur
verið þula hjá Sjónvarpinu samtals
í fjögur ár, með hléum þó. „Ætli
ég sé ekki búin að vera samfleytt
núna í tvö ár,“ segir Margrét sem
trúir því að áhorfendur eigi eftir
að sakna þulnanna. „Það á samt
bara eftir að koma í ljós.“
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu í gær verður Jóhanna Vig-
dís Arnardóttir rödd Sjónvarps-
ins. Páll Magnússon útvarpsstjóri
segir að þulurnar verði dagskrár-
forritinu til halds og trausts á
meðan verið sé að slípa það til.
Hann bætir því við að sjónvarps-
áhorfendur eigi ekki eftir að fá
neitt sjokk, umhverfi kvölddag-
skrárinnar verði svipað og hjá
öðrum erlendum sjónvarpsstöðv-
um. Hann viðurkennir þó að um
merkileg tímamót sé að ræða í
sögu Sjónvarpsins; þær hafi jú
boðið áhorfendum gott kvöld
síðan 1966. Hann segir Jóhönnu
verða hálfgerða Bó Sjónvarps-
ins en Björgvin Halldórsson er jú
rödd Stöðvar 2. Hann vill þó ekki
kvitta upp á að ástæðan fyrir val-
inu á Jóhönnu sé að draga úr því
áfalli sem sjónvarpsáhorfendur
kunna að verða fyrir þegar sjón-
varpið tekur á móti þeim á kvöld-
in, þululaust. „Hins vegar er því
ekki að neita að konur eru ekki
oft í þessu hlutverki og það fannst
okkur svolítið spennandi. Og svo
er Jóhanna líka með svo ótrúlega
flotta og góða rödd og rúllaði þessu
bara upp.“ freyrgigja@frettabladid.is
MARGRÉT RÓS Á SÍÐUSTU
ÞULUVAKT SJÓNVARPSINS
Raunveruleikastjarnan
Heidi Montag vakti mikið
umtal þegar hún gekkst
undir tíu lýtaaðgerðir
á aðeins einum degi.
Montag lét meðal ann-
ars stækka brjóst sín og
varir og lagfæra á sér
nefið auk þess sem hún
fékk ígræðslu í kinnbein
og kjálka.
Montag heimsótti fjöl-
skyldu sína fyrir stuttu
og sýndi þeim breyt-
ingarnar sem hún hafði
gengið í gegnum. Upp-
tökuvélar eltu stúlkuna
að sjálfsögðu heim til
foreldranna sem varð
um og ó þegar þau sáu
nýtt útlit dóttur sinnar.
Þegar Montag spurði
móður sína hvort henni
þætti hún líta vel út,
svaraði hún: „Hvað viltu
að ég segi? Auðvitað
fannst mér þú mun fal-
legri áður. Mér fannst
þú unglegri, frísklegri
og heilbrigðari. En
þetta er búið og gert og
þetta þarft þú að lifa við
núna.“
Ósátt við útlit Heidi
NÝTT ÚTLIT Heidi Montag
gekkst undir tíu lýtaaðgerðir
á einum og sama deginum.
NORDICPHOTOS/GETTY
MERKILEG TÍMAMÓT
Margrét Rós Gunnarsdóttir, Eva
Sólan, Matthildur Magnúsdóttir,
Katrín Brynja og Sigurlaug Jóns-
dóttir bjóða áhorfendum ekki lengur
gott kvöld því tími sjónvarpsþulna
er liðinn. Jóhanna Vigdís Arnardóttir
verður rödd Sjónvarpsins.
Leikkonan Kate Hudson, sem átti í stuttu sambandi við
hafnaboltaleikarann Alex Rodriguez á síðasta ári,
er ekki hrifin af nýju kærustu kappans. Rodriguez
hefur verið að slá sér upp með leikkonunni Camer-
on Diaz undanfarið og að sögn heimildarmanna er
Hudson ekki sátt. „Þegar Alex og Kate voru saman
sagði hann henni einu sinni að honum þætti Camer-
on ekki falleg þannig að Kate finnst það vera algjör
brandari að hann skuli vera að hitta hana núna,“
var haft eftir heimildarmanni. „Kate þolir ekki
Cameron og finnst hallærislegt að hún skuli
ekki geta haldið í kærasta.“
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
Pantaðu í síma
565 6000
eða á somi.is
*