Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 38
 30. SEPTEMBER 2010 FIMMTUDAGUR Strákabuxur Verð: 4.595.- Stærðir: 2-3, 3-4, 4-5, 5-6, 7-8, 9-10, 11-12, 13-14 Litir: Dökkblár, svartur og brúnn (fóðraðar að innan með bómullarefni) Chino buxur Verð: 7.995.- Særðir: xs, s, m, L, XL Litir: 4 brúnir litir, dökkblár og hermannagrænar Stelpubuxur Verð: 2.995.- Stærðir: 2-3, 3-4, 4-5, 5-6, 7-8, 9-10, 11-12, 13-14 Litir: Dökkblár, fjólublár, brúnn, bleikur og grár (einnig fást joggingpeysur í stíl) Fínni Chino buxur Verð: 8.995.- Stærðir: xs, s, m, L, Xl Litir: Svartur, dökkgrár, steingrár og dökkblár (einnig fást blazer jakkar í stíl) Buxur verða áberandi í tísku vetrarins ef marka má línurnar sem verslunin Zara leggur. Þar er Elín Guðjónsdóttir vörustjóri og hún veit allt um úrvalið. „Það hentar vel að taka buxurnar fram núna þegar lofthitinn fer lækkandi enda er aðaláherslan á buxur í vetur,“ segir Elín Guðjónsdóttir, vörustjóri Zöru á Íslandi, og telur dömutískuna dálítið vera að færast frá kjólum yfir á buxurnar. „Við erum með mikið úrval af alls konar sniðum,“ byrjar hún þegar hún er beðin að lýsa helstu nýjungum í dömudeildinni. „Gallabuxurnar eru alveg frá því að vera háar í mittið og til skinny sem sitja neðarlega og eru þröngar niður úr. „Vinsældir þrengstu buxnanna eru þó aðeins að dala og meiri vídd að koma inn,“ segir hún og lýsir sniðinu nánar. „Það er mikið um buxur sem eru svolítið víðar yfir lærin, þrengjast aðeins niður með kálfunum og stoppa á ökklanum. Margar þeirra eru með belti. Það er það heitasta í dag.“ Þetta haustið virðist sem galla- buxurnar falli aðeins í skuggann fyrir öðrum buxnagerðum í Zöru enda segir Elín hönnuðina þar vera óhrædda að breyta til. „Þeir eru líka með ný snið á dragtarbuxun- um, víkka þær að ofan en láta þær þrengjast aðeins niður,“ segir hún. En hvaða litir eru helst í gangi? „Það eru jarðarlitir; brúnir, her- mannagrænir og út í navy-blátt. Joggingbuxur eru líka til í úr- vali í Zöru og einnig þar er boðið upp á nýja tísku í bland við þessa klassíku. „Joggingbuxurnar eru líkar leggings, þrengri en þessar hefðbundnu og efnið er líka með öðruvísi áferð en áður. Þær eru ekki bara einlitar, heldur líka með yrjum.“ Ótal gerðir buxna í fjölbreytt- um sniðum eru fáanlegar í Zöru enda segir Elín sendingarnar ber- ast tvisvar í viku frá Spáni og að alltaf komi eitthvað nýtt upp úr kössunum. Áhersla á buxur í stað kjóla á þessu hausti „Gallabuxurnar falla aðeins í skuggann af öðrum buxnagerðum,“ segir Elín Guðjóns- dóttir, vörustjóri Zöru á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Við höfum alltaf verið með barnaföt, bæði á stráka og stelpur, allt frá ungbarnastærðum upp í 14 ára,“ segir Elín Guðjónsdóttir vörustjóri Zöru og sýnir úrval af barnabuxum með mikið nota- gildi. Ætla mætti að þær hefðu verið hannaðar sérstaklega fyrir Íslendinga því sumar þeirra eru fóðraðar með flísefni eða bómull. „Já, þær eru hlýjar og góðar í skólann og henta vel ís- lenskum aðstæðum,“ tekur Elín undir. Joggingbuxur og jogginggallar sem alltaf falla í kramið hjá krökkum eru líka í Zöru. En hvaða litir skyldu vera vinsælastir hjá þeim? „Hjá strákunum virðist mottóið vera: „því dekkri því betri“ en stelpurnar fíla fjölbreyttari liti. „Þar eru bláar galla- buxur vinsælastar í bland við aðra liti, til dæmis svartan, bleikan, brúnan og gráan.“ Henta íslenskum aðstæðum Hjá strák- unum virðist mottóið vera því dekkri því betri en stelpurnar fíla fjölbreyttari liti. Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 l Umsjónarmaður auglýsinga: Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is s. 512 5439
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.