Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 42
30. SEPTEMBER 2010 FIMMTUDAGUR
Kaky buxur
Fást einnig í gráu og svörtu
Verð 14.990
DND
Fást í nokkrum litum
Verð 17.990
Suit
Fást einnig í ljósari bláum
og gráum lit.
Verð 14.990
Suit
Fást einnig í dökkbláum
og gráum lit.
Verð 14.990
ORGINAL
ORGINAL
ORGINAL
ORGINAL
Tískan í gallabuxum í vetur er
afar fjölbreytt og gallabuxur
eru til í miklu úrvali hjá Orginal
fyrir bæði kynin. Kvensniðin
eru sem fyrr segir kvenleg og
eiga að draga það besta fram hjá
konum.
„Yngra fólk er oftar en ekki til
í að prófa eitthvað nýtt og taka
þá buxur með meiri smáatriðum,
snjáðar og rifnar og þetta alveg
niðurþrönga snið er sömuleiðis
að höfða mikið til yngra fólksins.
Við erum með hágæða dönsk
merki og þessar buxur sem við
bjóðum upp á eru til dæmis þær
vinsælustu í Danmörku,“ segir
Unnur Erlendsdóttir í Orginal.
Merkin sem seld eru hjá
Orginal eru Minimum, DND,
Suit og Psycho Cowboy og
Frank Q. Buxurnar eru einnig
allar mjög þægilegar en
viðskiptavinir leggja flestir
mikið upp úr því að gott sé að
vera í buxunum að sögn Unnar.
Verslunin Orginal í Smáralind
er með breitt úrval af herra- og
dömubuxum fyrir veturinn,
gallabuxur í öllum litum,
leggings, kakíbuxur, fínni
gerðir og fleira til.
Að sögn Unnar Erlendsdóttur,
verslunarstjóra Orginal, er mikið
lagt upp úr því að starfsfólk
verslunarinnar Orginal geti
aðstoðað viðskiptavini við valið,
fundið hentugt snið og geti lesið
í hvernig smekk viðkomandi
hefur.
„Við erum með allar mögulegar
gerðir af buxum fyrir dömur
og herra. Gal labuxurnar
okkar njóta stöðugra vinsælda
sem og til dæmis kakíbuxur,
hermannabuxur, hefðbundnar
leggings og gallabuxnaleggings
og svo buxur fyrir sérstök fínni
tilefni,“ segir Unnur.
Herra-gallabuxur í vetur eru
að sögn Unnar margar hverjar
með beinu sniði eða niðurþröngu
en þau tvö snið hafa notið mikilla
vinsælda undanfarið. „Gallabuxna-
tískan er að vísu mjög fjölbreytt
og margt í gangi þar. Dekkri
buxurnar, bláar, svartar og gráar
eru alltaf vinsælar enda hægt að
nota þær við mismunandi tilefni
og svo eru margir sem vilja hafa
þær eitthvað smá rifnar eða
þvegnar sem hentar þá betur
hversdags. Svokallað búddasnið,
sem er með síðu klofi og þrengjast
að neðan, á svo sérstaklega upp á
pallborðið hjá yngri strákunum
og við eigum þær buxur í öllum
litum.“
Aðra bux nategund frá
Minimum nefnir Unnur einnig en
þær þykja sérstaklega þægilegar,
eru þröngar og fást í svörtu og
gráu.
Unnur segir að gallabuxur
séu að koma sterkar inn í vetur í
kventískunni eftir að leggings hafi
tröllriðið markaðinum undanfarin
ár. „Kvenleg gallabuxnasnið
virðast vera að koma sterk
inn í vetur og sömuleiðis er
hermannatískan að verða vinsæl
á ný með buxum sem eru háar
og þröngar upp í mittið, aðeins
víðar í klofinu og þröngar niður.
Leggings eru þó að sjálfsögðu
áfram til staðar og eru til í miklu
úrvali hjá okkur. Orginal er ein
Fjölbreytt snið og litir
„Við erum með allar mögulegar gerðir af buxum fyrir dömur og herra. Gallabuxurnar
okkar njóta stöðugra vinsælda,“ segir Unnur Erlendsdóttir, verslunarstjóri hjá Orgin-
al í Smáralind. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Tískustraumar í vetur
Orginal selur nokkur af vinsælustu
buxnamerkjum Danmerkur.