Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 32
 30. september 2010 FIMMTUDAGUR32 timamot@frettabladid.is Á þessum degi árið 1966 var lýðveldið Botsvana stofnað en landið var áður hluti breska verndarsvæðisins Bechu- analands. Botsvana er landlukt ríki í suð- urhluta Afríku með landamæri að Suður-Afríku í suðri, Sambíu í norðri, Namibíu í vestri og Simbabve í norð- austri. Kalaharíeyðimörkin nær yfir um sjötíu prósent landsvæðisins. Höfuð- borg Botsvana heitir Gaboróne. Efnahagur Botsvana byggir að mestu á nautgriparækt og námagreftri en í landinu eru auðugar demanta- námur. Upphaflega var ætlun Breta að landið færi undir Ródesíu, sem í dag eru Simbabve og Sambía, eða Suður- Afríku en vegna mikillar andstöðu Tsvana var hætt við það og landið var því áfram undir breskri stjórn þar til það öðlaðist sjálfstæði. ÞETTA GERÐIST: 30 SEPTEMBER 1966 Lýðveldið Botsvana verður til JAMES DEAN (1931- 1955) lést á þessum degi „Láttu þig dreyma eins og þú munir lifa að eilífu. Lifðu eins og þú munir deyja í dag.“ Alþjóðadagur þýðenda er í dag en hann hefur verið haldinn síðan 1953. „Dagurinn er kenndur við heilagan Híerónýmus, sem var frumkvöðull í Biblíuþýðingum og þýddi Biblíuna úr hebresku yfir á latínu. Sú þýðing var kölluð Vulgata, og var notuð í hátt í þúsund ár og fyrsta bókin sem Gut- enberg prentaði,“ segir Rúnar Helgi Vignisson, formaður Bandalags þýð- enda og túlka. „Við stofnuðum Bandalag þýðenda og túlka á þessum degi, 30. septemb- er 2004 þannig að það er sex ára í dag. Nú er meiningin að reyna svolít- ið að vekja athygli á þessum degi líkt og vakin er athygli á öðrum alþjóð- legum dögum af þessu tagi, eins og til dæmis degi tungumála. Við stefn- um að því í framtíðinni að halda upp á þennan dag á einhvern hátt og í þetta skiptið gerum við það með því að halda svolítið málþing um sjón- varps- og kvikmyndaþýðingar og heiðra tvo frumkvöðla úr þeim geira. Ætlunin er svo að halda þessu áfram og taka fyrir einhvern geira þýðinga á hverju ári. Aðeins að vekja athygli á þýðingum, hinum ýmsu þýðingum því það eru margs konar þýðingar sem eru stundaðar. Almenningur tekur kannski mest eftir bókmenntaþýð- ingum og sjónvarpstextunum en það er fólk úti um allt samfélag sem er að þýða þó að það kalli sig ekki endilega alltaf þýðendur. Það var til dæmis bara innanhússfólk í tölvufyrirtækj- um sem þýddi mikið af tölvuumhverf- inu sem við notum nú til dags og fann frábærar þýðingarlausnir. Þannig er þetta í mörgum geirum,“ segir Rúnar Helgi. Málþingið í Þjóðminjasafninu verð- ur haldið á milli klukkan 15 og 17 í dag. „Okkur þykir alltaf við hæfi að vera þar því að orðin þjóð og þýða eru náskyld og að þýða þýðir í rauninni að gera þjóðinni skiljanlegt, færa úr einum menningarheimi yfir í annan og þýðendur hafa haft gríðarleg áhrif á íslenska tungu.“ emilia@frettabladid.is ALÞJÓÐADAGUR ÞÝÐENDA: MÁLÞING Í ÞJÓÐMINJASAFNINU Hafa mikil áhrif á íslenskuna Í tilefni af tveggja ára afmæli efnir Búrið til veislu, þar sem fagur- skreyttar kökur og ísköld mjólk verður á boðstólum. Búrið, sælkerabúð sem selur allt frá ostum og ólíf- um til smuráleggs, heldur upp á tveggja ára starfsaf- mæli sitt. Búrið, sem er í Nóatúni 17, býður af þessu tilefni til afmælisveislu næstkomandi laugardag, þar sem viðskiptavinum og öðrum velunnurum Búrs- ins verður boðið í köku- boð. Áslaug Snorradóttir sér um veitingarnar, en á boðstólum verða gómsæt- ar kökur og íslensk mjólk, allt í bleiku og bláu eins og ekta tveggja ára afmæli sæmir. Á afmælisdaginn verður opið í Búrinu frá 12 til 18 að venju og eru allir velkomnir til veislunnar. - jbá Afmælisveisla Búrsins Búrið býður upp á ýmsar sælkeravörur, allt frá ostum til áleggs. RÚNAR HELGI Formaður Bandalags þýðenda og túlka. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, pabba, tengdapabba, afa og langafa, Odds Benediktssonar, Lambhaga 12, Álftanesi. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki líknardeildar Landspítalans sem annaðist hann af alúð sem okkur gleymist aldrei. Hólmfríður R. Árnadóttir Kolbrún Þóra Oddsdóttir Guðmundur Jónsson Hákon Már Oddsson Árni Geir Pálsson Soffía Waag Árnadóttir Kári Pálsson Guðrún María Ólafsdóttir Guðrún Oddsdóttir Árni Maríasson Katrín Oddsdóttir Kristín Eysteinsdóttir afabörn og langafabarn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, dóttir, tengdadóttir, systir, mágkona og amma, Agnes Ármannsdóttir, Guðnýjarbraut 15, Innri-Njarðvík, sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, laug- ardaginn 25. september, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 1. október kl. 11.00. Helgi G. Steinarsson Helga Auðunsdóttir Hafþór Hilmarsson Anita Auðunsdóttir Kristján Á. Baldursson Sigurbjörg Auðunsdóttir Ævar Sveinn Sveinson Sigurbjörg Stefánsdóttir Bára Helgadóttir Jóhanna Helgadóttir Linda Helgadóttir og barnabörn. Ástkær móðir okkar, Hulda Snorradóttir frá Dagverðartungu, lést á Dvalarheimilinu Hlíð 27. september. Útförin verður auglýst síðar. Gylfi Pálsson Ragna Pálsdóttir Gísli A. Pálsson Snjólaug Pálsdóttir Snorri Þ. Pálsson Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, Jens Sævar Guðbergsson, Garðbraut 83, Garði, verður jarðsunginn frá Útskálakirkju föstudaginn 1. október klukkan 14.00. Einnig verður sent út frá athöfninni í sal Gerðaskóla, Miðgarði. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna reikn: 301-26-545 kt: 630591-1129. Ólöf Hallsdóttir Sveinn Magni Jensson Dagmar María Hrólfsdóttir Jens Óli Jensson Harpa Mjöll Magnúsdóttir Sveinborg Petrína Jensdóttir Ólafur Ómarsson Særún Thelma Jensdóttir Bjarni Páll Tryggvason Hallur Þór Jensson Sævar Gunnóli Sveinsson Agnes Gunnþóra Sveinsdóttir Elvar Unndór Sveinsson Júlía Mjöll Jensdóttir Ísak Helgi Jensson Ólöf Sólveig Ólafsdóttir Bergrún Dögg Bjarnadóttir Sæþór Elí Bjarnason Svandís Huld Bjarnadóttir Brynhildur Þöll Bjarnadóttir Merkisatburðir 1611 Gústaf 2. Adolf verður konungur Svíþjóðar. 1936 Á Suðvesturlandi verður mikið tjón vegna sjávarflóða. 1941 Lokið við höggmyndirnar af fjórum forsetum Bandaríkjanna í Rushmore-fjalli. 1983 Fyrstu frjálsu kosningarnar haldnar í Argentínu eftir sjö ára herforingjastjórn. 1985 Eduard Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, kemur í opinbera heimsókn til Íslands. 2006 Síðasta skipið afgreitt úr Daníelsslipp í Reykjavíkurhöfn. 2008 Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu vinnur það írska 3- 0 á Laugardalsvelli og kemst þar með í úrslitakeppni EM 2009, fyrst íslenskra A-landsliða í knattspyrnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.