Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 40
30. SEPTEMBER 2010 FIMMTUDAGUR
Dömu gallabuxur
Verð: 7.490 kr.
Dömu gallabuxur
Verð: 7.490 kr.
Herra gallabuxur
Verð: 9.790 kr.
Herra gallabuxur
Verð: 10.490 kr.
Gallabuxur, létt efni og harem-
buxur er það sem er mest
áberandi í Next þegar buxna-
tíska haustsins er skoðuð. Þar
er Hafdís Runólfsdóttir öllum
hnútum kunnug.
„Gallabuxur eru alltaf vinsælar,
bæði hjá dömum og herrum,“
segir Hafdís, verslunarstjóri í
Next. „Eins eru harem-buxur
vinsælar í dömudeild. Þær eru úr
þunnu, léttu bómullarefni, dálítið
víðar yfir mjaðmir og þrengjast
aðeins niður. Við eigum þær bæði
síðar og svo styttri sem fara vel
með stígvélum. Síða týpan er til í
mynstruðu og svörtu og sú styttri í
mosagrænu, hvítu, bláu og svörtu.“
Við erum líka með úrval af fínni
buxum. Yfirleitt eru þær örlítið
víðar, einstaka með fellingum
undir strenginn en flestar eru
með bootcut-sniði með aðeins
vídd yfir legginn. Oft er hægt að
fá dragtarjakka við.“
Hafdís upplýsir að verðið á dömu-
gallabuxum í Next sé frá 6.000 upp
í 10.000 þúsund. Hún nefnir nokkr-
ar týpur og lýsir mismun þeirra.
„Bootcut eru langvinsælastar og
henta flestum konum. Þær eru
þröngar yfir lærin en víkka frá
hnjám. Það er snið sem grennir
lærin og lengir fótleggina. Skinny-
buxurnar eru líka vinsælar. Þær
eru alveg þröngar niður og yngri
konurnar aðhyllast þær en við
hvetjum allar til að prófa. Slim fit
eru þröngar með frekar beinu sniði
og slim flare eru alveg þröngar en
víkka talsvert frá hnjám. Síðan
eru það boyfriend sem eru dálítið
víðar og sitja á mjöðmunum.“
„Í herradeildinni eru svokallað-
ar cargo-buxur úr bómull vinsæl-
ar, þær eru sportlegar, léttar og
þægilegar og fínni buxur seljast
líka alltaf vel, bæði stakar og sem
hluti af jakkafötum,“ tekur Haf-
dís fram. „Gallabuxurnar eru þó
alltaf á toppnum og verðið er frá
6.000 upp í 12.000 krónur. Marg-
ir kaupa tvennar í einu því þær
eru svo ódýrar.“ segir hún og lýsir
týpunum. „Boot fit eru vinsælustu
gallabuxurnar í herradeildinni, að-
eins útvíðar og henta flestum karl-
mönnum. Önnur vinsæl týpa er
straight leg. Þær sitja frekar neð-
arlega en eru með beinar skálm-
ar og koma sterkar inn fyrir vet-
urinn. Low rise loose eru frekar
lágar en víðar og loose fit mjög
svipaðar. Báðar henta vel karl-
mönnum með mikil læri, enda taka
íþróttamenn þær gjarnan. Slimm-
er leg boot eru þröngar niður að
hné og víkka aðeins yfir fótlegg-
inn og slim fit sitja neðarlega og
eru þröngar niður. Þær höfða enn
mjög til ungu strákanna.“
Hafdís segir litina í mörgum bláum
tónum en dekkri buxurnar falla
betur í kramið eins og er. „Númer
eitt, tvö og þrjú er að finna snið
sem hentar vexti hvers og eins,“
segir hún. „Því er um að gera að
prófa mismunandi týpur og njóta
ráðlegginga starfsfólksins.“
Snið fara heldur víkkandi
„Númer eitt, tvö og þrjú er að finna snið sem hentar vexti hvers og eins,“ segir Hafdís. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Next er verslun fyrir alla fjöl-
skylduna. Í dömu-, herra- og
barnadeild má finna fjölbreytt
úrval af vörum, allt frá sokkum
og nærfötum upp í yfirhafnir og
fylgihluti. Barnadeildin er ein sú
stærsta á landinu og þar er gott
úrval af vönduðum fatnaði á góðu
verði. Starfsfólk verslunarinnar
leggur sig fram við að veita góða
þjónustu og aðstoða viðskipta-
vininn við að finna fatnað og snið
sem henta hverjum og einum. Það
er gott að gefa sér góðan tíma til
þess að máta fatnað og vera opinn
fyrir nýjungum og prófa ný snið.
Útkoman kemur oft skemmtilega
á óvart. Einnig er hægt að máta
vörurnar betur heima því skila-
frestur á vörum er fjórtán dagar
og hægt er að fá vörur endur-
greiddar innan sjö daga gegn
framvísun kassakvittunar. Á Fac-
ebook-síðu Next eru oft ýmis til-
boð í gangi og kynningar á nýjum
vörum svo að það er um að gera
að vera vinur Next á Facebook og
fylgjast með því sem er í gangi. Í
dag (fimmtudag) er opið til mið-
nættis í Kringlunni og eru allar
vörur í Next með 25 prósenta af-
slætti til miðnættis.
Fyrir alla fjölskylduna
Í Next í Kringlunni. Allar vörur þar eru með 25 prósenta afslætti í dag, fimmtudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA