Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 62
46 30. september 2010 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> DOTTINN ÚT
Söngvarinn Michael Bolton var kosinn út úr sjón-
varpsþættinum Dancing with the Stars í fyrra-
kvöld með afgerandi hætti. Einn dómar-
anna sagði dansrútínu hans og Chelsie
Hightower þá verstu sem hann hafi séð.
Eins og Fréttablaðið hefur greint frá
sungu stelpurnar í The Charlies kynn-
ingarlag fyrir þáttinn og munu koma
fram í honum síðar í vetur.
Stórtíðinda gæti verið að
vænta úr heimi popptónlist-
ar. Sænsku súperstjörnurn-
ar í Abba eru sagðar vera
að hugsa alvarlega um að
snúa aftur í sviðsljósið.
Anni-Frid Lyngstad, best þekkt
sem Frida, gaf Abba-aðdáendum
hressilega undir fótinn í viðtali
við breska blaðið Daily Express.
Hún sagðist ræða það oft og ítrek-
að við Agnethu Fältskog hvort þær
ættu ekki að taka lagið saman á ný.
Þær Frida og Agnetha hafa staðið
í vegi fyrir að sveitin komi saman
en þær hafa margoft lýst því yfir að
þær séu fyrir löngu hættar öllum
afskiptum af tónlistarbransanum.
„Það væri frábært að gera eitthvað
með Agnethu. Ef við myndum gera
eitthvað þá yrði erfitt að stand-
ast pressuna með Abba, þetta yrði
aldrei neitt sem flygi lágt.“
Björn og Benny voru eiginmenn
Agnethu og Fridu á þeim tíma sem
frægðarsól Abba reis hæst. Sveit-
in hætti hins vegar með miklum
látum árið 1983 og hefur margoft
verið boðnar himinháar fjárhæðir
fyrir að koma aftur saman. Björn
og Benny hafa verið duglegir við
að semja tónlist síðan leið þeirra lá
frá hjónahljómsveitinni. Eina skipt-
ið sem sveitin sást saman var árið
2008 þegar allir meðlimir sveit-
arinnar mættu á frumsýningu
kvikmyndarinnar Mamma Mia! í
London. Björn sagði þá að hljóm-
sveitin myndi aldrei koma aftur.
„Peningar eru ekki vandamálið í
þeim efnum.“
Abba lifnar við
ENDURKOMA ALDARINNAR Víst er að Abba-aðdáendur út um allan heim myndu
tryllast af gleði ef sveitin kæmi saman á ný.
Breska blaðið The Sun greindi frá því
í gær að David Beckham hygðist ekki
halda nokkru eftir af þeim sextán millj-
ónum punda sem hann ætlar hafa af
vændiskonunni Irmu Nici og banda-
ríska blaðinu In Touch í skaðabóta-
máli. Beckham hefur mætt blað-
inu af fullri hörku eftir að það
birti frétt þess efnis að hann hefði
sængað hjá tveimur vændiskon-
um á hótelherbergi í New York
fyrir nokkru. Beckham harðneit-
ar þessum fréttum og hefur höfð-
að meiðyrðamál á hendur blaðinu,
ritstjóra þess, viðmælandanum og
útgefandanum sem er þýski risinn
Bauer.
Fram kemur í The Sun að pen-
ingarnir muni renna beint til Victoriu
og David-góðgerðarsjóðsins en hann
hefur lagt sitt af mörkum við að hjálpa
langveikum börnum úti um allan heim.
„Beckham vill ekki sjá þessa peninga,“
hefur The Sun eftir vini fótboltamanns-
ins. Málsókn Beckhams á hendur vænd-
iskonunni og blaðinu hefur vakið mikla
athygli. Irma reyndi að svara fyrir sig í
The Sun og sagðist ætla að sýna fram á
að það væri Beckham sem væri druslan í
málinu. „Ég hlakka til þess dags þegar ég
mæti í réttarsalinn og fæ tækifæri til að
segja sannleikann í málinu,“ sagði Irma.
The Sun hafði uppi á fjölskyldu hennar
í Hollandi sem kom það stórkostlega á
óvart að hún væri í vændi. Fjölskyldan
sagðist engu að síður standa með henni.
Skaðabæturnar fara til góðgerðarmála
GEFUR PENINGANA David Beckham vill fá sex-
tán milljónir punda í skaðabætur. Hann hyggst
gefa þær allar góðgerðarmála.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
7
2
3
BARA KREISTA!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
0
-1
2
0
4