Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 58
42 30. september 2010 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Eitt af þeim nýju nöfnum sem hafa verið að vekja athygli í poppheim-
inum undanfarið er suðurafríska hljómsveitin Die Antwoord. Nafnið
þýðir „Svarið“ á tungumálinu Afrikaans. Meðlimir Die Antwoord eru
ekki stæltir Zulu-menn
með þjóðlegar trumbur
eða heimasmíðaða belg-
gítara, heldur horað-
ir hvítir úthverfabúar
sem búa til dansvænt
hip-hop með nýjustu
tölvugræjum.
Hljómsveitin var
stofnuð í ársbyrjun
2009 í Höfðaborg og
hana skipa rapparinn
Ninja, söngkonan Yo-
Landi Vi$$er og takta-
smiðurinn Hi-Tek. Þau
tóku upp sína fyrstu
plötu $O$ í fyrra og
gáfu hana á vefsvæði sveitarinnar. Þau gerðu líka myndband við lagið
Enter The Ninja, en níu mánuðum eftir að það var sett á Netið sló
það svo rækilega í gegn að hýsingaraðili vefsins neyddist til að loka
honum. Hann hefur nú fengið nýjan hýsil. Die Antwoord gerði samn-
ing við Universal sem gaf út fimm laga stuttskífu með henni í sumar.
Tvöföld útgáfa af $O$ er svo væntanleg í október.
Hvað er það svo veldur vinsældum Die Antwoord? Fljótlegast til
að nálgast svar við því er að skoða myndbandið þeirra við Enter The
Ninja og kynningarmyndina Zef Side sem auðvelt er finna á Netinu.
Tónlistin er grípandi og frísklegt reif-litað hip-hop, en útlitið og tilþrif-
in hjá meðlimunum hafa mikið að segja líka. Þau eru svo ýkt að manni
dettur fyrst í hug að þetta sé nýtt efni frá Ali G. Stemningin er svona
„hvítt rusl“ í tíunda veldi, en því fleiri viðtöl við þau sem maður heyr-
ir, þeim mun betur sér maður hvað þau eru klár ...
Öðruvísi afrískir taktar
HVÍTT RUSL Antwoord er eitt af forvitnilegustu nýju
nöfnunum í poppinu.
> Plata vikunnar
The Walkmen - Lisbon
★★★★
„Frábær plata sem verður
vafalaust á mörgum listum yfir
plötur ársins.“ -afb
> Í SPILARANUM
Jónas Sigurðsson - Allt er eitthvað
Swords of Chaos - The End Is As Near As Your
Teeth
Robert Plant - Band Of Joy
Sing For Me Sandra - Apollo´s Parade
Sufjan Stevens - Age of Adz
JÓNAS SIGURÐSSON ROBERT PLANT
Útgáfutónleikar rokksveitarinnar Swords of Chaos
verða haldnir annað kvöld í tilefni af fyrstu plötu
sveitarinnar, The End Is As Near As Your Teeth, sem
kom út í síðustu viku á vegum Kimi Records.
„Við erum búnir að vera að spila saman örugglega í
þrjú ár. Elstu lögin eru orðin ansi gömul þannig að við
erum voða fegnir að geta farið að huga að einhverju
nýju eftir þetta,“ segir Úlfur Hansson, liðsmaður
sveitarinnnar.
Tónlist Swords of Chaos er kraftmikil og ágeng.
Úlfur vill samt ekki flokka hana sem þungarokk. „Við
erum engir þungarokkarar í okkur. Þetta er þunga-
rokk fyrir þá sem fíla ekki þungarokk,“ segir hann.
„Ætli þetta flokkist ekki undir harðkjarnatónlist en
við erum ekkert inni í henni. Enginn okkar er eitthvað
að hlusta á svoleiðis tónlist.“ Þess má geta að blásturs-
hljóðfæri koma við sögu í þremur lögum á plötunni og
mun blásturssextett einmitt spila á útgáfutónleikun-
um.
Úlfur er nýkominn til landsins eftir að hafa spilað á
bassa með Jónsa á tónleikaferð hans um heiminn. „Við
höldum áfram eftir Airwaves og förum til Norður-
Ameríku. Þetta er búið að vera ótrúlegt. Ég hef aldrei
farið á svona túr áður.“ Hann viðurkennir að það séu
viðbrigði að færa sig frá hinum poppaða Jónsa yfir til
Swords of Chaos. „Það er mjög hressandi.“
Útgáfutónleikarnir verða á Faktorý Bar og hefjast
klukkan 22. Einnig stíga á svið Logn, Markús & The
Diversion Sessions og Reykjavík!. Forsala miða er í
Havaríi og er miðaverð 1.000 kr. - fb
Erum engir þungarokkarar
SWORDS OF CHAOS Rokksveitin heldur útgáfutónleika á Fakt-
orý Bar annað kvöld.
Indí-poppararnir í The
Antlers spila á Airwaves-
hátíðinni í október. Íslensk
tónlist er forsprakkanum
Peter Silverman afar hjart-
fólgin.
The Antlers spilar á Iceland Air-
waves-hátíðinni í næsta mánuði.
Hljómsveitin kemur frá Brooklyn
í New York og forsprakki hennar
er Peter Silverman.
„Ég hef verið að semja og taka
upp í langan tíma, mestan hluta
ævi minnar. Ég flutti til New
York 2006 og þá fór ég að nota
nafnið The Antlers. 2007 fór ég
að safna saman fleirum í hljóm-
sveitina á meðan ég var að taka
upp Hospice,“ segir Silverman í
viðtali við Fréttablaðið.
Platan Hospice kom út í fyrra og
vakti mikla athygli á The Antl-
ers fyrir vel heppnað indí-poppið.
Sumir gagnrýnendur töldu hana
eina af betri plötum síðasta árs.
„Ég gerði plötuna því mér fannst
ég þurfa á því að halda. Umfjöll-
unarefnið á plötunni skipti mig
miklu máli en ég bjóst ekki við
því að nokkur myndi vilja hlusta
á hana. Síðan fékk platan góðar
viðtökur og það hefur gert okkur
kleift að vera á stöðugri tónleika-
ferð og lifa af tónlistinni. Ég er
mjög ánægður með það og ég gæti
ekki beðið um neitt betra,“ segir
Silverman og útskýrir að Hospice
fjalli um samband á milli tveggja
manneskja sem hefur eyðilegg-
ingarmátt í för með sér.
Tónleikaferðin til að fylgja eftir
Hospice stóð yfir í tvö ár og gekk
vel. Núna er The Antlers komin
heim til New York og er að taka
upp næstu plötu. Silverman von-
ast til að ljúka við hana á þessu
ári og tekur fram að upptökurn-
ar muni ekki taka jafnlangan tíma
og við gerð Hostice, eða eitt og
hálft ár.
Á tónleikaferðinni hituðu Silver-
man og félagar upp fyrir hinar
heimsfrægu hljómsveitir Edit-
ors og The National. „Að hita upp
fyrir Editors gaf okkur tækifæri
til að sjá hvernig það er að vera í
stærri hljómsveit og spila í stór-
um tónleikahöllum,“ segir hann
og bætir við: „Ég hef verið aðdá-
andi The National í mörg ár og lít
mjög upp til þeirra. Það var mikil
reynsla fyrir mig að fylgjast með
hvernig þeir spila. Ég held að
þessi reynsla hafi gert okkur að
betri hljómsveit því við vildum
sýna að við værum þess verðugir
að spila með þeim.“
Silverman hlustaði mikið á My
Bloody Valentine og Goodspeed
You! Black Emperor á meðan á
gerð Hospice stóð. Núna hlustar
hann mikið á raftónlist, djassað
síðrokk og Bítlana. Íslensk tónlist
er honum einnig hjartfólgin, sér-
staklega Sigur Rós. „Ég hlustaði á
Sigur Rós á hverjum degi í mörg
ár,“ segir hann og nefnir Björk og
múm einnig til sögunnar. „Marg-
ar hljómsveitir hafa orðið fyrir
áhrifum af íslenskri tónlist og það
er hluti af ástæðunni fyrir því að
við ákváðum að koma á Iceland
Airwaves,“ segir hann.
freyr@frettabladid.is
HLUSTAÐI Á SIGUR RÓS Á
HVERJUM DEGI Í MÖRG ÁR
THE ANTLERS Hljómsveitin The Antlers spilar á Iceland Airwaves-hátíðinni í ár. Peter
Silverman er í miðjunni. NORDICPHOTOS/GETTY
Will Berman, trommuleikari MGMT, struns-
aði af sviðinu á tónleikum í Manchester eftir
að glasi með þvagi var kastað í hann.
New York-sveitin var að spila lagið The
Handshake undir lok tónleikanna þegar atvik-
ið átti sér stað. Berman var ekki skemmt og
yfirgaf sviðið í mikilli bræði. Hann neitaði að
snúa aftur þrátt fyrir að félagar hans í hljóm-
sveitinni grátbændu hann um að klára tón-
leikana með þeim. Fyrst tóku þeir reyndar
ekki eftir því að hann var horfinn en síðan
kláruðu þeir giggið án hans. Þeir spiluðu
samt ekki eftir uppklappið og sýndu Berman
þannig stuðning sinn í verki.
Stutt er síðan hljómsveitirnar Guns N´Ros-
es og Kings Of Leon stöðvuðu tónleika sína
vegna óvæntra uppákoma. Fyrst var plast-
flöskum kastað í átt að Guns N ´Roses á tón-
leikum í Dublin og síðan þurftu Kings Of
Leon að yfirgefa sviðið í St. Louis Missouri
vegna fugladrits-árásar frá dúfnahópi sem
sveimaði yfir þeim.
Trommari varð fyrir þvagárás
MGMT Trommari MGMT strunsaði af sviðinu eftir
að glasi með þvagi var kastað í hann.
Tónleikaferðin eftir
útgáfu Hospice stóð
yfir í tvö ár.2
Jafnréttisviðurkenning 2010
Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviður-
kenningar fyrir árið 2010. Viðurkenningu geta hlotið
einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar
eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa
skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála.
Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs er þema Jafn-
réttisráðs árið 2010. Því verður sérstaklega horft til
þátta sem kynnu að snerta þemað.
Jafnréttisráð vonast eftir tilnefningum sem víðast að
og minnir á nauðsyn þess að vekja athygli á verkum
eða aðgerðum í þágu jafnréttis kvenna og karla og
hvetja þannig til frekari dáða.
Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 15. október n.k.
til Jafnréttisráðs, Borgum, 600 Akureyri, í síma
460 6200, eða tölvupósti jafnretti@jafnretti.is