Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 54
38 30. september 2010 FIMMTUDAGUR38
menning@frettabladid.is
Myndlistarkonan Hrafn-
hildur Arnardóttir sýnir
verk sín á Liverpool-tví-
æringnum, einni stærstu
myndlistarhátíð Vestur-
Evrópu. Undanfarið hefur
hún unnið mikið með hár
og eld, sem eru ráðandi í
innsetningu hennar í Bítla-
borginni.
„Ég hafði heyrt mjög mikið um
þessa virtu hátíð og var því mjög
ánægð þegar mér var boðið að
vera með. Ég setti til að mynda
upp einkasýningu í London á síð-
asta ári og þar á bæ þótti fólki
mikið til þess koma að ég tæki
þátt í Liverpool-tvíæringnum,“
segir Hrafnhildur Arnardótt-
ir myndlistarkona, sem einnig
gengur undir nafninu Shoplifter,
en þessa dagana sýnir hún verk
sín á einni stærstu nútímalistahá-
tíð í Vestur-Evrópu.
Innsetning Hrafnhildar er til
húsa í Novas-center menningar-
setrinu, en þar sýna listamenn
frá löndum á borð við Palestínu
og Litháen verk sín, auk þess sem
öll Norðurlöndin eiga sína fulltrúa
á hátíðinni í svokölluðum Norður-
landaskála. List Hrafnhildar verð-
ur til sýnis fram í desember og á
þeim tíma munu fjöldamargir list-
unnendur leggja leið sína í húsið,
enda hátíðin afar vinsæl víða um
heim.
Hrafnhildur lauk námi frá
Myndlista- og handíðaskóla
Íslands og flutti árið eftir til New
York, þar sem hún stundaði mast-
ersnám í myndlist og hefur alið
manninn síðan. „Ég er mjög lán-
söm því þar er ég með vinnustofu
og hef getað sinnt listinni og sýnt
mjög mikið. Bæði hef ég verið með
einkasýningar víða um heim og
einnig tekið þátt í samstarfsverk-
efnum og fleiru, svo það er alltaf
nóg að gera. Svo vann ég líka hár-
skúlptúr sem Björk Guðmunds-
dóttir var með á umslagi plötu
sinnar Medúlla, sem var mjög
skemmtilegt,“ segir Hrafnhildur.
Eiginmaður Hrafnhildar er
pólskur og eiga þau tvö börn. „Við
förum til Íslands og Póllands á
sumrin og þetta er mikið ævin-
týri.“
Að undanförnu hefur Hrafnhild-
ur unnið mikið með eld og hár, sem
eru ráðandi í innsetningu hennar
á tvíæringnum. „Ég reyni eftir
fremsta megni að búa til hádram-
atísk verk sem má í raun líkja við
óperur,“ segir listakonan. „Það
er erfitt að líkja eftir eldi, en ég
nýti ljósmyndir af glóð og eldi sem
ég tók í Póllandi og prenta svo á
gagnsæjan pappír og klippi til að
ná þessum krafti úr iðrum jarð-
ar sem ég hrífst mikið af,“ segir
Hrafnhildur, en hún kannar einnig
list- og myndræna möguleika hárs
í verkum sínum og notar til þess
bæði mannshár og gervihár. „Ég
nýt þess að vinna á gráu svæði
og fara yfir mörk listgreinanna,“
segir Hrafnhildur.
kjartan@frettabladid.is
Ég reyni eftir fremsta
megni að búa til
hádramatísk verk sem má í
raun líkja við óperur.
FRAMLENGT Í NÝLISTASAFNINU Nýlistasafnið hefur ákveðið að framlengja sýningu á verki Libiu Castro og
Ólafs Ólafssonar, „Lobbyists“, til 9. október. Í verkinu draga listamennirnir upp mynd af þrýstihópum eða lobbíistum við
störf í Brussel og Strassborg þar sem þeir vaka yfir og reyna að hafa áhrif á ákvarðanatöku Evrópusambandsins
Nýútkomið hefti Ritsins er
helgað safnafræðum. Þetta
fyrsta tölublað ársins hefur
að geyma greinar eftir sjö
höfunda sem nálgast söfn frá
ólíkum sjónarhornum. Höf-
undar efnis eru þau Ástráður
Eysteinsson bókmenntafræð-
ingur, Valdimar Tr. Haf-
stein þjóðfræðingur, Loftur
Atli Eiríksson menningarfræðing-
ur, Tinna Grétarsdóttir mannfræð-
ingur, Katla Kjartansdóttir þjóð-
fræðingur og Alma Dís
Kristinsdóttir menntunar-
fræðingur.
Hannes Lárusson, mynd-
listarmaður, er svo með
myndaþátt sem hann nefn-
ir „Doodling“ og leggur þar
út af kroti í skjóli hrunsins.
Ritstjórar heftisins eru þau
Helga Lára Þorsteinsdóttir,
safnafræðingur, og Sigurjón Bald-
ur Hafsteinsson, lektor í safnafræði
við Háskóla Íslands.
Safnafræði í Ritinu
Myndlist: ★★
Níu, samsýning níu lista-
manna í Gerðarsafni
Gerðarsafn
Sýningarstjóri: Birta Guðjóns-
dóttir
Listamennirnir níu sem nú sýna
í Gerðarsafni eiga það sameigin-
legt að hafa útskrifast úr listnámi
á síðustu árum, hér á landi og
erlendis. Nokkur þeirra eru með
MFA-gráðu eða eru í slíku námi.
Algengur námsferill myndlist-
armanna í dag er listnámsbraut
í menntaskóla, síðan þriggja ára
nám við Listaháskólann og loks
tveggja ára MFA-nám erlend-
is, það er misjafnt hvert fólk fer
þá helst. Listnám er síðan að því
leyti frábrugðið öðru háskólanámi
að sían er mjög þröng, aðeins brot
af þeim sem sækja um kemst að í
náminu.
Þessir listamenn sem hér sýna,
Berglind Jóna Hlynsdóttir, Bjarki
Bragason, Etienne de France,
Gunndís Ýr Finnbogadóttir, Helga
Björg Gylfadóttir, Logi Bjarnason,
Páll Haukur Björnsson, Steinunn
Gunnlaugsdóttir og Styrmir Guð-
mundsson, eiga það sameigin-
legt að hafa verið í listnámi eða
við upphaf ferils síns á miklum
umbrotatímum í samfélaginu, þau
hafa fylgst á virkan hátt með því
hugmyndafræðilega hruni sem
átti sér stað og er enn í gangi dag
hvern. Verk þeirra fjalla svo til öll
um samfélag í krísu.
Efnistökin endurspegla fjöl-
breytileika samtímalistarinnar
en fjölbreytnin er ekki til þess
að styrkja sýninguna í heild. Það
er synd, því framtakið er flott og
listamennirnir hver um sig hafa
mikið fram að færa. Þau eru hins
vegar hugsanlega of ólík, og sum
kannski of stutt komin á ferlinum,
til þess að ná að skapa sýningu sem
fangar áhorfandann, hvort sem það
væri hugmyndalega, sjónrænt eða
tilfinningalega. Verkin vinna illa
saman og ná ekki að miðla hug-
myndum þeirra, þær koma betur
fram í vel unninni sýningarskrá.
Eitthvað virkar ekki, kannski er
það uppröðun verka í salina, eða
samsetningin á listamönnum sem
vinna í of ólík efni, þau eru kannski
ekki að sýna sín sterkustu verk,
eða dýnamíkin komst ekki í gang.
Að minnsta kosti er erfitt að ná
sambandi við sýninguna og heild-
in skilur minna eftir sig en hvert
einstakt listaverk. Verkin eru líka
nokkuð tvískipt, þar sem annars
vegar ríkir hugmyndafræði sem
minnir á uppruna hugmyndalistar
í list Joseph Kosuth og ljær sýning-
unni blæ liðins tíma en hins vegar
list sem sækir meira til expressi-
onisma og hrárra efnisaðferða sem
virkja skynjun áhorfandans.
Að öðrum ólöstuðum stendur
verk Helgu Bjargar Gylfadóttur
upp úr á sýningunni, það er gríp-
andi og virkjar rýmið á óvæntan
hátt, skapar mynd, segir sögu og í
því má einnig finna kjarna sýning-
arinnar, hlutskipti íslensku þjóðar-
innar sem velkist um í björgunar-
bát á opnu hafi.
Niðurstaða: Einstök listaverk
eru áhugaverð, framtakið er lofs-
vert en niðurstaðan er brotakennd
heild sem erfitt er að ná sambandi
við.
Brotakennd sýning ungra listamanna
Býr til myndrænar óperur
KRAFTUR Hrafnhildur hrífst af kraftinum í iðrum jarðar og nýtur þess að vinna á gráa
svæðinu milli listgreinanna. Hér er hún við uppsetningu eins verka sinna á Liverpool-
tvíæringnum. FRÉTTABLAÐIÐ/KJARTAN
NÍU ER SAMSÝNING NÍU LISTAMANNA Í
GERÐARSAFNI.
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Arsenikturninn - kilja
Anne B. Ragde
Barnið í ferðatöskunni - kilja
Lene Kaaberbol/Agnete Frills
Kvöldverðurinn - kilja
Herman Koch
Vitavörðurinn - kilja
Camilla Läckberg
Ranghugmyndin um guð
Richard Dawkins
Blóðnætur - kilja
Åsa Larsson
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
22.09.10 - 28.09.10
Borða, biðja, elska - kilja
Elizabeth Gilbert
Þríforkurinn - kilja
Fred Vargas
Eyjafjallajökull
Ari Trausti og Ragnar Th.
Svona á að... Derek
Fagerstrom/Lauren Smith