Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2010 Diesel Pastes trousers Verð: 12.990.- Stærðir: 24-32 Litir: Svartur og army grænn Diesel Livy-biker coated Verð: 15.990.- Litir: Svartur, grár og blár Stærðir: 24-32 Diesel Nevy 8k5 Verð: 16.990.- Litur: Grár Stærðir: 25-32 Moss Verð: 9.990.- Stærðir: xs-XL Litir: Svartur og army grænn Rokkuð kventíska, army-fatn- aður, gallaleggings og -buxur verða allsráðandi í haust og vetur að sögn Guðlaugar Elísu Einarsdóttur, verslunarstjóra Sautján í Kringlunni. „Flottar, klofsíðar kvenbuxur og army-buxur eru að koma sterkar inn, svona eins og army-klæðnað- ur, sem er almennt að ryðja sér til rúms í veröldinni,“ segir Guðlaug Elísa Einarsdóttir, verslunarstjóri hjá Sautján í Kringlunni, innt út í hvað beri hæst í kventískunni um þessar mundir og þá sérstaklega í buxum. Kventískuna í haust og vetur segir hún svolítið rokkaða, army- klæðnaðurinn sé í takt við það. „Í verslunum Sautján kemur slíkur fatnaður frá tveimur vörumerkj- um, annars vegar danska merkinu Punk Real og hins vegar Moss, ís- lenskri línu sem við stelpurnar í Sautján stöndum á bak við.“ Þá segir Guðlaug orðið tíma- bært að taka fram flottar galla- leggings og -buxur. „Við erum með gallabuxur frá tveimur vönduð- um merkjum, ítalska vörumerk- inu Miss Sixty og Diesel. Miss Sixty-gallabuxurnar eru alsett- ar rennilásum, vösum og stötsum og eru satt best að segja svolítið skemmtilega rokkaðar. Frá Dies- el koma svo töff gallaleggins, sem eru milliháar í mittið, með mikilli teygju og eru alveg þröngar niður og fást í nokkrum litum, ljós- og dökkbláu og svörtu með glans- áferð.“ Við gallaleggings frá Diesel segir Guðlaug svo tilvalið að klæð- ast flottum, rokkuðum bol, þykkri peysu og army-jakka eða -kápu utan yfir. Töff toppur, leðurjakki og skór með filterhælum henti hins vegar við gallabuxur frá Miss Sixty, en vel fari á því að klæðast army-jökkum eða þröngum blas- er-jökkum með karlasniði, þykk- um peysum og treflum eða prjóna- hringjum við army-buxurnar. Þá getur Guðlaug þess að einn helsti kosturinn við umrædda kventísku sé að hún henti öllum aldurshópum. „Hér er ekkert verið að flokka konur eftir aldri, fötin eru hreinlega hönnuð með það fyrir augum að klæða sem flestar konur. Og það er skemmti- legt að segja frá því að íslenskar konur á öllum aldri virðast hafa áttað sig á því, þar sem þær hafa verið mjög óhræddar við að prófa fötin í verslunum okkar við Lauga- veg, í Kringlunni og Smáralind.“ Rokkaða army-tísku ber hæst Guðlaug Elísa Einarsdóttir og Tinna Rún Kristófersdóttir í nýjustu tísku í versluninni Sautján í Kringlunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sautján hóf fyrir skemmstu sölu á fatnaði og fylgi- hlutum frá sænska fyrirtækinu 5 Preview sem nýtur mikilla vinsælda á Norðurlöndunum. „Fyrirtækið sérhæfir sig í handprentuðum tísku- fatnaði og fylgihlutum og hefur undanfarið átt í nánu samstarfi við tískufyrirtækið Weekday en þessi fatn- aður er fáanlegur á Norðurlöndunum, meðal annars í okkar verslunum,“ segir Guðlaug Elísa Einarsdótt- ir, verslunarstjóri hjá Sautján í Kringlunni, og getur þess að handprentaðir bolir frá 5 Preview séu eftir- sóttir hérlendis. „Printin á bolunum eru mörg með vísan í helstu tískurisana svo sem Chanel, Chloe og Yves Saint Laurent,“ segir hún og bætir við að með haustinu séu fleiri vörur væntanlegar frá 5 preview, svo sem fylgihlutir og „tank tops“. Handprentaðir bolir og fylgihlutir Guðlaug segir vörur frá 5 Preview njóta mikilla vinsælda á Norðurlöndunum. Nú séu þær loks fáanlegar á Íslandi, í verslunum Sautján.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.