Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 56
30. september 2010 FIMMTUDAGUR
Gospelkór Árbæjarkirkju auglýsir eftir vönu söngfólki í kórinn.
Kórinn er að hefja sitt 13. Starfsár og er einn elsti starfandi
gospelkór landsins. Áhugasamir mæti í Árbæjarkirkju
mánudagana 4. og 11. október nk. kl. 19:00.
WWW.LEIKFELAG.IS
NÆSTA SÝNING
30. SEPT.
Í HOFI
MIÐASALA Á NETINU: LEIKFELAG.IS
NETFANG: MIDASALA@LEIKFELAG.IS
SALA AÐGÖ
NGUMIÐA
Á WWW.LE
IKFELAG.IS
„Hörkushow” Mbl.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 30. september
➜ Tónleikar
20.00 Fimmtudagsforleikurinn í Hinu
húsinu hefst í dag. Nóri verður með gít-
artónleika sem hefjast kl. 20.00. Gengið
inn Austurstrætismegin. Allir velkomnir
og ókeypis inn.
20.00 Í kvöld verða tónleikar með
Skmendanikku og verða flutt ný verk
eftir SLÁTUR-meðlimi. Tónleikarnir eru
haldnir í Útgerðinni, Grandagarði 16,
annarri hæð, og hefjast klukkan 20.00.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur.
21.00 Á Græna hattinum á Akureyri
spilar Hörður Torfa fyrir tónleikagesti frá
kl. 21.00.
22.00 Hlómsveitirnar Gösli, Draum-
hvörf og Tamarin/(Gunslinger) verða
með tónleika í kvöld á Faktorý, að
Smiðjustíg 6. Efri hæðin opnar kl. 21.00
og tónleikarnir hefjast kl. 22.00.
➜ Opnanir
17.00 Opnunarpartý vinnufataversl-
unarinnar Vír, að Grensásvegi 8, verður
haldið í kvöld kl. 17.00. Einnig verð-
ur krýndur „Harðasti iðnaðarmaður
Íslands“. Allir velkomnir.
➜ Hátíðir
Rokktóberfest útvarpsstöðvarinnar X-ins
977 hefst í kvöld. Miðaverð á alla hátíð-
ina er 2.500 krónur. Nánar á www.
xid977.is
➜ Kvikmyndir
17.30 Konfúsíusarstofnunin Norðurljós
sýnir kvikmyndina einn og tveir eftir
Edward Yang í Öskju, stofu 132. Sýning-
in hefst kl. 17.30, er án endurgjalds og
opin öllum.
➜ Málþing
15.00 Bandalag þýðenda og túlka
heldur upp á alþjóðlegan dag þýðenda í
dag með málþingi kenndu við heilagan
Híerónýmus. Málþingið hefst kl. 15 og
verður haldið í Þjóðminjasafninu.
➜ Samkoma
20.30 Sjónvarpslaust fimmtudagskvöld
verður haldið í Slippsalnum í Nema
forum í kvöld. Kristín Hrönn, Kvar, Aðal-
steinn Á. Sigurðsson og Bróðir Svartúlfs
troða upp. Dagskrá hefst kl. 20.30 og
er miðaverð 1.500 krónur, 1.000 krónur
fyrir námsmenn.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.
Tónlistarhópurinn Skmendanikka
sérhæfir sig í að flytja verk fyrir
sértilbúin og heimagerð hljóðfæri.
Í kvöld heldur hópurinn tónleika á
tónlistarhátíðinni Sláturtíð. „Verk-
in eru öll ný og verða frumflutt í
kvöld. Þau eru öll samnin fyrir ný
hljóðfæri og verða flutt af fjölhæf-
um hljóðfæraleikurum sem eiga
það sameiginlegt að hafa lært á
fleiri en eitt hljóðfæri,“ segir Áki
Ásgeirsson tónskáld og forsvars-
maður samtakanna S.L.Á.T.U.R.,
Samtaka listrænt ágengra tón-
smiða umhverfis Reykjavík. Áki
segir tónleikana örugglega verða
upplifun fyrir bæði eyru og augu,
enda hljóðfærin myndræn og
nótnaskriftinni varpað á veggi.
S.L.Á.T.U.R. hefur haldið úti
vinnustofu hljóðfæragerðar og hafa
upp úr þeirri nýsmíð meðal annars
komið hljóðfærin Halldórófónninn
og Airwaves-rörið enda hefur hóp-
urinn „djúpan skilning á því að til
þess að búa til nýja menningu þarf
ný verkfæri,“ eins og segir í til-
kynningu.
Hópinn skipa þeir Frank Aarn-
ink, slagverksleikari, Sturlaugur
Björnsson, fyrrum hornleikari og
bruggmeistari, og Snorri Heim-
isson, fagottleikari og stjórnandi
Lúðrasveitar verkalýðsins. Verkin
eru Halanali eftir Guðmund Stein
Gunnarsson, ónefnt eftir Inga
Garðar Erlendsson, Flipp B og
Find the B-flat eftir Jesper Peder-
sen, T-1 eftir Pál Ivan Pálsson og
Duel eftir Þorkel Atlason.
Tónleikarnir hefjast klukkan níu
í Útgerðinni í Grandagarði. - sbt
Sjónrænir tónleikar
Skmendanikku
HLJÓÐ OG MYND Sex verk eftir fimm tónskáld verða flutt af Skmendanikku í kvöld
SEPTEMBER, örverk um sekt
og sakleysi, verður sýnt í beinni
útsendingu á www.herbergi408.
is kl.12.30 í dag frá Útgerð Hug-
myndahúss háskólanna við
Grandagarð.
Verkið er níunda örverkið af
tólf sem Áhugaleikhús atvinnu-
manna býður áhorfendum upp
á endurgjaldslaust. Í þetta sinn
veltir leikhúsið fyrir sér sekt
og sakleysi þjóðarinnar, hlut-
verki dæmenda og réttlæti dóma.
Áhorfendur geta mætt í Útgerð-
ina eða fylgst með við tölvuna.
Leikstjóri er Steinunn Knúts-
dóttir en leikendur eru Aðalbjörg
Árnadóttir, Árni Pétur Guðjóns-
son, Halldóra Malín Pétursdóttir,
Hannes Óli Ágústsson, Orri Hug-
inn Ágústsson og Sveinn Ólafur
Gunnarsson.
Hákon Már Oddson og útskrift-
arnemar Lista- og fjölmiðlasviðs
Borgarholtsskóla sjá um beinu
útsendinguna.
Verk um sekt
og sakleysi
SEKT OG SAKLEYSI Til umfjöllunar hjá
Áhugaleikhúsi atvinnumanna.