Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 74
 30. september 2010 FIMMTUDAGUR58 golfogveidi@frettabladid.is FL U G A N A F B A K K A N U M Skylda í Aðaldal Lokatölur Á Heildarveiði 2010 Lokatölur 2009 Þverá + Kjarará 3760 2371 Blanda 2777 2413 Norðurá 2279 2408 Langá 2156 2254 Selá í Vopnafirði 2032 1993 Haffjarðará 1978 1622 Laxá í Aðaldal 1493 1117 Hofsá með Sunnudalsá 1186 Vantar Haukadalsá 1174 1107 Elliðaárnar 1164 880 Hofsá í Vopnafirði 1046 1143 Laxá á Ásum 763 1142 Leirvogsá 561 877 Búðardalsá 442 639 Straumfjarðará 355 350 Fljótaá 283 466 Sunnudalsá í Vopnafirði 140 Vantar Heimild: Angling.is Eftir ágætis byrjun á sjóbirtingsslóðum hefur veiðin dottið nokkuð niður í bili. Lítið hefur til dæmis veiðst í Tungufljóti frá því um miðjan mánuðinn. Veiðimönnum sem voru þar á ferð fyrir um tíu dögum sýndist áin nánast fisklaus og aðalgöngurnar hljóta að vera ókomnar. Undanfarið hafa svo stórrigningar gert Tungufljótið og fleiri ár óveið- anlegar. Nú bíða menn eftir að votviðrinu sloti og veislan hefjist. Treg veiði og vatnsflaumur Jafnt utanfélagsmenn sem félags- menn Stangaveiðifélags Reykja- víkur gátu þar til í gær sótt um veiðileyfi í forúthlutun áður en úthlutun verður til félagsmanna einna. Árnar sem eru í forúthlut- un eru Norðurá, Hítará, Laxá í Aðaldal, Laxá í Dölum, Langá, Leirvogsá, Straumarnir og Laxá í Laxárdal og Mývatnssveit. Í forúthlutun fá félagsmenn ekki fimmtungs afslátt eins og venju- lega. Samkvæmt upplýsingum frá SVFR má búast við að unnið hafi verið úr umsóknunum um miðjan júlí. - gar Forúthlutun hjá SVFR: Veiðileyfi í hús eftir tvær vikur Tilraunir sýna að ágætis búsvæði fyrir lax eru ofan við Efri-Foss í Selá í Vopna- firði. Nýr laxastigi lengir fiskgengan hluta árinnar um allt að 20 kílómetra auk þess að opna leið í hliðarána Selsá. Miklar lendur eru að opnast fyrir laxveiðimenn með nýjum laxastiga við Efri-Foss í Selá, einni bestu veiðiá landsins. Þórólfur Antonsson, fiskifræð- ingur hjá Veiðimálastofnun, segir að mörg ár í röð hafi kynþroska laxi verið sleppt ofan við Efri-Foss til að athuga hvernig til tækist. „Við fundum klak strax og síðan seiðin árgang eftir árgang þannig að þetta tókst mörg ár í röð og seið- in höfðu dafnað vel þannig að það þótti einsýnt að það mætti nýta að minnsta kosti töluverðan hluta af þessu svæði til uppeldis á seið- um,“ segir Þórólfur um þá vinnu sem lagt var í áður en afstaða var tekin til hvort hagkvæmt væri að gera laxastigann. Við gerð laxastigans var beitt stórum meitli og stiginn höggvinn út í bergið í fossinum sjálfum í stað þess að steypa hann upp úr aðflutt- um efnum. Laxar tóku þegar að streyma upp fyrir foss. Áin leng- ist um allt að tuttugu kílómetra, auk þess sem hliðaráin Selsá, sem rennur í Selá rétt ofan við Efri- Foss er viðlíka löng og viðbótin. Þórólfur segir útlit fyrir að góð búsvæði séu fyrir seiði í báðum ánum. „Það verða strax á næsta ári til- raunastangir á þessu svæði til að skoða hvernig það kemur út. Svæð- ið þarf sinn tíma til að mettast af seiðum og því líklegt að mestu eða öllu sem veiðist verði sleppt til að byrja með til að fá hringrásina í gang,“ segir Þórólfur sem aðspurð- ur kveður það vera veiðifélagsins að ákveð og sækja síðan um hversu margar stangir verði leyfðar á nýju svæðunum. „Það verður kannski ekki sambærilegur stangafjöldi við neðra svæðið til að byrja með en guð má vita hvað verður í fram- tíðinni.“ Staðbundinn urrriði hefur verið ofan við Efri-Foss. Þórólfur segir ekki sérstaka úttekt hafa verið gerða á þeim stofni. „En það er ekki þannig að það sé hægt að ímynda sér að það sé mikið af honum sem nái veiðanlegri stærð,“ segir Þór- ólfur. Þess má geta að smátt og smátt hefur verið byggt við veginn við Selá og nær hann nú töluvert upp fyrir foss meðfram ánni og að svo- kölluðu Mælifellsvaði. Selá var áður fiskgeng í 28 kílómetra. Nú verður aðaláin upp undir 50 kílómetrar auk þess sem Selsá er fiskgeng allt að 20 kílómetra. gar@frettabladid.is Laxastigi lengir veiðiperlu EFRI-FOSS Nýi laxastiginn var höggvinn með stórvirkum meitli í bergið við bakkann sem er til hægri á myndinni. Strax og stiginn var fær sáu menn laxa ganga þar upp í torfum. MYND/ÞÓRÓLFUR ANTONSSON Night Hawk er frábær fluga og ein af uppáhaldsflugum margra veiðimanna. Hún gefur veiði allt tímabilið. Flugan er upphaflega hönnuð við ána Restigouche í kringum 1890. Þeir sem fara til veiða í Aðaldalnum segja nánast skyldu að eiga Night Hawk í boxinu. LÖXUM hafði verið landað fyrir um viku sam- kvæmt tölum Landssambands veiðifélaga.34.35065% Það trúa því fæstir þegar frá því er sagt að einn veiðistaður í Ytri-Rangá gaf 2.100 laxa metveiðisumarið 2008. Það sumar gáfu reyndar fjórir veiðistaðir yfir þúsund laxa. Staðurinn sem um ræðir eru Rangárflúðirnar sem Stefán Páll Ágústsson, hjá Lax-á, lýsir svo: Það er stór hólmi sem nær alla leið frá flúðunum og niður að Ægis- síðufossi. Veiðistaðurinn byrjar í raun við efsta oddann á þessum hólma, aðalveiðistaðurinn byrjar þar rétt fyrir ofan. Það má segja að þetta sé einn samfelldur veiðistaður upp að veiðimörkum því fiskur getur einnig legið utan í sand- og malarkambi sem liggur niður að flúðunum. Mest af fiski liggur neðarlega á broti í flúðunum sjálfum. Það eru engar ýkjur að mikill fiskur liggi þarna mestallt sumarið. Ásamt Ægissíðufossi og Klöppinni er þetta sterkasti staðurinn í ánni og oftar en ekki aflasælasti veiðistaðurinn í íslenskum ám hvert sumar. Þarna er veitt með sökkenda og túpum. Það er misskilningur að þær þurfi að vera mjög stórar og þungar. Oft gengur best að nota léttar plasttúpur. Það sem þarf að varast þegar komið er að flúðunum í fyrsta skipti er að vaða of mikið. Margir gera þau mistök að vaða of nærri flúðinni sjálfri. Fiskur getur legið víða og því borgar sig að veiða vel á undan sér. Á myndinni sést veiðimaður við veiðar ofan við Flúðirnar – menn vinna sig svo niður á brot fyrir ofan hólmann. Veiðistaðurinn - Rangárflúðir í Ytri-Rangá VEIDDRA laxa í Svartá í sumar voru 7 pund eða þyngri. KÓNGURINN Hér hafa veiðst 700 til rúmlega 2.000 laxar á undanförnum tíu árum. MYND/LAX-Á NIGHT HAWK MYND/VEIÐIFLUGUR.IS Tillaga stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs um að tak- marka umferð ökutækja og veiðar fara illa í skot- veiðimenn. Þeir hyggjast taka þátt í mótmælum í Vonarskarði á laugardag. „Veiðimenn eru hluti af almenningi og hafa jafnan rétt á við aðra,“ segir félagið Skotvís. Skotveiðimenn mótmæla í Vonarskarði VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 HVAR ER RÉ TTI HYLURIN N? HVER ER RÉTTA FLU GAN? VEIÐ IPERLUR ER NÝR ÞÁTTU R ALLA FIMM TUDAGA Á STÖÐ 2 SPO RT ÞAR SEM FYLGST ER MEÐ ÞAUL REYNDUM STANGVEIÐ IMÖNNUM AUK ÞESS S EM VALINK UNNIR MAT REIÐSLUME ISTARAR TÖFRA FRA M VEISLURÉ TTI ÚR VEIÐ INNI. UMSJ ÓN HAFA GUÐ NÝ HELGA HE RBERTS- DÓTTIR OG AT LI BJÖRN BRA GASON. ÞÆTTIRNIR ERU GERÐ IR Í NÁNU S AMSTARFI VIÐ STJÓRN SÝSLU ÍSLA NDS, UMHV ERFISRÁÐU NEYTIÐ, VE IÐIMÁLAST OFNUN, VEÐURSTO FU ÍSLAND S OG ORKU VEITU REYK JAVÍKUR, Á SAMT SVEI TA- OG BÆ JARSTJÓRN UM VÍÐSVE GAR UM LA NDIÐ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.