Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 30. september 2010 3
Franska tískutímaritið Vogue fagnar níutíu ára afmæli sínu með útkomu sex hundruð síðna blaðs sem meðal annars fylgir fjöldi stórra mynda sem hægt er að ramma inn. Af sama tilefni var á síðasta ári haldin sýning á Champs-Elysée-breiðgötunni þar
sem sýndar voru eftirprentanir af nærri 90 ára forsíðusögu tímarits-
ins, einu ári fyrir afmælið sem verður að teljast sérkennilegt.
Þessi biblía frönsku tískunnar hefur að sjálf-
sögðu tekið miklum breytingum á þessum tíma.
Strax frá upphafi árið 1920 voru forsíður Vogue
vitnisburður um samtímann þar sem þær voru
í anda þess helsta sem einkenndi samtímalist á
þessum tíma allt fram að seinni heimstyrjöld-
inni. Oft voru þetta teikningar listamanna eins og
Pierre Roy, Georges Lepage eða Edouardo Benito.
Eftir stríð eru það ljósmyndararnir sem taka við
og listinn er langur, allt frá Doisneau til Mondino,
Mario Testino, David Bailey og svo mætti áfram
telja. Bailey átti meira en hundrað forsíðumyndir
hjá Vogue en það er franska leikkonan Catherine
Deneuve sem hefur oftast prýtt forsíður blaðs-
ins, hvorki meira né minna en fjörutíu sinnum. Á eftir fylgja svo
Brigitte Bardot, Sophia Loren, Marilyn Monroe og Grace Kelly.
Á sjötta og sjöunda áratugnum breytist blaðið í takt við tímann og
það umbrotaskeið sem gekk yfir og myndirnar um leið. Smám saman
sést meira hold og naktar fyrirsætur skjóta upp kollinum.
Árið 1969 er það Guy Bourdin sem tekur frægar myndir af Fran-
çoise Sagan fyrir desemberblaðið en þessi efnisþáttur verður svo fast-
ur liður og ekki ómerkilegri gestir en Hitchcock, Salvador Dali, Roman
Polanski, Marlène Dietrich og jafnvel Nelson Mandela og Dailai Lama
fylgja í kjölfarið. Þessi eintök Vogue eru að sjálfsögðu fyrir löngu
ófáanleg og seljast dýru verði á netinu, ekki síst jólablaðið 1992 með
Dalai Lama.
Á árunum fyrir og eftir 2000 var Tom Ford vinsæll hjá Gucci og
svo seinna hjá Yves Saint Laurent en þá komst hið svokallaða porno-
chic í tísku bæði í auglýsingum og myndatökum og því miður verður að
segjast eins og er að afmælisritið er töluvert undir þessum áhrifum og
reyndar ótrúlegt að varla er nokkuð að finna í afmælisútgáfunni sem
er eldra en frá sjöunda áratug síðustu aldar þó tímaritið fagni 90 árum.
Reyndar, þegar betur er að gáð, er nærri helmingur þessara sex hundr-
uð blaðsíðna auglýsingar, sem reyndar einkennir flest tískurit í dag. Á
sama tíma er listin nánast horfin af síðum blaðsins. bergb75@free.fr
Samtímasaga tískunnar í níutíu ár
Dolce & Gabbana frumsýndu
fágaða brúðarkjólalínu sína
fyrir vorið 2011.
Nýjasta lína tískutvíeykisins
Dolce & Gabbana var frum-
sýnd um síðustu helgi og gat
þar að líta brúðarkjólalínu
fyrir vorið 2011. Línan, sem var
nánast öll í hvítu, var fáguð, en
þrátt fyrir að vera í lit skírlíf-
isins voru kjólarnir kynþokka-
fullir og langt frá því að vera
sakleysislegir. Línan saman-
stóð af bæði síðum og stuttum
blúndukjólum, híalínssloppum
og nærbuxum auk prjónaðra
bómullarkjóla sveipuðum fín-
legum ljóma. Tvíeyk-
ið lagði mikið upp
úr því að kjólarnir
nytu sín til fullnustu
og því var lítið
um glingur eða
glys í þessari
vorlínu Dolce &
Gabbana. Línan
var rómantísk
og látlaus og
voru fyrirsæt-
urnar lítið
skreyttar,
með hárið
greitt
aftur í kæru-
leysislegum
stíl og náttúru-
leg fegurð þeirra
skein í gegnum
lítinn farða. - jba
Rómantík
og fágunÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Kjólarnir voru bæði
stuttir og síðir.
Fyrirbærið ofurfyrirsæta kom fyrst upp
á níunda áratugnum, en orðið merkir
konulíkama með X-lögun og ótrúlega
hæfileika til að fara í alls konar
gervi.
Heimild: Tíska aldanna