Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 72
30. september 2010 FIMMTUDAGUR
HANDBOLTI Íslandsmeistarar Vals
urðu í gær meistarar meistaranna
eftir sigur á bikarmeisturum Fram
í Meistarakeppni HSÍ, 25-23. Fram
hafði þó forystu í hálfleik, 12-10.
Í raun kom á óvart að forysta
Fram var ekki meiri í fyrri hálf-
leik en þá fór Íris Björk Símon-
ardóttir markvörður á kostum
og varði fimmtán af 24 skotum í
leiknum.
Þetta nýtti Valsstúlkur sér og
eftir að hafa náð að þétta varn-
arleikinn tóku þær fljótlega völd-
in og voru lengst af yfir þó svo að
sigurinn hafi ekki verið tryggður
fyrr en í blálokin.
„Þetta var betra í seinni hálf-
leik hjá okkur,“ sagði Ágústa Edda
Björnsdóttir, Val. „Við gerðum
mikið af mistökum í fyrri hálfleik
en þannig vill það líka oft vera í
leikjum þessara liða enda hart bar-
ist. En sem betur fer fyrir okkur
voru úrslitin góð.“
Einar Jónsson, þjálfari Fram,
tók út leikbann í gær en leist held-
ur illa á það sem hann sá. „Þetta
var ekki rismikið í kvöld, sérstak-
lega hjá mínu liði. Valur átti ein-
faldlega skilið að vinna. Þær voru
tilbúnar og börðust fyrir sigrin-
um.“ - esá
Meistarakeppni HSÍ í kvennaflokki fór fram í gær:
Sá fyrsti fór til Vals
ÁTTA MÖRK Hrafnhildur Skúladóttir lék
vel með Val í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson,
þjálfari A-landsliðs karla, vill ekki
tjá sig í fjölmiðlum um ákvörðun
stjórnar KSÍ að láta U-21 landslið
ganga fyrir í leikmannavali fyrir
verkefnin sem fram undan eru í
október. U-21 liðið mætir þá Skot-
um í umspili um hvort liðið kom-
ist í úrslitakeppni EM. Um svipað
leyti mætir A-landsliðið Portúgal í
undankeppni EM 2012. Ólafur var
sagður ósáttur við ákvörðunina af
Geir Þorsteinssyni, formanni KSÍ,
en hann sagðist sjálfur ekki vilja
tjá sig um málið þegar Fréttablað-
ið leitaði viðbragða hans. Hann
staðfesti þó að hann myndi stýra
liðinu gegn Portúgal. - esá
Ólafur Jóhannesson:
Neitar að tjá sig
ÓLAFUR Er sagður ósáttur við ákvörðun
stjórnar KSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson átti tvo
ása upp í erminni í 1-0 sigri Val-
encia á Spáni í gær. Ferguson setti
inná unglingana Javier Hernández
og Federico Macheda sem bjuggu
til sigurmarkið á 85. mínútu.
Manchester United fór eins og
oft áður áfram á skynsemi og þol-
inmæði á útivelli í Meistaradeild-
inni og refsuðu síðan spænska lið-
inu á frábærri skyndisókn í lokin.
Federico Macheda var nýkominn
inn á völlinn og átti góða sendingu
inn á Javier Hernández sem skor-
aði með frábærri afgreiðslu.
„Þetta eru frábær úrslit fyrir
okkur. Það er ekki auðvelt að koma
hingað og við erum mjög ánægð-
ir með sigurinn,“ sagði Sir Alex
Ferguson, stjóri Manchester Unit-
ed. „Varamennirnir komu með
kraft og hraða inn í leikinn og það
reyndist okkur vel,“ sagði Fergu-
son.
„Það er mjög erfitt að vinna á
Spáni og okkur tókst það í dag.
Þetta er góður sigur fyrir sjálfs-
traustið,“ sagði Rio Ferdinand sem
spilaði við hlið Nemanja Vidic í
vörn Manchester United í leikn-
um.
Tottenham er með jafnmörg
stig og Inter Milan í A-riðli.
Tottenham vann 4-1 sigur
á Twente í viðburðarrík-
um leik á White Hart
Lane þar sem tvö víti frá
Rússanum Roman Pav-
lyuchenko áttu mestan
þátt í að tryggja læri-
sveinum Harry Red-
knapp sinn fyrsta
sigur í Meistara-
deildinni.
Rafael van der
Vaart fékk að upp-
lifa allan tilfinn-
ingaskalann í leikn-
um en Hollendingurin
var rekinn út af á 61.
mínútu og kórónaði með
því ótrúlegan leik því
hann hafði áður látið verja
frá sér vítaspyrnu í lok fyrri
hálfleiks og skoraði síðan
frábært mark í upphafi þessi
síðari.
„Ég var hræddur um að við
myndum ekki vinna leikinn
eftir að ég fékk rauða spjald-
ið en strákirnir í liðinu spiluðu
frábærlega. Þetta var mjög
skrýtinn leikur fyrir mig og að
upplifa þetta allt í sama leikn-
um. Ég hef aldrei spilað svona leik
áður,“ sagði Rafael van der Vaart
eftir leikinn.
Samuel Eto’o skoraði þrennu og
lagði upp það fjórða fyrir Wesley
Sneijder í glæsilegum 4-0 sigri
Inter Milan á Werder Bremen.
Danirnir í FC Kaupmannahöfn
eru einir í efsta sæti D-riðilsins
eftir 2-0 sigur á Panathinaikos í
Grikklandi. Barcelona náði hins
vegar aðeins 1-1 jafntefli á móti
Rubin Kazan í Rússlandi en
það dugði ekki að Lionel
Messi spilaði síðasta hálf-
tímann.
ooj@frettabladid.is
Man. United vann í Valencia
Javier Hernández tryggði Manchester United 1-0 sigur á Valencia á Spáni í gær
og Tottenham vann sinn fyrsta sigur í Meistaradeildinni.
JAVIER HERN-
ÁNDEZ
Fagnar hér
miklvægu
sigurmarki sínu
í gær.
A-riðill: Tottenham-Twente 4-1
1-0 Raphael van der Vaart (47.), 2-0 Roman
Pavlyuchenko, víti (50.), 2-1 Nacer Chadli (56.),
3-1 Pavlyuchenko, víti (64.), 4-1 Gareth Bale (85.)
A: Inter-Werder Bremen 4-0
1-0 Samuel Eto’o (22.), 2-0 Samuel Eto’o (27.),
3-0 Wesley Sneijder (34.), 4-0 Eto’o (81.)
Stig: Inter 4, Tottenham 4, Twente 1, Bremen 1.
B: Hapoel Tel Aviv-Lyon 1-3
B: Schalke 04-Benfica 2-0
Stig: Lyon 6, Schalke 3, Benfica 3, Hapoel 0
C: Valencia-Manchester United 0-1
0-1 Javier Hernández (85.)
C: Rangers-Bursaspor 1-0
1-0 Steven Naismith (18.)
Stig: United. 4, Rangers 4, Valencia 3, Bursapor 0.
D: Panathinaikos-FC Kaupmannahöfn 0-2
0-1 Dame N’Doye (28.), 0-2 Martin Vingaard (37.)
D: Rubin Kazan-Barcelona 1-1
1-0 Noboa, víti (30.), 1-1 David Villa, víti (60.)
Stig: FCK 6, Barca 4, Rubin 1, Panathinaikos 0
MEISTARADEILD
HANDBOLTI Haukar lentu ekki í
miklum vandræðum með Val í
opnunarleik N1-deild karla í gær-
kvöldi. Íslandsmeistararnir unnu
öruggan sigur, 30-26, þó loka-
tölurnar virðist gefa annað til
kynna.
Hafnfirðingar léku af miklum
krafti í fyrri hálfleik og þar fór
fremstur í flokki Björgvin Hólm-
geirsson sem gerði sér lítið fyrir
og skoraði tíu mörk en hann var
alls með tólf í leiknum. Hann gaf
einnig mikið af línusendingum inn
á Heimi Óla Heimisson en saman
skoruðu þeir sextán af 20 mörkum
Hauka í fyrri hálfleik.
Það var því ekki hátt risið á
varnarleik Valsmanna í fyrri hálf-
leiknum en þeir réðu ekkert við
hraðan sóknarleik Haukanna sem
náðu sjö marka forystu í leikhléi,
20-13.Það munaði einnig miklu um
innkomu Arons Rafns Eðvarðsson-
ar sem kom inn á snemma í fyrri
hálfleik
Það var í raun meira af því sama
í síðari hálfleik. Valsmenn réðu
lítið við sóknarleik Hauka sem
dreifðist nú á fleiri menn. Það var
ekki fyrr en um miðbik hálfleiks-
ins að Ingvar Guðmundsson hrökk
í gang í Valsmarkinu og heima-
menn náðu að minnka muninn í
fjögur mörk en nær komust þeir
ekki. „Við vorum komnir með tíu
marka forystu í byrjun seinni hálf-
leiks og það gekk í raun allt upp hjá
okkur fram að slæma kaflanum,“
sagði Halldór Ingólfsson, þjálfari
Hauka. „Það er mikilli vilji í lið-
inu en það er mikil barátta fram
undan enda jöfn deild.“
Valsmenn virðast eiga nokkuð
í land með að stilla saman sína
strengi fyrir átök vetrarins en
að sama skapi virka Haukamenn
mjög sterkir. Liðið er ungt en hæfi-
leikarnir leyna sér ekki. - esá
N1-deild karla hófst í gær með stórslag í Vodafone-höllinni að Hlíðarenda:
Meistararnir gáfu tóninn
KOMUST LÍTIÐ ÁLEIÐIS Sturla Ásgeirsson
og félagar í Valsliðinu töpuðu í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL