Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 67

Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 67
FIMMTUDAGUR 30. september 2010 51 Tom Waits, Beastie Boys, Bon Jovi og Alice Cooper eru á meðal þeirra sem hafa verið tilnefndir í Frægðarhöll rokksins. Meira en fimm hundruð manns úr banda- ríska tónlistarbransanum taka þátt í valinu og verður ákvörð- un þeirra tilkynnt í desember. Athöfnin fer fram í mars á næsta ári í New York. Á meðal ann- arra tilnefndra voru rapparinn LL Cool J, Neil Diamond, Don- ovan, og Donna Summer. Til að vera gjaldgengir í Frægðarhöll- ina þurfa 25 ár að hafa liðið síðan flytjendur gáfu út sína fyrstu smáskífu. Þess má geta að fyrsta smáskífa Tom Waits kom út árið 1973, eða fyrir 37 árum. Waits með tilnefningu Í FRÆGÐARHÖLLINA Tónlistarmaðurinn Tom Waits er á meðal tilnefndra. Hljómsveitin Sing For Me Sandra hefur sent frá frá sér sína fyrstu plötu, Apollo´s Parade. Sing For Me Sandra kemur úr Reykjavík, Kópa- vogi og Garðabæ og hefur verið starfandi frá árinu 2006. Hún vakti fyrst athygli í fyrra með sínu fyrsta smáskífulagi, The Fight. Lagið fékk góðar undirtektir og náði meðal annars á vinsældalista X-ins og Rásar 2. Næst á eftir kom smáskífu- lagið Time Will Tell sem fékk einn- ig góð viðbrögð. Meðlimir Sing For Me Sandra eru Helgi Einarsson á trommur, Jón Helgi Hólmgeirsson sem spil- ar á gítar og syngur, Ragnar Már Jónsson á gítar, Þorkell Helgi Sig- fússon gítarleikari og söngvari og Örn Ýmir Arason spilar á bassa og syngur. Nánari upplýsingar um sveitina má nálgast á Recordrec- ords.is/singformesandra. Fyrsta plata Söndru SING FOR ME SANDRA Hljómsveitin hefur sent frá sér sína fyrstu plötu. Margir halda að leikkonan Jenni- fer Aniston sé að velta sér upp úr fortíðinni með eiginmannin- um fyrrverandi, Brad Pitt, en svo er ekki. Aniston lýsir söngvar- anum John Mayer sem stóru ást- inni í lífi sínu og er að sögn vina með hann á heilanum. Leikkonan hefði ekkert á móti því að byrja með Mayer þótt níu ár séu á milli þeirra. Ekki fylgir sögunni hvað Mayer vill en parið sást saman á tónleikum á dögunum. Jen þráir Mayer aftur BÚIN AÐ GLEYMA PITT Jennifer Aniston tekur söngvarann John Mayer fram yfir eiginmanninn fyrrverandi, Brad Pitt. NORDICPHOTOS/GETTY Bandarísk ungmenni taka vampíruæðið sem ríður yfir heiminn alvarlega og eru byrjuð að bíta hvert annað og sjúga blóðið. Þetta furðulega og hættu- lega æði kemur í kjölfar vinsælda Twilight-kvik- myndanna og bókanna og þátta á borð við True Blood. Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum hafa lýst yfir áhyggjum vegna tískubylgjunnar meðal ann- ars vegna smithættu. Þá segir Dr. Thomas Abs- hire, krabbameins- og blóðsérfræðingur að mikil hætta skapist þegar bitið er til blóðs vegna þess að munnur manna er „miklu skítugri en t.d. munnar hunda og katta.“ Dr. Orley Avitzur bætir við: „Þessir krakkar halda að þeir séu vampírur.“ Hann efast ekki um að tískubylgjan komi í kjölfar Twiligt-myndanna. „Þessar táningsvampírur eru settar á háan stall og gerðar aðlaðandi og kynþokkafullar. Þessu er svo öllu blandað saman í pott með losta.“ Halda að þau séu vampírur BLÓÐÞORSTI Bandarísk ungmenni eru byrjuð að herma eftir Twilight-myndunum. BIOTHERM DAGAR Í DEBENHAMS 30. SEPTEMBER TIL 6. OKTÓBER Kaupaukinn þinn* þegar þú kaupir Biotherm vörur fyrir 6.900 krónur eða meira: - Eau de Paradis ilmur 15 ml – kvenlegur og munúðarfullur ilmur - Huile de Douche 75 ml sturtusápa með 3 náttúrulegum olíum sem hreinsa, næra og gefa silkiáferð. - Baume Corps 75 ml nærandi líkamskrem með aprikósuolíu. - Aquasource Eye Perfection augngel með nuddkúlum sem örva blóðrásina 4 ml. - Biomains handáburður 20 ml. Fjöldi tilboða m.a. Aquasource rakakrem 30 ml 1.990 kr., Skin Vivo krem 30 ml 3.990 kr., herrakrem 40 ml 2.590 kr. Einnig aðrar gerðir kaupauka með andlitskremum. *M eð an b irg ði r en da st á k yn ni ng un ni . E in n ka up au ki á v ið sk ip ta vi n.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.