Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 66
50 30. september 2010 FIMMTUDAGUR Bandaríkjamaðurinn Austin Lucas er mættur til landsins og hyggst koma fram á fernum tón- leikum. „Hann er rísandi stjarna í þessum svokallaða „alt country“ bransa,“ segir Egill Kári Helga- son, sem flytur kappann inn. „Pabbi hans, Bob Lucas, hefur meðal annars unnið mikið með Alison Krauss.“ Lucas kemur fram á Café Ros- enberg í kvöld og á Dillon á morg- un. Á laugardaginn kemur hann fram á Vatnssafninu í Stykkis- hólmi og á sunnudaginn kemur hann fram á Langa Manga á Ísa- firði. „Bæði Reykjavíkurgiggin verða með Árstíðum, Svavari Knúti, og bluegrass bandinu Woodcraft,“ segir Egill. „Stykkishólmsgigg- ið verður sérstakt að því leyti að hljómsveitirnar Endless Dark af Snæfellsnesinu og Reason To Believe úr Keflavík munu koma fram órafmagnaðar. Einnig munu tónleikarnir verða hljóðritaðir og gefnir út seinna“ SPILAR MEÐ LUCAS Hljómsveitin End- less Dark kemur órafmögnuð fram með Austin Lucas um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Austin Lucas á Íslandi Hinn bráðfyndni Seth Rogen og kærastan hans til sex ára, leik- konan Lauren Miller, trúlofuðu sig í síðustu viku. Eftir að Rogen fór á skeljarnar héldu þau til Boston þar sem þau fögnuðu í faðmi fjölskyldunnar. Heimildarmaður tímaritsins Life & Style segir að Miller hafi verið farin að gefa upp vonina um að Rogen myndi setja hring á fingur hennar. „En fjölskylda hennar dáir hann og er mjög spennt fyrir því að skipuleggja brúðkaup,“ segir hann. Rogen hefur lítið tjáð sig um einkalíf sitt en hefur engu að síður látið hafa eftir sér að hann eigi kærustu sem sé miklu sætari en hann eigi skilið. Seth Rogen trúlofaður TRÚLOFUÐ Seth Rogen segir að unn- ustan Lauren Miller sé allt of sæt fyrir hann. Leikarinn Shia LaBeouf segir að frægð sín hafi orðið til þess að hann styrkti sambandið við föður sinn Jeffrey. LaBeouf missti sam- bandið við föður sinn í nokkur ár eftir að foreldrar hans skildu en núna hefur orðið breyting þar á. „Pabbi var aldrei til staðar vegna þess að hann var að reyna að selja eiturlyf til að framfleyta okkur. Mamma var heldur ekki til stað- ar vegna þess að hún reyndi að selja bæklinga í garðinum til að halda okkur á floti,“ sagði leikar- inn. „Þau höfðu aldrei tíma fyrir hvort annað og þau hættu að vera ástfangin. Það eyðilagði líf mitt í langan tíma. Ég er ekki sá fyrsti sem gengur í gegnum svona lagað en ég kenndi sjálfum mér um þetta.“ Hann segir að frægðin sem hann öðlaðist fyrst árið 2000 hafi orðið til þess að faðir hans hafði aftur samband við hann. Hittir pabba á ný SHIA LABEOUF Leikarinn segir að frægð sín hafi styrkt samband sitt við föður sinn. Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hefur útskýrt hvers vegna hún fór í botox-aðgerð í sjónvarpsþætti sínum. Hún hafði áður haldið því fram að konur á hennar aldri þyrftu ekki á slíku að halda. „Ég var ekki ánægð með útkomuna,“ sagði hún. „En ég verð þrítug á þessu ári. Ég var stressuð út af því og þetta langaði mig að prófa einhvern tímann. Ég ákvað að sýna hvað ég myndi þurfa að ganga í gegn- um. Niðurstaðan var samt að ég var ekki ánægð með þetta og ég held að þetta hafi verið röng ákvörðun hjá mér. Fólk þarf í rauninni ekki að gera svona lagað.“ Óánægð með bótoxið KIM KARDASHIAN Var óánægð með botox-aðgerðina sína.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.