Fréttablaðið - 30.09.2010, Síða 42

Fréttablaðið - 30.09.2010, Síða 42
 30. SEPTEMBER 2010 FIMMTUDAGUR Kaky buxur Fást einnig í gráu og svörtu Verð 14.990 DND Fást í nokkrum litum Verð 17.990 Suit Fást einnig í ljósari bláum og gráum lit. Verð 14.990 Suit Fást einnig í dökkbláum og gráum lit. Verð 14.990 ORGINAL ORGINAL ORGINAL ORGINAL Tískan í gallabuxum í vetur er afar fjölbreytt og gallabuxur eru til í miklu úrvali hjá Orginal fyrir bæði kynin. Kvensniðin eru sem fyrr segir kvenleg og eiga að draga það besta fram hjá konum. „Yngra fólk er oftar en ekki til í að prófa eitthvað nýtt og taka þá buxur með meiri smáatriðum, snjáðar og rifnar og þetta alveg niðurþrönga snið er sömuleiðis að höfða mikið til yngra fólksins. Við erum með hágæða dönsk merki og þessar buxur sem við bjóðum upp á eru til dæmis þær vinsælustu í Danmörku,“ segir Unnur Erlendsdóttir í Orginal. Merkin sem seld eru hjá Orginal eru Minimum, DND, Suit og Psycho Cowboy og Frank Q. Buxurnar eru einnig allar mjög þægilegar en viðskiptavinir leggja flestir mikið upp úr því að gott sé að vera í buxunum að sögn Unnar. Verslunin Orginal í Smáralind er með breitt úrval af herra- og dömubuxum fyrir veturinn, gallabuxur í öllum litum, leggings, kakíbuxur, fínni gerðir og fleira til. Að sögn Unnar Erlendsdóttur, verslunarstjóra Orginal, er mikið lagt upp úr því að starfsfólk verslunarinnar Orginal geti aðstoðað viðskiptavini við valið, fundið hentugt snið og geti lesið í hvernig smekk viðkomandi hefur. „Við erum með allar mögulegar gerðir af buxum fyrir dömur og herra. Gal labuxurnar okkar njóta stöðugra vinsælda sem og til dæmis kakíbuxur, hermannabuxur, hefðbundnar leggings og gallabuxnaleggings og svo buxur fyrir sérstök fínni tilefni,“ segir Unnur. Herra-gallabuxur í vetur eru að sögn Unnar margar hverjar með beinu sniði eða niðurþröngu en þau tvö snið hafa notið mikilla vinsælda undanfarið. „Gallabuxna- tískan er að vísu mjög fjölbreytt og margt í gangi þar. Dekkri buxurnar, bláar, svartar og gráar eru alltaf vinsælar enda hægt að nota þær við mismunandi tilefni og svo eru margir sem vilja hafa þær eitthvað smá rifnar eða þvegnar sem hentar þá betur hversdags. Svokallað búddasnið, sem er með síðu klofi og þrengjast að neðan, á svo sérstaklega upp á pallborðið hjá yngri strákunum og við eigum þær buxur í öllum litum.“ Aðra bux nategund frá Minimum nefnir Unnur einnig en þær þykja sérstaklega þægilegar, eru þröngar og fást í svörtu og gráu. Unnur segir að gallabuxur séu að koma sterkar inn í vetur í kventískunni eftir að leggings hafi tröllriðið markaðinum undanfarin ár. „Kvenleg gallabuxnasnið virðast vera að koma sterk inn í vetur og sömuleiðis er hermannatískan að verða vinsæl á ný með buxum sem eru háar og þröngar upp í mittið, aðeins víðar í klofinu og þröngar niður. Leggings eru þó að sjálfsögðu áfram til staðar og eru til í miklu úrvali hjá okkur. Orginal er ein Fjölbreytt snið og litir „Við erum með allar mögulegar gerðir af buxum fyrir dömur og herra. Gallabuxurnar okkar njóta stöðugra vinsælda,“ segir Unnur Erlendsdóttir, verslunarstjóri hjá Orgin- al í Smáralind. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Tískustraumar í vetur Orginal selur nokkur af vinsælustu buxnamerkjum Danmerkur.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.