Morgunn - 01.06.1929, Blaðsíða 133
M 0 R GU N N
123
ins“, segir máltækið. En málið hefði lítið komist áfram,
ef ekki hefðu verið atvinnumiðlar. Þroskun miðilshæfi-
leikanna og miðilsstarfið alt krefst mikils, og fæstir geta
varið til þess þeim tíma og kröftum, sem þörf er á, end-
urgjaldslaust. Auðvitað hafa verið til stórmerkir miðlar,
sem ekki hafa verið atvinnumiðlar. En þeir eru fáir. Það
eru atvinnumiðlarnir, sem að langmestu leyti hafa sann-
fært menn. Höf. getur enga sjálfstæða þekking haft af
meðvitundarástandi þeirra, þar sem hann hefir til einskis
þeirra komið. Afkoma þeirra er ekki komin undir því,
sem höf. talar um, heldur undir því, hvernig þeim tekst
að koma með sannanir. Og árangurinn er alls ekki að
sjálfsögðu kominn undir því, hvort miðillinn fer í sam-
bandsástand. Sumir ágætustu miðlarnir hafa ekki farið
í sambandsástand og fengið hinn áreiðanlegasta og
glæsilegasta árangur. Svo ekki er mark takandi á því,
sem höf. segir um þetta efni. Hann talar þar auðsjáan-
lega ekki af þekking. En að öðru leyti er bókin góð.
„ ,, „ Arthur Ford heitir prestur einn í New
Arthur Ford ^ , .
og skeytið frá York- Hann er nafnkunnur skygni- og
móður Houdinis. glöggheyrni-miðill. Nýlega hefir hann
ferðast um ýmis lönd Norðurálfunnar,
og hvarvetna hefir ])ótt mikið til hæfileika hans koma.
Fyrir nokkru fékk hann við eina tilraun sína skeyti frá
veru, sem tjáði sig vera móður Houdinis heitins, hins
nafnkenda sjónhverfingamanns og mótstöðumanns spíri-
tismans. Skeytinu fylgdu þau fyrirmæli, að hann kæmi
því til ekkju Houdinis. Henni þótti mjög mikils um vert,
því að hún sagði, að þetta skeyti væri einmitt orðin, sem
tengdamóðir sín hefði komið sér saman um við son sinn
og mann hennar að senda honum eftir andlátið. Eftir
þessu skeyti frá móður sinni sagði hún, að Houdini hefði
alt af verið að bíða, og hann hefði verið ófáanlegur til
þess að líta spíritismann góðvildaraugum, af því að þetta
skeyti hefði hann aldrei fengið.