Morgunn - 01.06.1953, Blaðsíða 12
6
MORGUNN
Kirkjugestunum
biöskraði.
vítin, að helgar verur, þrungnar kærleika Krists, séu stöð-
ugt að stíga niður í vansælustaðina til þess að láta kær-
leiksljós Krists lýsa hinum ógæfusömu til betra lífs.
Þegar þetta er ritað, hefir norska deilan staðið nær því
hálft ár, og henni er haldið áfram enn. 1 dagblaðinu Vísi,
7. júlí, var birt sú fregn frá Osló, að Hallesby prófessor
hefði prédikað í lítilli sveitakirkju, sem
troðfull var af kirkjugestum. En kirkju-
gestunum var nóg boðið, þegar prófess-
orinn benti ógnandi út á kirkjugarðinn og sagði: ,,Ég full-
vissa ykkur um, að fjöldi þeirra, sem hér eru grafnir, hafa
hlotið dvalarstað í helviti." Ættingjar, vinir og afkomendur
þeirra, sem í garðinum höfðu verið grafnir, voru í kirkjunni.
Schelderup, biskup í Hamri, hefir ritað kirkjumálaráðu-
neytinu bréf og farið þess á leit að fá úrskurð um, hvort
helvítiskenningin eigi að vera grundvöllur norsku kirkjunn-
ar, — að því er Oslóarfregnin i Vísi hermir, en kirkju-
málaráðuneytið hafi vikið vandanum frá sér, þangað til
sumarleyfum Ijúki. Þá langar bersýnilega ekki til að fást
við þessi mál meðan sumar og Guðs sól ljóma yfir land-
inu. Þetta varð hinum kunna norska skop-
teiknara, Hammerlund, kærkomið efni í
mynd, sem hefir verið á allra vörum í Nor-
egi um skeið. Fyrir Dagbladet teiknaði hann mynd af hlið-
um helvítis, og undir myndinni stóð: „Lokað vegna sum-
arleyfa." Vera má, að MORGUNN geti sagt lesendum sín-
um nánar frá gangi þessara mála í Noregi, þegar sumar-
leyfum lýkur í landinu.
Kristilegt stúdentafélag, Bræðralag, sem er
” ..., , ,, félag frjálslyndra, kristilegra stúdenta og
kvoldvaka.“ . . ‘ , ,.
mikill þorn prestanna er í, efndi til kvold-
vöku í Ríkisútvarpinu á liðnum vetri. Séra Guðmundur
Sveinsson, sóknarprestur að Hvanneyri í Borgarfirði, flutti
snjallt erindi um bókstafinn og andann. Ungur guðfræði-
stúdent, Ólafur Skúlason, talaði um bænir fyrir framliðn-
um, og ritstjóri MORGUNS flutti erindi um eilífa útskúf-
„Lokað vegna
sumarleyfa."