Morgunn - 01.06.1953, Qupperneq 22
16
M O R G U N N
unum. Nýjungin í kenningum spíritista er þá, að mínum
dómi, þetta, að þeir telja sig hafa lyft hulu trúarinnar frá
þessu atriði trúarbragðanna og fært kenninguna um fram-
haldslífið inn á svið raunverulegrar þekkingar, og þeir telja
sér hafi tekizt, með hjálp þeirra manna, er gæddir eru
þeirri sérgáfu, sem miðilsgáfa kallast, að hafa tal af fram-
liðnum mönnum, að fræðast um hagi þeirra og njóta leið-
sagnar þeirra um ýmsa hluti í jarðnesku lífi voru. Þeir
telja sannað, svo að óyggjandi sé, að þeir, sem við þá
hafa talað frá öðrum heimi, séu sömu persónurnar, sem
lifað hafa áður hér á jörðu. Ef vér viðurkennum að þessi
staðhæfing þeirra sé rétt, þá má segja, að þeir hafi með
þessu tekið trúaratriði, sem raunar eins og svo margt
annað í trúarbrögðunum var lítt skiljanlegt, vafið utan af
því dularhjúpinn, og gert það að þætti almennrar líffræði,
sem í þeirra augum er jafnnáttúrlegur og aðrir þættir líf-
fræðinnar, þeir er fjalla um störf og eðli efnislíkamans. 1
fljótu bragði virðist undarlegt, að þessi skoðun skuli geta
valdið hatramlegri mótspymu, en þó er það svo, að ein-
mitt þessi nýjung spíritismans er það, sem mestri and-
spyrnunni hefur valdið.
Frá hverjum stafar mótþróinn?
Svo má telja, að mótþróinn gegn fræðum þessum stafi
einkum frá tveimur flokkum manna. Annars vegar er hið
trúaða fólk, sem þykir trú sín vera með þessu svívirt og
dregin niður á lægra svið, eða að þarna sé verið að skyggn-
ast um þá hluti, sem manninum séu forboðnir, og því
syndsamlegir. Hins vegar em svo efnishyggjumennimir,
sem berjast gegn spíritismanum í nafni vísindanna, af því
að þeir telja kenningar hans geti ekki samræmzt við hin
kunnu lögmál náttúmnnar.
Að því er mér virðist, geta menn verið trúaðir á marga
vísu. Sumir menn eru trúaðir á æðri máttarvöld, guð og
góðar vættir, án þess í raun réttri að binda sig við nokkrar
trúarsetningar eða fyrirskrifaðar játningar. Guðdómurinn