Morgunn


Morgunn - 01.06.1953, Page 53

Morgunn - 01.06.1953, Page 53
MORGUNN 47 dagstofuna og að bókahillu við hliðina á hljóðfærinu við útvegginn, taka þar af tilviljun einhverja bókina, ganga með hana aftur á bak inn í borðstofuna og skilja bókina eftir opna á hlaðborðinu. Ganga síðan áfram inn í her- bergið til önnu og tala stöðugt við hana í fimm minútur, svo að hún gæti ekki einbeitt huganum að neinu öðru, og biðja síðan „X“ að skrifa á blaðið fyrir framan önnu litlu blaðsíðutalið hægra megin, þar sem bókin væri opin, og tíu eða tólf fyrstu orðin á blaðsíðunni. Heimilisfólkið átti að vera á verði fyrir því, að dr. Westwood gæti ekki svikið neitt og að hann gæti ekki séð bókina fyrr en til- rauninni væri lokið. Nú var tilraunin gerð nákvæmlega á þennan hátt. Þegar fimm mínúturnar voru liðnar, sagði dr. Westwood við „X“: „Ert þú reiðubúinn?“ Óðara var skrifað á blaðið, með hendi önnu, sem bundið var fyrir augun á: „Já.“ Og áfram voru skrifuð allmörg orð. Dr. Westwood tók nú blaðið og sagði við heimilisfólkið: „Ég hef engu meiri hugmynd en þið um, hvaða bók ég tók og lagði á hlaðborðið. Og ég hef engu meiri hugmynd en þið um, hvort þessi tilraun hefur heppnazt. Ef hún heppnast ekki, gerum við engar fleiri tilraunir. Ef hún heppnast, höldum við áfram. Því ef skriftin á blaðinu sam- svarar orðunum, sem standa á opnu blaðsíðunni í bókinni á hlaðborðinu, er ekki önnur skýring hugsanleg en sú, að þetta getur ekki verið hugsanaflutningur. Þá er erfitt að hugsa sér, að hér sé undirvitund önnu að verki. Þá hefur einhver vitsmunavera önnur en Anna litla skrifað með hendi hennar.“ Með óvissublandinni eftirvæntingu gekk dr. Westwood að hlaðborðinu. Blaðsíðutalið reyndist vera rétt. Skekkjur í skriftinni voru þær, að efnið var ekki tekið frá efstu línu blaðsíðunnar, heldur frá efstu greinaskilunum, og eitt orðið var ekki rétt skrifað. Það átti að vera „Remember", en var skrifað „Rember“. Að öðru leyti tókst þessi merki- lega tilraun fullkomlega.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.