Morgunn - 01.06.1953, Qupperneq 61
MORGUNN
55
kvaðst hyggja, að þá yrði honum ekki leyft að heimsækja
þau oftar.
Leikslokin urðu þá innan fárra vikna. Einn morguninn
kvaðst hann vera á förum, en um kvöldið myndi hann
skýra málið eitthvað nánara fyrir þeim. Kvöldið kom,
tilraunir voru gerðar, en Bláskinni kom ekki. Hann var
bersýnilega einnig farinn. Eftir hann fannst þeim vera
auðn og tóm. Minningin um hinar furðulegu heimsóknir
hans ein var eftir.
Með burtför hans tók fyrir öll yfirvenjuleg fyrirbæri
hjá önnu. Kraftur hennar til að lyfta hlutum með sál-
rænum mætti hvarf. Bundið var enn fyrir augu hennar,
en nú gat hún ekkert lesið blindandi. Nú gat hún ekki
lengur skrifað ósjálfrátt, sálritinn hreyfðist ekki, þegar
hún snerti hann. Hinir ósýnilegu gestir voru farnir, engin
merki þeirra sáust lengur, og aldrei tókst oftar að ná
sambandi við þá. Dr. Westwood og fjölskylda hans stóð
einmanaleg eftir með endurminninguna um furðulegan
kafla úr ævi sinni.
Þegar dr. Westwood skrifar bók sína, er Anna hamingju-
söm kona og móðir sonar, er farinn er að stunda háskóla-
nám. Henni er ljúft að rifja upp fyrir sér og vinum sínum
atburðina frá þessum furðulegu þrem ámm bernsku sinn-
ar, en aldrei síðar mun hafa orðið vart nokkurra sálrænna
hæfileika hjá henni.
Eftir að tilraununum með önnu litlu lauk, fór dr. West-
wood að snúa sér að tilraunum með aðra miðla. Hann
gerði fjölmargar tilraunir og margháttaðar merkilegar at-
huganir á fyrirbærunum hjá beztu miðlunum fyrir vestan
haf, en frá því segir hann í síðari hluta bókar þeirrar, er
ég hef sagt yður frá í kvöld.
1 næsta hefti Morguns mun verða sagt frá því, sem dr.
Westwood segir frá rannsóknum sínum og tilraunum með
amerisku miðlunum. Þar náði hann enn stórfelldari árangri
en með önnu, og þegar vér kynnumst því, sem hann hefur