Morgunn - 01.12.1948, Blaðsíða 5
Bceða Einars H, Kvarans árið 1908
Erindi þetta flutti Einar H. Kvaran fyrir nokkurum vinum úr
Tilraunafélaginu, sem starfaði með Indriða heitnum Indriðasyni.
Þótt erindið sé orðið 40 ára gamalt, er það fyllilega timabært enn
°S prentað hér samkvæmt margra óskum, sem heyrðu Einar E.
Kvaran flytja það á afmælishátíðinni í fyrra vetur. Ritstj.
Fyrir 60 árum, árið 1848, var merkisár í sögu mann-
kynsins. Byltingahugurinn var þá svo öflugur. Frelsis-
öldumar urðu að holskeflum. 1 hverja mannkynssögu, sem
Þið lítið, sjáið þið skýrt frá því, hvernig mannsandinn
reis gegn bælingunni og ofbeldinu það ár á Frakklandi,
i Italíu, í Austurríki, á Þýzkalandi, á Norðurlöndum.
En engin mannkynssaga skýrir, svo mér sé kunnugt,
frá langmerkilegustu byltingunni, sem það ár gerðist. Sú
bylting gerðist vestur í Ameríku, eins og þið vitið. Og
hún er í því fólgin, eftir því sem milljónir manna í ver-
Öldinni eru nú sannfærðir um, að samband fannst milli
t>essa heims og annars.
Ekki svo að skilja, að ekki hafi verið samband áður
tthlli heimanna. Ævinlega hefur drottinn staðið í sam-
handi við börn sín, eins og útsærinn stendur í sambandi
yið fjörðinn, eins og sólin stendur í sambandi við daginn.
Og ég get ekki hugsað méT nokkurt það tímabil í sögu
ttiannkynsins, síðan er það varð að skynsemi gæddum
verum, þegar það hafi með öllu farið varhluta af áhrif-
Um frá þjónustusömum öndum, eins og ritningin kemst
að orði. Mér skilst svo, sem öll trúarbrögð veraldarinnar
beri vitni um einhvers konar samband milli heimanna.
°g einstakir menn hafa gert það á öllum öldum.
Svo að byltingin er ekki fólgin í því, að sambandið