Morgunn - 01.12.1948, Blaðsíða 28
174
MORGUNN
Eins og strokhestur á rás til átthaganna, ó Guð, leitar
sál mín þín.
„Inquietum est cor nostrum, donec requiescat in te“.“
Mér finnst þessi orð hins gáfaða og merka manns tali
sínu máli, þau sýna svo ljóst sem verið getur, hvílík áhrif
spiritisminn hefur á lífsskoðun og trúarlíf manna, og þau
eru merkileg heimild um menntamann, sem á námsárum
sínum og einkum í andrúmslofti Hafnarháskóla var að
verða viðskila við alla trú, en komst þá í kynni við sálar-
rannsóknirnar.
Um áhrif spíritismans á lífsskoðun manna og trú hef
ég vitnað til þessara þriggja manna, sem lengi stóðu í
brjóstfylking íslenzkra spíritista, en eiga ekki mörg yðar,
sem á mál mitt heyrið, einhverja reynslu í svipaða átt?
Allmörg yðar hafið í einkasamtölum við mig sagt mér
nokkuð af reynslu yðar í þessa áttina, svo að nokkuð veit
ég, hvað ég er að segja.
Spíritisminn er þekking á ákveðnum lögmálum tilver-
unnar og sjálfur er hann ekki trú, á aldrei að verða það.
En hann hlýtur að hafa djúptæk áhrif á hvern þann mann,
sem ekki lætur sér nægja eftirsóknina eftir fyrirbrigð-
unum einum, og í þessu felst annað hið mikla höfuðverk-
efni, sem hann á að leysa fyrir komandi kynslóðir. Hann
á að gera oss að hæfum borgurum fyrir annað líf, en
hann á engu síður að gera oss að nýtum mönnum fyrir
það mannfélag, sem vér lifum hér í, og vekja oss djúpa
ábyrgðartilfinningu gagnvart öðrum mönnum.
Á þessari aldarhátíð hin mikla máls er vissulega óhrjá-
legt um að litast í heiminum, og oss sýnist dimm ský
grúfa yfir framtíð jarðarinnar, og sverðið hanga í örveik-
um þræði yfir höfðum vorum. Sú stórkostlega gjöf, sem
spíritisminn hefur gefið oss, hin nýja veröld, hin nýja enda-
lausa útsýn yfir dýrðarheima drottins, á að vera oss mátt-
ug hvöt til þess að leggja fram orku vora til þess að bæta
þennan heim. Svo alvarlegum orðum talar til vor hin sál-