Morgunn - 01.12.1948, Blaðsíða 50
196
MORGUNN
blaðamennska, sem hér var að verki. Blöðin eru svo mik-
ið vald í þjóðlifinu, að þeim má ekki haldast uppi með
þær starfsaðferðir, sem þar eru oft látnar ráða. Dagblöð-
in í höfuðstaðnum eru öll sterklega flokksbundin, en á-
stæður eru til að ætla, að margir lesendur þeirra séu
farnir að beita blaðamennina meiri gagnrýni en oft hef-
ur verið áður gert, og taka með meiri varúð því að láta
málflutning þeirra móta skoðanir sínar. Þegar blaðamað-
ur leyfir sér að birta með stórum upphafsstöfum í fyrir-
sögn, að einhver sé uppvís að viðbjóðslegum svikum, en
getur þess í greinarlok, að málið muni vera í rannsókn,
verður mörgum að spyrja, hvort blaðamennskan fari ekki
að verða æði viðsjárverð.
Þegar er þessi fregn var birt, leitaði stjóm Sálarrann-
sóknafélags Islands eftir traustum heimildum um þetta
mál frá Danmörku, og þegar er málalokin voru kunn,
sendi hún leiðréttingar til beggja blaðanna, sem fregn-
ina höfðu flutt. Blöðin birtu þessa leiðrétting, en Alþbl.
lét fylgja frámunalega ósmekklega athugasemd, sem ekki
gat átt annað markmið en að viðhalda grunsemdum gegn
miðlinum. Var því þar haldið fram, að þótt engin svik
hefðu sannazt á miðilinn, væri sakleysi hans ekki sannað.
Væri það ekki hart, að liggja alla ævi undir grunsemd
um þjófnað, þrátt fyrir það, að enginn þjófnaður hefði
sannazt á manninn? Á hverjum hvílir sönnunarskyldan
öðrum en þeim, sem ákærir? Hlaupi einhver maður með
svikabrigzl um náungann til lögreglunnar, verður hann
að sætta sig við það að vera talinn uppvís að frumhlaupi>
ef hann getur ekki sannað mál sitt, og þá telja góðin
menn það ódrengilegt að viðhalda grunsemdum um þann,
sem sökum var borinn.
Þetta mál er þannig vaxið, að í sept. s.l. var Einer Niel'
sen staddur í Árósum og hélt þar nokkra fundi í heima-
húsum. Hann var þá nýkominn heim frá alþjóðafundi
spíritista í Lundúnum, hafði haldið þar fund fyrir líkamn-
ingafyrirbrigði, sem fulltrúar frá tuttugu löndum sátu,
4