Morgunn - 01.12.1948, Blaðsíða 57
MORGUNN
203
I Brooklyn átti heima yfirlætislaus en greind og sið-
^guð ekkja af alþýðufólki komin, og var 68 ára gömul.
^eð henni bjó bróðir hennar og sonur, sem var 25 ára.
_ rniðvikudagskvöldum komu jafnan til þeirra átta eða
niu gestir og þá stundaði þessi hópur sálrænar tilraunir.
Ekkjan var sjálf miðillinn og sat í byrgi, sem búið var
ti! með því, að tjalda af eitt hornið í herberginu. Ljósið
Var dauft og stjórnaði miðillinn því, það nægði til þess að
sJá á venjulegt vasaúr.
Þetta fólk hafði haft tilraunafundi sína í fjögur ár, á
t>eim var guðrækilegur blær og skoðaði fólkið þá sem
vikulega samfundi lifandi og látinna ástvina.
^að var sagt, að stjórnendur miðilsins væru þrír, Mamie,
bróðurdóttir ekkjunnar, sem hafði andazt sjö ára gömul,
■^hios, sonur ekkjunnar, og Georg Caroll, framliðinn vinur
ems fundarmannsins.
Er. Funk hafði frétt af þessum fundum, og í febrúar-
^hánuði 1902 fékk hann leyfi til að koma þama á fund,
íyrir milligöngu sameiginlegs vinar, sem alllengi hafði
starfað við útgáfufyrirtæki hans, og hét Irving S. Roney.
Enginn aðgangseyrir var seldur að þessum fundum í
Úokkurri mynd, og sambandið fékkst með höggum, ljósa-
yrirbrigðum, sem komu fram á tjaldinu og með beinum
eða sjálfstæðum röddum, sem töluðu fyrir utan miðilinn.
Ekkjan, miðillinn, staðhæfði, að hún hefði enga hugmynd
11111 það, sem fram kæmi á þessum fundum, þar sem hún
Vaeri í algerlega meðvitundarlausum transi.
Auk stjórnendanna, sem áður getur, virtust koma þarna
^Usir aðrir ósýnilegir gestir, og þeir töluðu sjálfir með
^oddum, sem voru eins ólíkar og persónurnar, sem þær
°ldu sig vera. Meðal þessara gesta voru börn, gamlir menn
°g konur, mjög sérkennilegur negri frá Virginia og Rauð-
skinnar, Indíánar.
Sonur ekkjunnar og bróðir voru ævinlega viðstaddir og
Satu hjá fundargestum, svo að engar blekkingar gátu
Peir haft í frammi, og þótt ekki væru gerðar þarna vís-