Morgunn - 01.12.1948, Blaðsíða 56
„Ekk j upeningurinn."
Nokkuru fyrir fyrri heimstyrjöldina andaðist hinn at-
hafnamikli bókaútgefandi dr. Isac Kaufmann Funk, for-
stjóri og aðaleigandi hins mikla útgáfufyrirtækis Funk &
Wagnalls, sem rak starfsemi jöfnum höndum í New York
og London. Hann var einn hinna áhrifameiri boðbera spírit-
ismans á sinni tíð sakir þess álits, sem hann naut meðal
menntamanna víða um lönd.
Hann sannfærðist um framhaldslífið og sambandið við
látna menn af fyrirbrigðum hjá hinum ágæta miðli, May
Pepper Vanderbilt í Brooklyn. Hjá henni fékk hann sam-
band við hinn látna sálarrannsóknamann, dr. Richard
Hodgson, sem þá var fyrir fáum vikum látinn, og hafði um
skeið verið einn af mestu áhrifamönnum um sálarrann-
sóknir, enda maður alkunnur að gáfum og vísindalegum
lærdómi. Dr. Funk taldi sannanirnar frá hinum látna dr.
Hodgson alveg tvímælalausar, óyggjandi að nokkur gæti
annar á bak við þær staðið en hinn látni maður. Eftir þetta
ritaði dr. Funk ágætar bækur um málefnið og margar
greinar, en vegna þjóðfélagslegrar aðstöðu hans veir mjög
tekið til greina það, sem hann lagði til málanna, auk þess,
sem hinn mikli bókaútgefandi hafði góða aðstöðu til þess
að leggja málinu lið.
1 bókinni, The Widow’s Mite and other Psychic Peno-
mena, birti hann mjög eftirtektarverða sögu af því, hvern-
ig smápeningur fannst, að tilvísun raddar, sem talaði af
vörum miðils, og sagan er birt hér, þýdd úr blaðinu The
Psychic Observer, en þar er hún stytt frá því, sem er í
bókinni.