Morgunn - 01.12.1948, Blaðsíða 23
MORGUNN
169
Einars H. Kvarans. Sumum þeirra var svo misþyrmt, með-
an þeir voru í trans-ástandinu, að þeir biðu þess aldrei
bætur og létu lífið fyrir aldur fram. Aðrir voru ofsóttir
°g svívirtir, svo að þeir biðu af mikinn andlegan hnekki, og
enn aðrir lentu í höndunum á fólki, sem misskildi málið
með öllu og gerði sér hin dásamlegu fyrirbrigði að féþúfu
°g gamni.
Og píslarvættið urðu sumir vísindamennirnir, sem fyrst-
lr fengust við málið, einnig að þola í stórum stíl. Þá sögu
er enginn tími til að segja hér í kvöld, og leyfi ég mér
að visa til þess ágrips aldarsögunnar, sem birt er í síð-
asta hefti Morguns. En fyrir þrautseigju miðlanna og fyr-
lr hugrekki sumra vísindamannanna, sem isinn brutu,
stendur spíritisminn nú svo föstum fótum, að ekki fáir
frmgustu menn síðari tíma leggja vitsmuni sína og vís-
mdaheiður að veði fyrir sannleiksgildi málsins, og á úr-
skurði þessara manna, sem vissulega standa í fremstu
röð vitsmanna og vísindamanna verðaldarinnar, er málið
reist.
Um sannanahliðina á málinu er þegar búið að ræða
hokkuð og rita í sambandi við þetta aldarafmæli, og þeir,
Sern eitthvað hafa fylgzt með því, sem Morgunn hefur
flutt um málið á 28 liðnum árum, hafa vitanlega fyrir
^öngu gert sér Ijóst, að grundvöllurinn er lagður af þeim
mönnum, sem vissulega má treysta, svo framarlega sem
Ueysta má mannlegum vitsmunum og rannsóknum hinna
Vltrustu manna, en mig langar aðeins til að hreyfa þeirri
sPurningu lauslega að lokum, hvort spíritisminn hafi nokk-
Ur áhrif haft á lífsskoðun manna og trú þeirra.
f Englandi er allur annar svipur á kristilegum félögum
Ungra manna, K.F.U.M., en hér er. Vér vorum svo ó-
boppnir að fá þá hreyfing, eins og annað fleira á þeirri
^■íð, frá Dönum, en ekki Englendingum. í ensku blaði, sem
mer barst í hendur fyrir nokkrum dögum, er sagt frá
fjölmennum fundi í K.F.U.M. í borg einni í Englandi, þar
Sem spíritisminn var til umræðu. Þar voru í hópnum