Morgunn


Morgunn - 01.12.1948, Síða 14

Morgunn - 01.12.1948, Síða 14
160 MORGUNN Ef ekkert annað væri til að styðjast við og draga álykt- anir af en sagnir frá liðnum tímum, um veruleik slíkra fyrirbrigða, þá væri eðlilegt, að margir væru vantrúaðir á, að þau hefðu gerzt. En það er staðreynd, sem ekki verður þokað, að þau virðast engu ótíðari í lífi nútíðar- manna en áður fyrr, að þau hafa verið vottfest og sann- prófuð, að svo miklu leyti, sem unnt hefur reynzt og kleift hefur verið að koma beinum sönnunum við. Það er sönn- uð staðreynd, að lifandi menn hafa sézt á fjarlægum stöð- um, meðan líkami þeirra hvíldi vitimdarvana á öðrum stað, að þeir hafa iðulega lýst þeim stöðum og því um- hverfi, sem þeir hafa gist með þessum hætti, og staðfest hefur verið, að þar væri rétt frá skýrt, þó að sannað hafi verið, að þeir hafi aldrei þar komið með venjulegum hætti. Þá hafa þeir og einatt sagt frá atburðum, sem þar voru að gerast, og hermt frá orðræðum manna, sem engum var þá kunnugt um að væru að gerast, nema sjónarvott- um og þátttakendum. Vottfestar heimildir eru einnig til um það, að sofandi jarðneskir menn hafa stundum birzt mönnum á fjarlægum stöðum, bæði sýnilega og áþreifan- lega, í þessu andlega líkamsgervi sínu, þó að sjaldgæfara virðist að slíkt eigi sér stað. Frá mörgum vottfestum og sönnuðum fyrirbrigðum þessarar tegundar, væri unnt að segja, en takmarkaður ræðutími minn veldur því, að mér er þetta ekki unnt. Ég ætla aðeins að segja yður frá einu atriði úr reynslu sjálfs min um vitaða tilvist utan jarðlífslíkama míns. Ég átti þá heima á Eskifirði. Þegar ég kom heim úr skólanum að þessu sinni, fannst mér ég vera óvenju þreytt- ur og lémagna, svo að ég lagði mig út af á legubekk. Ein- kennileg tilfinning náði tökum á mér, fannst sem ég vseri að stirðna og kólna upp, en því nær samstundis missti ég meðvitund. Hið næsta, sem ég gerði mér grein fyrir, var að ég stóð út við gluggann á herbergi mínu og horfði út. Ég stóð ekki þarna áðan, var fyrsta hugsunin, sem skaut upp í huga mínum. Ég sneri mér við, og undrun
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.