Morgunn - 01.12.1948, Síða 40
186
MORGUNN
McKenzie-hjónunum í hinni alkunnu stofnun Psychic Col-
lege. Eftir að sú stofnun var lögð niður, starfar frúin
fyrir London Spiritualist Alliance.
Stjómandi miðilsins sagði mér, að hjá mér væri stödd
anima mín, móðir móður minnar, en ekki gat hún sagt
mér nafn hennar, og lýsingin var ekki sannfærandi. Þá
spurði ég, hvort enginn væri með henni, og eftir nokkra
stund var mér sagt, að með henni væri dóttir hennar,
sem andazt hefði á þessu ári; þær hugsuðu mikið um
móður mína, sem væri á jörðunni. Allt var þetta rétt.
Mér var sagt, að þessi móðursystir mín væri mjög lík
móður sinni í útliti. Hún hefði ekki dáið í landinu, sem
við ættum heima í, hún benti yfir hafið mikla til vest-
urs. Þetta var alveg rétt. Nú kom skemmtileg skapgerðax-
lýsing af þessari móðursystur minni, sem á ýmsan hátt
var óvenjuleg kona. Sagt var frá hugðarefnum hennar,
og þá var sagt: „Þessi frænka þín hefur elskað Frakk-
land, hún hefur kunnað frönsku og hún hefur verið í
Frakklandi, komið þangað.“ Ég neitaði því, að hún hefði
komið til Frakklands, en sagði hitt vera rétt, en veran
sagði: „Þá hefur hún ráðgert að fara til Frakklands, þótt
ekkert yrði úr því, þegar á átti að herða.“ Þetta sagði
ég vera rétt og spurði veruna, hvernig hún vissi þetta,
hvort móðursystir mín væri að segja henni þetta, og
mér var svarað: „Ég heyri óm af frönsku i kringum hana,
en nú talar hún og ég heyri það skýrt, hún snýr sér að
þér og segir: Þú veizt það, frændi, að ég hafði alltaf
mikinn áhuga fyrir Frakklandi og frönskunni, en nú hef
ég alveg sérstakan áhuga fyrir þessu í sambandi við þig>
þú veizt, hvað ég á við.“ Þetta þótti mér skemmtilegt,
því að innan fárra daga ætlaði ég til Frakklands, og fór
þangað. Ég get ekki skilið, að kona, sem ekki vissi einu
sinni nafn mitt og ég hef ekki séð nema í þetta eina skipt1
á ævinni, hafi getað haft eðlilega vitneskju um neitt af
því, sem hún sagði þarna, en ég vissi þetta allt sjálfnr-
Nú langaði mig til að vita, hvort stjórnandi miðilsins g®ti