Morgunn - 01.12.1948, Blaðsíða 41
MORGUNN
187
Sagt mér, hvaða starf þessi frænka mín hefði haft á hendi,
en það átti hann erfitt með, en fór að tala um, að hún
hefði haft samband við mjög margt fólk. Ég sagði það
vera rétt, en þá sagði röddin með samblandi undruncir
°g gleði: „Frænka þín hefur haft lækningakraft, hún
hefur verið lækningamiðill.“ Þessu neitaði ég og sagði,
að ef svo hefði verið, hefði frænka mín sjálf ekki haft
hugmynd um það. Röddin stóð nú mjög fast á sínu máli
°g kvað frænku mína hafa iðkað sálrænar lækningar.
% þrætti enn þverlega og spurði veruna, sem við mig
talaði, hversvegna hún væri að staðhæfa þetta. „Ég stað-
hsefi þetta vegna þess, sem ég sé“, var mér svarað.
»Érænka þín hefur stundað þessar sálrænu lækningar og
Sert mikið að þeim. Hún stendur enn við hlið móður
sinnar og hún er að strjúka hana upp og niður brjóstið
°g upphandleggsvöðvana, og hún gerir það af svo mik-
hh leikni, að ég sé, að hún hefur iðkað þetta mikið og
lengi.“ Þetta þótti mér gott, einkum vegna þess, að stjórn-
audinn misskildi málið. Þetta var svarið við spurningu
^huni um ævistarf frænku minnar, hún var nuddlæknir
°g rak um áratugi nuddlækningastofu vestur í Banda-
rjkjunum. Að lokum sagði röddin af munni hins sofandi
^iðils við mig: „Frænka þín er að hverfa mér, hún bið-
Ur að heilsa móður þinni, hún elskar hana mikið, og hún
Segir: Don’t worry, frændi, ég gerði það stundum, en þú
hefur enga ástæðu til þess, don’t worry.“
Þetta þótti mér skemmtileg kveðja. Frænka mín tal-
aði óvenju hreina og tæra íslenzku, þótt hún væri ára-
i-Ugum saman í fjarlægð frá fósturjörðunni og hitti ör-
sJaldan landa sína, en oft man ég til þess, að hún brygði
^Vrir sig þessu enska orðatiltæki: Don’t worry: hafðu ekki
ahyggjur, þegar hún var að tala við okkur heima.
Eftir þennan fund sat ég nokkurn tíma með miðlinum,
^rs- Methven, og talaði við hana. Hún spurði mig um
fundinn, og ég sagði henni hreinskilnislega, að nokkuð
hefði ég borið úr býtum, en ekki fengið æskilega góða