Morgunn


Morgunn - 01.12.1948, Side 44

Morgunn - 01.12.1948, Side 44
190 MORGUNN var maður á að gizka um fertugt, sem var kengboginn í baki, en gekk furðu rösklega að stólnum fyrir framan Mr. Edwards, sem hann lét sjúklingana sitja í, meðan hann gerði tilraunir sínar með þá. Þessi maður sagði mér, að hann hefði komið oft áður til Mr. Edwards, mig minn- ir að hann segði þetta vera í tólfta sinn, og kvaðst hann vera búinn að fá undravérðan bata. Hann kvaðst hafa legið rúmfastur með öllu og læknarnir hefðu ekkert get- að hjálpað sér. Konu talaði ég við, sem einnig kvaðst vera búin að fá undraverðan bata á sjón sinni. Um þetta er ég vitanlega ekki bær að dæma af eigin athugim. Eftir lækningatilraunirnar átti ég þess því miður lítinn kost að ræða við Mr. Edwards. Þegar við komum inn í skrif- stofuna til þess að kveðja hann, sáum við sex manns vera þar að vinna, aðallega til þess að opna póst og svara bréfum. Mig minnir, að mér væri sagt, að þennan morg- un hefðu borizt milli 3 og 4 hundruð bréf með beiðnum um læknishjálp. Mr. Edwards ræðir lítið við sjúklinga sína, en Mrs. Parish leggur á það mikla stund að vera sálusorgari fyrir þá, sem til hennar leita, og ég hygg, að hún skyggnist dýpra inn í sálarlíf þeirra, sem hún hefur samband við. Hún virtist leggja mikið upp úr því að geta veitt andlega hjálp þeim, sem ekki var unnt að veita lík' amlega læknishjálp. Hún bað mig að bera þau orð síu þeim, sem leituðu hjálpar sinnar héðan frá Islandi, að hún legði mikla áherzlu á, að þeir ræktu vel þær stund- ir, sem hún fyrirskipar í bréfum sínum til sjúklinganna, og hún kvað það skýlausa reynslu sina, að mikið yrð1 sjúklingurinn að leggja fram sjálfur, til þess að hin ó- sýnilegu öfl gætu hjálpað honum; oft væri það vonlaust mál um þá, sem væntu furðuverka, án þess að leggja fram þau skilyrði, sem nauðsynleg væru. Ég hef áður birt bréfkafla frá henni í MORGNI, sem hún skrifaði mér, eftir að henni barst til eyrna héðan, að maðurinn hennar ætti að standa á bak við einhverjar lækningar hér 1 Reykjavík. Það fullyrti hún að væri tilhæfulaust með ÖllU-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.