Morgunn - 01.06.1950, Blaðsíða 55
MORGUNN
49
mín, Subhadra Bai, andaðist í des. 1919. Þá urðu þáttaskil
5 lífi mínu. Aðskilnaðurinn varð reiðarslag fyrir mig, eins
°g þeir einir geta skilið, sem reynt hafa hið sama. Ég
þekkti þá naumast nafnið spíritismi, en þrá mín að fá eitt-
hvað um afdrif hennar að vita var brennandi og ég reyndi
fyrir mér á ýmsum, ólíkum leiðum. Þrátt fyrir óheppni og
vonbrigði allsstaðar í byrjun, hélt ég áfram með rann-
sóknir mínar, og smám saman fór mér að ganga betur.
Síðan mér lærðist að hafa umgengni við andaheiminn
hef ég átt tal við margar ójarðneskar sálir, sumar, sem
ég þekkti, aðrar, sem ég þekkti ekki. Dagleg reynsla hefur
styrkt sannfræing mína. Allt frá þeim degi, er ég sann-
færðist um þetta samband, hef ég litið svo á, að það væri
geysilega þýðingarmikið fyrir mannkynið. Margir menn
eru ýmist ókunnir þessum efnum eða kæra sig ekkert
Urn þau, og þó er þýðing þeira geysileg. Samt er vaxandi
fjöldi farinn að þrá vitneskju um dauðann og það, sem
á eftir honum fer, og sérstaklega verður þetta ljóst, þegar
uienn missa ástvini sína. En þótt sorglegt sé að segja verð-
Ur áhuginn oft endasleppur, þegar hann vaknar af þeim
orsökum einum að menn missa ástvini sína, og aðeins
fæstir hafa staðfestu í sér til þess að kafa djúpt í leyndar-
ðóma hins óþekkta heims.
Til þess að fá skýra hugmynd um efnið er nauðsynlegt
að þekkja grundvallaratriði spíritismans. Þeim hefur oft
verið slegið föstum af alþjóðaþingum um málið, sem hald-
in hafa verið í Evrópu. Þar hef ég fimm sinnum verið
fulltrúi Indlands. Þessi grundvallaratriði spíritismans eru
ekki reist á erfðkenningum fyrri tíðar manna og ekki á
fyrir fram mynduðum skoðunum neinna, heldur á athugun
manna á fyrirbrigðum og staðreyndum.
Grundvallaratriðin eru þessi: Trúin á
1) Guð sem upphaf alls,
2) tilveru andlíkama (eterlíkama) samstæðu hins
jarðneska,
4