Morgunn - 01.06.1950, Síða 74
68
MORGUNN
brúninni, hann gerir það og fremur þann veg sjálfsmorð.
Nú munu forlagatrúarmenn (deterministar) segja, að
viljaákvörðun og verknaður mannsins hafi hvorttveggja
verið stranglega ákveðinn fyrir fram, hann hafi ekki get-
að annað en gert það, sem hann gerði. Og meira en þetta.
Þeir munu ennfremur segja við oss: setjið hundrað menn
samtímis á þverhnýpisbrúnina, og gerum nú ráð fyrir,
að öll áhrifin, sem þeir höfðu orðið fyrir í lífinu fram til
þessa dags, hefðu verið nákvæmlega hin sömu, allir mundu
þeir fleygja sér fram af brúninni og steypa sér niður í hyl-
dýpið, enginn þeirra gæti annað gert. Orsakakeðjan í lífi
þeirra allra var hin sama, afleiðingin hlýtur því að vera
ein.
Þannig er (determinisminn) forlagahyggjan, ef vér heim-
færum hana til mannsins. Hann er ekki annað en einn
hlutinn af hinni miklu vél. Hann lýtur hinu óhagganlega
lögmáli hennar. Vitanlega er efnishyggjan grundvöllur
þessarar kenningar, og þess vegna hafa trúarbragðahöf-
undar og fræðarar barizt gegn henni með hnúum og hnef-
um og bent á það, að væri þessi kenning sönn, væri úti
um allt siðgæði í heiminum. Þá stæði maðurinn ekki
ábyrgur, hvorki Guði né þjóðfélaginu, fyrir athafnir sínar.
Það væri ekki á hans valdi að hugsa, finna til eða breyta
öðruvísi en hann gerir.
Af determinismanum hafa fæðst margar kenningar, for-
lagatrú, fyrirhugunartrú, predeterismi o. fl. Þessar kenn-
ingar hafa lengi fundið mikinn hljómgrunn í sálum manna
á Austurlöndum. Og menn hafa gert þaulhugsaðar til-
raunir til að geirnegla þessar kenningar í þau trúarkerfi,
sem fjötruðust eru af trúarlærdómum.
Ég hefi áður minnzt á afstöðu nútímavísinda og eðlis-
fræðinnar. En á fáum siðustu árunum hefur þar orðið
mikil breyting á. „Óvissu-kenningin", sem kennd er við
Heisenberg, gerði skyndiárás á hið notalega vígi hinna
akademisku eðlisfræðinga, því að hún sýndi, að hina