Morgunn - 01.06.1950, Page 84
Dönsk kona svíkur miðlafyrirbrigði
Allmikill þytur var gerður í dönsku blöðunum í vetur
út af því, að kona nokkur, frú Rasmussen-Melloni, virtist
staðin að því að svíkja miðlafyrirbrigði. Fór það að vonum,
að dönsku blöðunum þætti matarbragð að þessu, svo fegin-
samlega taka þau slíkum fréttum, svo áköf verða þau í
sannleiksþjónustunni, ef grunur liggur á um miðlasvik.
Sannleiksþjónustan virðist aftur á móti ekki eins fúslega
innt af höndum, ef eitthvað markvert gerist í sálrænum
efnum, eða ef einhver málsmetandi maður vill taka til
máls um merkilegar rannsóknir á þessum fyrirbærum.
Frú Rasmussen-Melloni á sér langan starfsferil að baki,
og hún hefur gefið sig til rannsókna hjá svo merkum
mönnum, sem áður fyrr hafa gengið úr skugga um miðils-
hæfileika hennar, að afhjúpun danska læknisins, próf.
Plum, sem nú virðist hafa komið svikunum upp, eyðileggur
ekki þann árangur, sem fyrr á árum hefur fengizt af rann-
sóknum á hæfileikum hennar. En aftur á móti verður ekki
betur séð en að nú hafi hún verið staðin að svikum og au-
virðilegum loddarabrögðum. Hvort skýringin er sú, að hún
hafi að þessu sinni leikið þann leik, sem nokkurir siðferði-
lega óþroskaðir miðlar hafa leikið áður, að svíkja fyrir-
brigðin, þegar miðilskrafturinn var að þverra, er ekki alveg
ljóst, en vera kann, að sú sé skýringin. Frú Rasmussen-
Melloni hefur orðið til þess, að skrifa enn einn svartan
kapítula í sögu sálrænna rannsókna.
Fyrirbrigði frúarinnar, sem áður hafa verið athuguð,