Fréttablaðið - 27.11.2010, Síða 82
6 matur
Þessa köku höfum við verið með fyrir jólin síðustu 17 árin og hún er jafn vinsæl,“
segir Óttar Sveinsson, bakara-
meistari í Bakarameist-
aranum Suðurveri, um
Konditorspecial-tertuna.
„Fólk ýmist kaupir hana
til að gefa í jólagjöf eða
hafa í eftirrétt á jólunum
enda er þetta bara einn
stór konfektmoli.“
Óttar á heiðurinn að uppskrift-
inni og segist bara hafa „fiktað
sig áfram“ við gerð hennar.
„Þetta er sjölaga kaka með
trufflebotnum og hnetumar-
engs og súkkulaðikremi,
rjóma og Grand Marni-
er á milli botnanna.
Utan um er hvítur tic-
ino-massi, hrútaber og
grænar marsipangreinar
á toppnum. Gott með rjóma,
rjúkandi kaffi og lögg af
Grand Marnier.“ - fsb
Einn stór konf
INNIHALDSLÝSING Á
KONDITORSPECIAL BAK-
ARAMEISTARANS
Uppskriftin af konditortertunni
er að sjálfsögðu hernaðar-
leyndarmál en við birtum hér
innihalds lýsinguna fyrir þá ævin-
týragjörnu sem langar að „fikta
sig áfram“.
Trufflebotn: Möndlumassi,
egg, sykur, hveiti, kakó og
smjörlíki.
Marengsbotn: Eggjahvítur,
sykur, ristaðar heslihnetur og
hveiti.
Á milli er Grand Marnier-
ganas sem er rjómi og súkku-
laði hitað saman
við Grand Marnier.
Hjúpur: Hvítur ítalskur ticino-
massi.
Fyrir þá sem ekki eru jafn ævin-
týragjarnir fylgir hér uppskrift
að mun einfaldari og allt ann-
ars konar köku sem hægt er að
þekja með hvítu marsipani og
skreyta á jólalegan hátt eins og
hugmyndaflugið býður.
JÓLATERTA FÁTÆKA
MANNSINS
125 g smjör, við stofuhita
125 g strásykur
2 egg
125 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
2 msk. neskaffi, leyst upp í
100 ml af sjóðandi vatni
100 g valhnetukjarnar
Hitið ofninn í 170°C. Þeytið
saman smjör og sykur, bætið
eggjum, hveiti og lyftidufti smám
saman út í. Bætið kaffinu út í
smátt og smátt og þeytið stöðugt
á meðan. Molið valhnetukjarnana
og bætið þeim út í deigið.
LJÚFFENG JÓLATERTA
Konditorspecial-terta Bakarameistarans í Suðurveri
bráðnar í munni og setur punktinn yfir i-ið við jóla-
máltíðina. Útlit kökunnar er líka svo sannarlega jóla-
legt; snjór, kristþyrnir og hrútaber.
Óttar segist hafa fiktað sig
áfram við gerð kökunnar.
sem er sannarlega jólaleg í
útliti.
margt smátt
HANDÞVOTTUR
Áður en haf ist er
handa við bakstur er
rétt að þvo sér vel um
hendur. Smákökubakst-
ur krefst þess gjarnan
að hnoðaðar séu litl-
ar kúlur milli fingra og
brauð þarf að hnoða
í höndunum ef ekki
er hnoðari á hræri-
vélinni.
SAGA PIPARKÖKUNNAR Talið
er að evrópskir munkar hafi bakað
fyrstu piparkökurnar fyrir hátíðir og
sérstök tilefni strax á fimmtándu öld.
Fram að því hafði engifer eingöngu
verið notað í lækningaskyni. Í Eng-
landi, Frakklandi og þó sérstaklega í
Þýskalandi var þekkt að borða pip-
arkökur til hátíðabrigða og fornmál
allra þessara þjóða innihalda orð yfir
piparkökur sem heita „Zingebar“ á
latínu, „Gingerbras“ á fornfrönsku
og „lebkuchen“ á þýsku. Talið er að
krossfarar hafi upphaflega
flutt með sér engifer frá
Miðausturlöndum, en
hann náði fljótt
miklum vinsæld-
um í Evrópu og
piparkökukarlar voru
til sölu í sölubásum
á þorpshátíðum
lengi fram eftir
öldum.
GOTT SKIPULAG Leiðbeiningastöð heim-
ilanna heldur úti vefsíðu, www.leidbeininga-
stod.is, þar sem meðal annars má finna nokkur góð ráð
varðandi bakstur. Þar er meðal annars bent á hveru gott
er að taka til öll áhöld og allt sem á að fara í uppskriftina
áður en hafist er handa og raða upp á skipulegan og að-
gengilegan máta, til að fyrirbyggja að eitthvað gleymist svo
dæmi sé tekið. Ganga svo frá á skipulegan hátt og þrífa allt í
lokin. Svo skemmir ekki fyrir að setja á góða tónlist til að létta
manni þrifin og fráganginn.
TERTUBOTN SKORINN MEÐ
TVINNA Ef þú þarft að skipta
einum tertubotni í tvennt, þá er
best að gera það með tvinna. Þú
byrjar á því að skera fyrir, hringinn
í kring, og leggur síðan tvinnann í
skurðinn, heldur í báða endana á
spottanum og dregur svo tvinn-
ann í gegnum botninn. Með þessu
móti verður skurðurinn þráðbeinn, í
bókstaflegri merkingu, og botnarnir
nákvæmlega jafn þykkir.
PAKKAR SEM BRAGÐ ER AÐ Eins og
meðfylgjandi mynd ber með sér er það
fátt annað en skortur á ímyndunarafli
sem setur fólki skorður við baksturinn.
Hér er kökunni pakkað inn í rautt mars-
ipan og hvítur marsipanborði hnýttur
utan um. En það má líka búa til andlit
af jólasveini, jólatré eða jafnvel hrein-
dýr úr kökunum ef vilji og þolinmæði
eru fyrir hendi. Um að gera að prófa sig
áfram og leyfa yngstu fjölskyldumeðlimun-
um að spreyta sig á að útfæra hugmyndir sínar í kökuformi.
E
Fyrirtækið er í eigu þriggja systra og maka þeir-
ra og hefur að markmiði sölu og þjónustu á íslen-
skum smásölumarkaði.
Frumkvæði, nýjungar og gæði eru það leiðar-
ljós sem við vinnum eftir þegar við ákveðum
okkar vöruúrval sem við viljum bjóða neytanda-
num.
Arka-heilsuvörur hefur hafið innflutning á
afar ljúffengu og heilnæmu súkkulaði frá hinu
virta og ört vaxandi belgíska fyrirtæki Klingele.
Klingele Chocolade leitar um allan heim að því
besta hráefni sem völ er á. Klingele býður nú upp
á þrjár mismunandi vörulínur af belgísku súkku-
laði: sykurlaust, laktósa og glútenfrítt og lífrænt
súkkulaði.
Þeirra hugsun er einföld og heiðarleg, þökk sé
uppskrifum þeirra þá áttu að geta notið mikilla
bragðgæða heilnæms og góðs hráefnis til fulls.
Ánægja neytandans er þeirra markmið.
Klingele leggur aðaláherslu á gæði, ferskleika
og hreinleika vörunnar, þannig áttu að geta upp-
lifað hið besta með þínum nánustu.
Klingele selur þeir nú súkkulaði í fjölda
Evrópulanda, í miðausturlöndum, Ástralíu og
Bandaríkjunum.
Súkkulaðitegundirnar eru:
Balance – án viðbætts sykurs
Súkkulaði án viðbætt sykurs er tilvalið fyrir
sykursjúka sem og þá sem vilja draga úr sykur-
neyslu sinni og fá sér hollari og hitaeiningar-
nauðari valkosts
Öll vitum við að það er mælt með minni sykur-
neyslu. Þetta súkkulaði inniheldur 15 til 20 sin-
num færri hitaeiningar en sambærilegt súkku-
laði. Að auki er það með viðbættum trefjum sem
hefur góð áhrif á meltinguna.
Arka flytur inn margar bragðtegundir af sykur-
lausa súkkulaðinu, m.a. 72% dökkt súkkulaði,
dökkt súkkulaði, mjólkursúkkulaði, dökkt súkku-
laði með trönuberjum, dökkt súkkulaði með
bláberjum, dökkt súkkulaði með pistasíum.
Balance – laktósa og glútenfrítt
Tilvalinn valkostur fyrir þá sem hafa mjólkur-
eða glútenóþol.
Þessi lína er með 2 tegundir, annars
vegar Cocoa rice og hins vegar Cocoa rice með
hrískúlum.
Green Dream – lífrænt súkkulaði
Hreinum ávöxtum er blandað saman við heil-
næmt og lífrænt súkkulaðið með flott útlit og
glæsilega hönnun. Línan inniheldur til dæmis
bláber, trönuber og valhnetur.
Útsölustaðir Klingele eru:
Melabúðin, Fjarðarkaup, Kvosin, Maður lifandi, Yggdrasill, Sunnubúðin, Nettó, Samkaup Úrval, Samkaup Strax
og verslunum Hagkaupa. Nánari upplýsingar um vörunar okkar eru á heimasíðunni arka.is
Arka-heilsuvörur er heildsala á matvörumarkaði sem legg-
ur aðaláherslu á innflutning og sölu heilnæmra og hreinna
gæðamatvara. Meðal vörumerkja okkar eru Berry Company,
Smoove smoothiesdrykkir, Healthy people, Lima, Urtekram
og Merchant Gourmet.
KYNNING