Fréttablaðið - 05.02.2011, Side 16
16 5. febrúar 2011 LAUGARDAGUR
Í umræðunni um fyrirhugað-ar lækkanir á framlögum til
tónlistarskóla í Reykjavík að
undanförnu hefur gætt mikils
misskilnings um framlög Reykja-
víkurborgar til íþróttamála.
Margir hafa valið að etja saman
tónlistarnámi annars vegar og
íþróttum hins vegar. Þessi aðferð
er á kostnað barna sem njóta góðs
af framlögum Reykjavíkur til tón-
listarmenntunar og íþróttaiðkun-
ar. Það er miður að talsmenn tón-
listarinnar hafa valið þessa leið,
því hún stuðlar engan veginn að
því að auka skilning á gildi tón-
listarnáms.
Stór orð hafa fallið í tengslum
við framlög til íþróttafélaga í
Reykjavík. Staðreyndin er sú að
aukning sem kemur fram í fjár-
hagsáætlun til íþróttamála er
vegna nýs húsnæðis m.a. í Norð-
lingaholti og Egilshöll sem byggir
á eldri ákvörðunum og Reykjavík-
urborg þarf að standa skil á. Að
setja samasemmerki á milli þess
húsnæðis og stórfelldra hækkana
til íþróttamála er álíka rökleysa
og að segja að framlag til tónlistar
í Reykjavík hafi hækkað um 391
milljón í ár með tilkomu Hörpu.
Steinsteypumaraþon og útþensla
byggðar síðasta áratug er stað-
reynd sem við verðum því miður
að lifa með en vonandi læra af.
Bein framlög til íþróttafélaga á
fjárhagsáætlun á þessu ári eru um
680 milljónir sem skiptast á milli
43 félaga en alls eru félögin 70 í
heild. Framlagið er skilyrt til nota
í barna- og unglingastarfi; þjálf-
ara, íþróttafulltrúa, rekstarkostn-
að húsnæðis og annað sem tengt
er starfi 16 ára og yngri. Framlög
til íþróttafélaga lækka um 5-11%
á milli ára og hafa lækkað mikið
milli ára frá efnahagshruni. Mik-
ilvægt er líka að nefna það mikla
sjálfboðaliðastarf foreldra sem
er forsenda fyrir að íþróttastarf
gangi upp í mörgum félögum.
Í íþróttafélögum Reykjavík-
ur eru skráðir iðkendur 37.000,
þar af 20.000 undir 18 ára. Tón-
listarskólar í Reykjavík eru 18 og
þar stunda 2.900 nemendur tón-
listarnám, þar af rúmlega 2.400
undir 18 ára. Tónlistarskólarnir
í Reykjavík fá samkvæmt fjár-
hagsáætlun úthlutað 640 milljón-
um. Samanburður á beinum fram-
lögum í starfsemi er því fremur
erfiður þar sem þessir hópar eru
mjög misstórir og sinna starfi
sínu á mjög ólíkan hátt. Framlög
til bæði tónlistarskóla og íþrótta-
félaga koma af almannafé og það
þarf að gera þá kröfu að farið sé
vel með það og því varið á sem
bestan hátt.
Að því sögðu vil ég þó um leið
þakka ötulu tónlistarfólki og
unnendum fyrir að standa vörð
um sína hagsmuni og vekja upp
umræðu. Á tímum sem þessum
er svo mikilvægt að hagsmuna-
samtök séu öflug og minni okkur
í pólitíkinni á að vanda til verka
þannig að þegar betur árar þá sé
forgangsröðunin ekki gleymd.
Þetta eru ólíkir hlutir svo sann-
arlega, tónlist og íþróttir, en eiga
þó ýmislegt sameiginlegt, eins
og það að fólk gefur hug sinn og
hjarta þessu hvort tveggja. Sumir
leggja þetta fyrir sig sem atvinnu
á meðan aðrir sinna því í frístund-
um sínum.
Bæði eru hluti af okkar menn-
ingu og veita öðru fólki gleði og
innblástur.
Um samanburð
Tómstundastarf
Eva Einarsdóttir
borgarfulltrúi
Besta flokksins og
formaður íþrótta- og
tómstundaráðs
ÚTSALA!
40% afsláttur
Þriggja stafa eikarparket frá Parador.
Fullkomið 5G smelluker sem sparar þér tíma og fyrirhöfn.
Nú 3.741 kr. m2
Áður 6.235 kr. m2
Ármúla 32 · 108 Reykjavík · Sími 568 1888 · Fax 568 1866 · www.pog.is
Parket & gólf – Sérfræðingar í gólfefnum!
ÚTSALA!
35% afsláttur
Eikarplanki 8 mm slitsterkt harðparket
með 25 ára ábyrgð.
Nú 1.788 kr. m2
Áður 2.750 kr. m2
St
ef
án
ss
on
&
S
te
fá
ns
so
n
Upplýsingar gefur Sigfús í síma 696 7002.
SPRAUTUKLEFI BÍLALYFTA
Atvinnuhúsnæði til leigu að Smiðshöfða 12, Rvk. 296 fm að stærð.
Í húsnæðinu er sprautuklefi, bílalyfta og loftpressa.
www.xd.is
Laugardaginn 5. febrúar kl. 13.00 í Valhöll
Formaður Sjálfstæðisflokksins,
Bjarni Benediktsson, heldur
framsögu um Icesave-málið
og svarar fyrirspurnum.
Fundarstjóri:
Friðrik Sophusson
Allir velkomnir
Opinn fundur
um Icesave-málið
Sjálfstæðisflokkurinn
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
AF NETINU
Of feitir til að flýja og of hræddir til að berjast?
Núverandi ríkisstjórn er ekki nein venjuleg stjórn, heldur á
hún í hörðu stríði við Sjálfstæðisflokkinn og aðra stjórnar-
andstöðuflokka. Það sést best á því, að hún beitti sér eftir
valdatöku sína fyrir „hreinsunum“ gegn tveimur fyrrverandi
formönnum Sjálfstæðisflokksins. Annar þeirra var hrakinn
úr stöðu sinni í Seðlabankanum, þar sem hann hafði einn
manna varað við yfirvofandi bankahruni. Hinn var dreginn fyrir Landsdóm
vegna aðgerðaleysis í ráðherrastól, þótt allir viti, að hann er saklaus. [...]
Núverandi ríkisstjórn getur því ekki vænst þess, að Sjálfstæðisflokkurinn
auðveldi henni leikinn. Brýnasta skylda flokksins er að reyna að koma þess-
ari ríkisstjórn frá og endurreisa atvinnulífið. Brýnasta skylda flokksins er að
berjast gegn stjórninni með öllum leyfilegum ráðum, en ekki að vinna verkin
fyrir hana.
Sjálfstæðisflokkurinn verður að vera stærri en svo, að hann komist fyrir í
vasanum á Steingrími J. Sigfússyni.
Talað er um Stokkhólmsheilkennið, þegar fórnarlömb verða andlega háð
kvölurum sínum: „Ekki berja mig svona fast. Þú mátt auðvitað berja mig, en
ekki svona fast. Ég skal reyna að vera góður og þóknast þér.“
Sjálfstæðismenn mega aldrei verða of feitir til að flýja og of hræddir til að
berjast.
pressan.is/pressupennar/Lesa_Hannes
Hannes Hólmsteinn Gissurarson