Fréttablaðið - 05.02.2011, Blaðsíða 79
LAUGARDAGUR 5. febrúar 2011
Spænski leikarinn Javier Bardem
hefur átt í viðræðum um að leika
vonda karlinn í næstu James Bond
mynd. Bardem
hitti leikstjór-
ann Sam Mend-
es á dögunum
og heillaðist af
hlutverkinu.
„Ég er mikill
aðdáandi James
Bond mynd-
anna,“ sagði
hinn 41 árs
gamli Bardem. „Þegar ég var lít-
ill horfði ég á Sean Connery leika
James Bond. Hver hefði trúað því
að ég yrði í einni slíkri mynd?“ 23.
Bond-myndin er væntanleg í bíó 9.
nóvember á næsta ári. Þar verður
Daniel Craig á sínum stað í hlut-
verki 007.
Hefur áhuga
á illmenninu
JAVIER BARDEM
Leikstjórinn James Cameron var
langlaunahæstur í Hollywood á
síðasta ári með tæpa þrjátíu millj-
arða króna í tekjur. Ástæðan er
fyrst og fremst gríðarlegar vin-
sældir ævintýramyndarinnar
Avatar sem hann leikstýrði
og framleiddi.
Í öðru sæti á listan-
um varð leikarinn
Johnny Depp með
tæplega tólf millj-
arða tekjur. Leik-
stjórinn og fram-
leiðandinn Steven
Spielberg lenti í
þriðja sæti og leik-
stjórinn Christ-
opher Nolan,
sem s íð -
ast sendi
frá sér
spennumyndina Inception, í
því fjórða. Leikarinn Leonardo
DiCaprio vermdi síðan fimmta
sætið. Efsta konan á listanum er
Kristen Stewart úr Twilight-mynd-
unum í þrettánda sætinu með um
3,3 milljarða króna. Kollegi
hennar úr Twilight, Robert
Pattinson, var með 3,2
milljarða í fjórtánda
sætinu. Hinn átján
ára Taylor Lautner úr
Twilight slær bæði
Stewart og Pattin-
son við því hann þén-
aði tæpa fjóra milljarða
á síðasta ári og endaði í
níunda sætinu.
James Cameron
launahæstur
JAMES CAMERON Framleiðandi
og leikstjóri Avatar var
launahæstur í Holly-
wood í fyrra.
Fjórir Skagamenn spila
uppáhaldslög sín með Jimi
Hendrix á tónleikum á
Sódómu næsta fimmtu-
dagskvöld. Þetta eru fyrstu
stóru tónleikar drengjanna.
Hljómsveitin The Jimi Hendrix
Project spilar á Sódómu Reykja-
vík 10. febrúar. Sveitin er skip-
uð fjórum strákum á þrítugsaldri
frá Akranesi sem hafa verið að
spila saman í um eitt ár, aðallega í
heimabænum.
„Við erum að færa okkur til stór-
borgarinnar. Þetta verða okkar
fyrstu stóru tónleikar,“ segir gít-
arleikarinn Siggi Bach, sem hefur
lengi hlustað á Hendrix. „Hann er
rosalega mikill áhrifavaldur hjá
manni, eins og hjá flestum gítar-
leikurum.“ Spurður hvort það sé
ekki erfitt að feta í fótspor þessa
mikla snillings segir hann: „Þetta
er krefjandi djobb, ég lýg því ekki,
en ég tel mig nú geta eitthvað.
Maður situr líka við æfingar allan
liðlangan daginn þegar maður er
ekki að vinna.“
Auk Sigga eru í hljómsveitinni
þeir Axel Freyr trommari, Björn
Breiðfjörð bassaleikari og Bergur
Líndal, söngvari og ryþmagítar-
leikari. „Við erum að spila öll
helstu lögin af þessum þremur
plötum sem hann náði að gefa út,
kallinn,“ segir Siggi.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21
og er aðgangseyrir 1.000 krónur,
greiddar í seðlum. freyr@frettabladid.is
Feta í fótspor
Jimi Hendrix
THE JIMI HENDRIX PROJECT Hljómsveitin spilar öll bestu lög gítarsnillingsins Jimi
Hendrix á Sódómu 10. febrúar.
Málþing Náttúrulækningafélags Íslands - 8. febrúar 2011
Jafnvægi og vellíðan
Líf án streitu
Náttúrulækningafélag Íslands efnir
til málþings í Hvammi, Grand Hótel
þriðjudaginn 8. febrúar 2011 kl. 20.00
Frummælendur:
Ingibjörg H. Jónsdóttir, dósent í lífeðlisfræði
og yfirmaður Streiturannsóknarstofnunar Gautaborgar.
“Streituvandamál – orsakir – afleiðingar - besta lausnin”
Hróbjartur Darri Karlsson, hjartalæknir
“Streitan sem skemmir hjartað”
Sigrún Ása Þórðardóttir, sálfræðingur og verkefnisstjóri HNLFÍ
“Að meta eigin streitu og streituvalda”
Auk frummælenda sitja fyrir svörum:
Lárus Ólafsson, sölumaður “Tekið í taumana - reynslusaga”
Fundarstjóri:
Magna Fríður Birnir, hjúkrunarforstjóri HNLFÍ í Hveragerði
Allir velkomnir!
Aðgangseyrir 1.000 kr.
Frítt fyrir félagsmenn. Berum ábyrgð á eigin heilsu
· Hverjar eru orsakir streitu?
· Hverjar eru afleiðingar streitu
· Hvernig má varast streitu
· Hvaða úrræði eru í boði gegn streitu
Ingibjörg H. Jónsdóttir Hróbjartur Darri Karlsson
Sigrún Ása Þórðardóttir Lárus Ólafsson
Magna Fríður Birnir
5.-9. maí. Frá aðeins 109.000 kr. á fjögurra stjörnu hóteli í 4 nætur
Frá kr. 109.900
Hotel Zenit
Barcelona
Sértilboð til korthafa VISA!
Bættu lífið
Sölustaðir:
Rima apótek
N1 á Bíldshöfða
N1 á Hringbrautinni
N1 í Ártúnsbrekkunni
N1 á Lækjargötu
í Hafnarfirði
Dreifingaraðili:
Tvö Emm
Sími 772-3301