Fréttablaðið - 05.02.2011, Síða 70
42 5. febrúar 2011 LAUGARDAGUR
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. slitrótt tal, 6. íþróttafélag, 8. skref,
9. gilding, 11. holskrúfa, 12. enn leng-
ur, 14. gjaldmiðill, 16. kaupstað, 17.
mjög, 18. námstímabil, 20. tvíhljóði,
21. land í asíu.
LÓÐRÉTT
1. útmá, 3. frá, 4. mælieining, 5.
hlóðir, 7. álandsvindur, 10. hyggja,
13. stæla, 15. bor, 16. ófarnaður, 19.
nafnorð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. tafs, 6. fh, 8. fet, 9. mat,
11. ró, 12. áfram, 14. rúpía, 16. bæ,
17. all, 18. önn, 20. au, 21. laos.
LÓÐRÉTT: 1. afmá, 3. af, 4. fermíla, 5.
stó, 7. hafræna, 10. trú, 13. apa, 15.
alur, 16. böl, 19. no.
Hey strákar, kyrrir svona! Og svo
megið þið kyssast!
Grímur fékk
ekki langan
tíma til að
aðlagast þegar
hann hætti
að mynda
brúðkaup og
fór að mynda
íþróttir:
Nei, en lítill og
sætur rakki!
Hvað heitir
hann?
Satan!
Af hverju vinnur
fólk?
Væri ekki heimurinn
betri ef allir myndu
leggja peningana
í púkk og deila
auðnum?
Hér eru vasa-
peningarnir
þínir Palli.
Jú. Gleymdu því
aulinn þinn!
Það sem þú sérð eftir að hafa sagt um leið og þú missir það út úr þér
Sá sem er fyrstur
hingað fær að
borða afganginn
af ísnum!
Fyrirsögn þessa pistils er nýstárlegt orð í íslensku. Þetta er tilraun til að þýða
enska hugtakið „reproductive tourism“
á íslensku. Fyrirbærið hafði lítið verið
rætt hérlendis þangað til nýlegir atburð-
ir urðu til þess að setja það í brennidep-
il. Umræðan byggði þó einkum á tilfinn-
ingum sprottnum af ljósmynd af nýfæddu
barni og því var meginniðurstaða hennar
afar fyrirsjáanleg. Hver getur sagt nei við
nýfætt barn? Að mínu mati er aftur á móti
full ástæða til að velta hinni siðferðilegu
hlið fyrir sér án þess að setja málið í sam-
hengi tiltekinna einstaklinga.
ÆXLUNARTÚRISMA hefur verið líkt
við kynlífsferðamennsku – við litl-
ar vinsældir. Sú samlíking er þó ekki
svo langsótt. Í báðum tilfellum selja
fátækar konur afnot af líkama sínum
til lengri eða skemmri tíma til að full-
nægja löngunum betur stæðra
Vesturlandabúa. Munurinn
er annars vegar fólginn í
löngunum kaupendanna
– löngun í barn og löngun
í kynnautn – hins vegar í
siðferðilegu mati á þjón-
ustunni. Það er álitið ljótt
að sofa hjá fyrir pening en
fallegt að fórna sér til að
bæta og göfga líf annarra.
En hér er ekki um eigin-
lega fórn að ræða heldur launaða vinnu.
Þess vegna er víða gerður greinarmunur
á velgjörðarstaðgöngumæðrun og stað-
göngumæðrun gegn greiðslu. Hér er einn-
ig gengið út frá því að kynnautn fegri ekki
eða göfgi líf neins.
VIÐ ættum að horfast í augu við þá stað-
reynd að það heyrir ekki til mannrétt-
inda að eignast börn. Mannréttindi verður
að vera hægt að tryggja. Engin ríkis-
stjórn getur tryggt borgurunum barneign-
ir. Læknavísindin leitast aftur á móti við
að bæta líf fólks og því er eðlilegt að þau
seilist inn á þetta svið. En er rétt að flokka
aðgang að þessari heilbrigðisþjónustu
undir mannréttindi á sama tíma og aðgengi
alls þorra jarðarbúa að viðunandi heilsu-
gæslu er eins bágborið og raun ber vitni?
Mannréttindi eru nefnilega ekki teygjan-
legt hugtak. Þau taka ekki mið af kring-
umstæðum hverju sinni. Mannréttindi Ind-
verja og Íslendinga eru hin nákvæmlega
sömu. Alltaf.
MEÐ aðildinni að Barnasáttmála Samein-
uðu þjóðanna hafa Íslendingar skuldbundið
sig til að hafa hagsmuni barna í fyrirrúmi.
Það tel ég hafa verið gert í nýlegu dæmi.
En það fríar okkur ekki þeirri ábyrgð að
móta okkur heildstæða afstöðu til málsins.
Hana verður að byggja á vitrænni siðfræði,
ekki ljósmynd af nýfæddu barni.
Æxlunartúrismi
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Komdu í kaffi
Jura kaffivélar fyrir alla sem elska kaffi