Fréttablaðið - 05.02.2011, Síða 76
5. febrúar 2011 LAUGARDAGUR
ÆFINGABOLTI
EINNIG SELDUR SÉR
65 SM. 2.495,-
SIPPUBAND
EINNIG SELT SÉR
1.495,-
ÆFINGADÝNA
EINNIG SELD SÉR
LITIR: BLÁR OG BLEIKUR
173 X 61 X 0,4 SM. 1.695,-
KOMUM
FORM!OKKUR Í
NÝTT Í
RÚMFATALAG
ERNUM!
ÆFINGA
SETT:
BOLTI, D
ÝNA, TE
YGJA,
PUMPA
OG 2 X
BOLTAR
6 STK.
5.995,-
HANDL
ÓÐASE
TT
20 KG.
14 STK.
12.950,-
HANDL
ÓÐ
VERÐ F
RÁ:
1 STK.
1.495,-
ARMBE
YGJU-
STANDU
R
2 STK.
1.995,-
FJÖLNO
TA
ÆFINGA
TEYGJA
1.695,-
MAGAÞ
JÁLFI
5.695,-
HANDLÓÐ
2 KG 1.495,-
3 KG 1.995,-
4 KG 2.495,-
ÆFINGA
SETT:
SIPPUB
AND, Æ
FINGA-
TEYGJA
OG 2 X
HANDG
RIP
4 STK.
2.995,-
LÆRAB
ANI
1.295,-
Einar Kárason fær lofsam-
lega dóma í Weekendavisen
í Danmörku fyrir bók sína
Ofsa. Víkingar fornaldar
þjáðust víst af aðskilnaðar-
kvíða og ástleysi.
„Þetta er mjög skemmtilegt og
hann sér alls konar hluti sem mér
hafði ekki dottið í hug, eins og að
það hafi verið eitthvað freudískt
við það að skríða ofan í sýrukar
og vera bjargað af konu,“ segir
Einar Kárason rithöfundur. Hann
er áberandi í menningarkálfi
danska helgarblaðsins Weekenda-
visen sem kom út í gær. Inni í
kálfinum var nokkuð ítarlegt við-
tal við skáldið þar sem Einar fer
yfir farinn veg en á forsíðunni er
hins vegar lofsamlegur dómur um
bókina eftir Iben Tandgaard.
Einar segir að Danir hafi ekki
alltaf verið hrifnir af bókum hans,
sumir hafi gefið lítið fyrir Storm
og fundist hann vera að gera grín
að dönsku velferðarkerfi. Rithöf-
undurinn er hins vegar hrifinn af
dóminum hjá Tandgaard. „Það er
ekki oft sem dómar veita manni
innblástur en þessi gerir það.“
Skáldið hyggst heimsækja Dani í
apríl og lesa upp úr bókinni en hún
er einnig að koma út í Þýskalandi.
„Þetta er sjöunda bókin mín sem
kemur þar út, Þjóðverjar hafa allt-
af sýnt mér mikla tryggð.“
En aftur að dómnum. Tand-
gaard hrósar Einari fyrir nálg-
un hans á Sturlungaöld og hvern-
ig honum tekst að lýsa hugarheimi
fólks þess tíma. Tandgaard kemst
að þeirri niðurstöðu að sennilega
hafi margir hinna hugrökku kappa
þjáðst af aðskilnaðarkvíða og þá
hafi bara vantað örlitla ást. „Og
hér er kannski búið að afhjúpa
hina karlmannlegu íslensku þjóð-
arsál – Einar ætti kannski að
passa sig á blóðugum öxum þegar
hann spilar næst póker með vinum
sínum.“ freyrgigja@frettabladid.is
Danir hrifnir af
Ofsa Einars Kára
SKEMMTILEG SÝN Einar Kárason fær lofsamlega dóma fyrir Ofsa í Weekendavisen
í Danmörku. Danir hafa ekki alltaf verið hrifnir af Einari og skömmuðu sumir hann
fyrir Storm. Þeim fannst hann gera grín að dönsku velferðarkerfi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Rokkdúettinn The White Stripes
hefur flogið upp vinsældalista eftir
að hann tilkynnti að hann væri
hættur störfum. Samkvæmt vefsíð-
unni Amazon hefur salan á tónleika-
plötunni og heimildarmyndinni
Under Great White Northern Lights
aukist um 2.644 prósent. Platan er í
öðru sæti á lista vefsíðunnar Mov-
ers & Shakers sem tekur saman
hæstu sölutölurnar. Aðrar plötur
sveitarinnar sem komast á topp tíu
á sama lista eru White Blood Cells
og Elephant, sem hefur að geyma
hið vinsæla Seven Nation Army.
Plöturnar rokseljast
JACK WHITE Plötur The White Stripes
seljast eins og heitar lummur þessa
dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Léttar í bragði
Fitulítilnýjung!