Fréttablaðið - 05.02.2011, Síða 86
58 5. febrúar 2011 LAUGARDAGUR
PERSÓNAN
Liverpool-treyjur með númeri og
nafni Fernando Torres hafa und-
anfarin ár verið þær vinsælustu á
meðal fótboltaaðdáenda bæði hér
heima og erlendis. Snögg breyting
hefur orðið á því eftir að framherj-
inn gekk til liðs við Chelsea.
Til að bregðast við vistaskipt-
unum hafa fyrrverandi aðdáend-
ur Torres hérlendis látið fjarlægja
nafn hans af Liverpool-treyjum
sínum og sett í staðinn nafn nýja
framherjans Andy Carroll, sem
tók einmitt við númeri Torres.
„Margir hringja og vilja losa staf-
ina eða nafnið af og setja Carroll
yfir. Við getum ekki tekið stafi af,
það er annað fyrirtæki sem gerir
það, en við setjum nafnið yfir, það
er minnsta málið,“ segir Sigurður
Garðarsson, verslunarmaður í Jóa
útherja.
Hann segir að margir Púlar-
ar hafi að vonum verið gramir
yfir brotthvarfi Torres. „Þetta er
aðallega leiðinlegt fyrir þá sem
eiga treyjur með honum og voru
kannski nýbúnir að kaupa þær,“
segir hann og bætir við að margir
láti líka merkja treyjur með nafni
hins nýja framherjans í Liverpool,
Luis Suarez frá Úrúgvæ.
Aðspurður segir Sigurður að
verslunin eigi ekki Liverpool-treyj-
ur með nafni Torres á lager því
hún selji ekki fyrir fram merktar
treyjur. „En við eigum eitthvað af
römmuðum myndum og plakötum
með Torres og það er ekki alveg
það vinsælasta í dag.“
Torres er þó ekki dauður úr öllum
æðum í versluninni því aðdáend-
ur Chelsea hafa verið duglegir að
mæta í búðina til að merkja treyj-
urnar sínar með nafni hans. - fb
Nafn Torres plokkað í burtu
TORRES KVEÐUR Viðar Valsson, versl-
unarmaður í Jóa útherja og kollegi Sig-
urðar. Liverpool-aðdáendur eru gramir
vegna brotthvarfs Fernando Torres.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Árni Ólafur Ásgeirsson
Aldur: 38 ára.
Starf: Kvikmynda-
gerðarmaður.
Fjölskylda: Marta
Macuga og sonur
minn Iwo, þriggja
ára.
Búseta: 107
Reykjavík.
Stjörnumerki:
Hrútur.
Foreldrar: Hafdís
Árnadóttir Kram-
hússtýra og Ásgeir
Ingólfsson sem er
látinn.
Kvikmynd Árna Ólafs, Brim, er tilnefnd til
tólf Edduverðlauna.
Leikarinn Jóhannes Haukur
Jóhannesson undirbýr sig nú af
krafti fyrir hlutverk sitt sem
hrottinn Tóti úr bókinni Svartur
á leik en tökur á myndinni hefjast
1. mars. Myndin er byggð á sam-
nefndri skáldsögu Stefáns Mána
sem kom út fyrir sex árum en hitt
aðalhlutverkið verður í höndum
Þorvaldar Davíðs Kristjánssonar.
Hann mun leika Stebba sækó.
Jóhannes hefur stundað líkams-
rækt og lyftingar af miklum móð
síðastliðna þrjá mánuði, sporð rennt
prótínum og lyft lóðum á nóttinni í
líkamsræktarstöð World Class við
Kringluna. „Ég er búinn að vera
að vinna í þessu undir handleiðslu
þriggja manna. Fyrst hjá Hilmari
Arnarsyni hjá Fram við að koma
mér í form fyrir áramót og svo hjá
Konráð Gíslasyni kraftajötni eftir
áramót við lyftingar. Svo er Guð-
jón Þorsteinn Pálmarsson, leikari
og kraftlyftingaáhugamaður, með
mér líka, hann sér samt aðallega
um að ég mæti í ræktina og trygg-
ir að ég geri æfingarnar,“ segir
Jóhannes Haukur, sem hefur bætt
töluvert við sig í vöðvamassa.
Jóhannes segir þetta vera hrika-
lega skemmtilegt, ekki síst vegna
þess að árangurinn er festur á
filmu. „Ég hef aldrei prófað að
gera svona áður fyrir hlutverk
en maður hefur auðvitað prófað
þetta í lífinu sjálfu með misjöfnum
árangri.“ Jóhannes er orðinn ansi
hrikalegur, er með upphandleggs-
vöðva sem fagmennirnir kalla
„byssur“ upp á 42 sentimetra og
búinn að lækka fituprósentuna úr
24 prósentustigum í átján. Hann
tekur hundrað í bekk og hefur
farið í ræktina á hverjum degi.
Jóhannes segist sjálfur alltaf
hafa rokkað í þyngd og hann býst
við að allt fari fjandans til þegar
tökum á Svörtum á leik lýkur.
„Við sjáum samt til, ég hef alveg
áður reynt að taka mig á, þetta er
bölvað eilífðarverkefni.“ Jóhann-
es ætti þó ekki að vera í neinum
vandræðum með að finna keppi-
naut á tökustað því þegar hefur
verið tilkynnt að Egill „Gillz“ Ein-
arsson, einn þekktasti kraftajöt-
unn landsins, muni leika í mynd-
inni. Jóhannes segir það koma til
greina að skora á hann í einhvers
konar keppni. „Ég sá hann reynd-
ar um daginn og mér til mikillar
gleði er hann mun lágvaxnari en
ég. Ég þarf hins vegar aðeins að
vinna meira í breiddinni.“
freyrgigja@frettabladid.is
JÓHANNES HAUKUR JÓHANNESSON: FER Í RÆKTINA UM NÆTUR
Upphandleggurinn er 42
sentimetrar að ummáli
HRIKALEGUR Jóhannes Haukur hefur tekið vel á því í ræktinni undanfarna þrjá mánuði og er orðinn hrikalegur að sjá. Hann býst
þó ekki við að halda því til streitu þegar tökum á kvikmyndinni Svartur á leik lýkur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Ég er ekki sár og ekki reiður,
þetta er bara skrýtið. Það er svo
langt síðan ég byrjaði með þetta,“
segir séra Þórhallur Heimisson,
sóknarprestur í Hafnarfjarðar-
kirkju.
Þátturinn Hamingjan sanna,
eftir hugmynd Ásdísar Olsen og
Karls Ágústs Úlfssonar, hefur
göngu sína á Stöð 2 í mars. Frétt-
ir af þáttunum komu Þórhalli í
opna skjöldu þar sem hann hafði
komið hugmynd að svipuðum þætti
byggðum á bók sinni Hamingjuleit-
inni á framfæri til dagskrárstjóra
Stöðvar 2 á síðasta ári. „Þeir voru
mjög áhugasamir, en voru á leið-
inni í frí þannig að við ætluðum
að heyrast,“ segir Þórhallur. „Svo
er þessi þáttur allt í einu kominn
núna – ekki með mínu efni, heldur
einhverju allt öðru. Það er ekki á
nokkurn hátt verið að stela neinu
frá mér.“
Þórhallur segist hafa fengið hug-
myndina frá Svíþjóð, þar sem svip-
aðir þættir hafa verið á dagskrá.
„Mér fannst þetta sniðugt eftir
hrun vegna þess að það eru svo
margir sem koma á hamingju nám-
skeið til mín og margir sem eru
ekki hamingjusamir í dag,“ segir
hann og ítrekar þó að þeim á Stöð
2 sé frjálst að vinna með þeim
sem þeir vilja. „Ég var hissa á því
að þeir skyldu ekki segja mér að
þeir ætluðu að vinna með öðrum.
En ég vona að þátturinn gefi fólki
meiri bjartsýni. Þá er tilgangin-
um náð.“
Pálmi Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri dagskrársviðs 365,
segir aldrei hafa staðið til að gera
tvær hamingjuseríur, að minnsta
kosti ekki á sama tíma. „Við höfð-
um ekki fundað né átt samtöl við
séra Þórhall Heimisson um þátta-
hugmynd hans en móttekið einn
tölvupóst um áhuga hans á sams
konar þáttaröð,“ segir hann.
- afb
Sóknarprestur hissa á hamingjuþætti
G GULA Ð G
FAX
Opið 11–19 alla daga vikunnar, nema sunnudaga 12–17 / Sími 534 4451
Lau 5.2. Kl. 19:00
Mið 9.2. Kl. 19:00
Fös 18.2. Kl. 19:00
Lau 19.2. Kl. 19:00
Mið 2.3. Kl. 19:00
Mið 9.3. Kl. 19:00
Lau 12.3. Kl. 19:00
Fim 17.3. Kl. 19:00
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Gerpla (Stóra sviðið)
Ö
Sun 6.3. Kl. 13:30
Sun 6.3. Kl. 15:00
Sun 13.3. Kl. 13:30
Sun 13.3. Kl. 15:00
Sun 20.3. Kl. 13:30
Sun 20.3. Kl. 15:00
Sun 27.3. Kl. 13:30
Sun 27.3. Kl. 15:00
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Lér konungur (Stóra sviðið)
Sun 6.2. Kl. 14:00
Sun 6.2. Kl. 17:00
Sun 13.2. Kl. 14:00
Sun 13.2. Kl. 17:00
Sun 20.2. Kl. 14:00
Sun 20.2. Kl. 17:00
Sun 27.2. Kl. 14:00
Sun 27.2. Kl. 17:00
Sun 6.3. Kl. 14:00
Sun 6.3. Kl. 17:00
Sun 13.3. Kl. 14:00
Sun 13.3. Kl. 17:00
Sun 20.3. Kl. 14:00
Sun 20.3. Kl. 17:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Ö
Ö
Ö Ö
Ö
Ö
Fim 10.2. Kl. 20:00 Aukasýning
Fös 11.2. Kl. 20:00
Lau 12.2. Kl. 20:00
Fim 17.2. Kl. 20:00
Fös 25.2. Kl. 20:00 Ö
Brák (Kúlan)
Sun 6.2. Kl. 20:00
Fös 11.2. Kl. 20:00
Lau 12.2. Kl. 20:00
Sun 13.2. Kl. 20:00
Fim 17.2. Kl. 20:00
Sun 20.2. Kl. 20:00
Lau 26.2. Kl. 20:00
Sun 27.2. Kl. 20:00
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö U
U
Ö
Ö
Ö
U
Ö
Ö
Ö
U
Ö
U
HISSA Séra Þórhallur var með hugmynd
að þætti um hamingjuna, en Stöð 2
hefur sýningar á hamingjuþáttum í
mars.
Eins og kom fram í fjölmiðlum í
gær var kvikmyndin Brim tilnefnd
til tólf Edduverðlauna, The Good
Heart eftir Dag Kára fékk ellefu til-
nefningar og unglingamyndin Órói
hlaut tíu. Kvikmyndabransinn á
Íslandi hefur smám saman verið að
stækka en miðað við tilnefningar
til tækniverðlauna virðast Eddu-
verðlaunin vera að safnast á fárra
manna hendur. Þannig eru fimm
tilnefningar í flokknum klipping árs-
ins en þær Elísabet
Ronaldsdóttir og
Valdís Óskars-
dóttir fá tvær
hvor. Valdís
er reyndar
tilnefnd með
Evu Lind
Höskulds-
dóttur fyrir
Brim.
Í flokknum gervi ársins keppir
Ragna Fossberg líka við sjálfa
sig því hún er bæði tilnefnd fyrir
Áramótaskaupið og Spaugstof-
una. Hið sama má segja um Ástu
Hafþórsdóttur, sem er tilnefnd
fyrir bæði Brim og The Good Heart
í sama flokki. Ekki má gleyma
leikmyndahönnuðinum Lindu
Stefánsdóttur sem fær tvær til-
nefningar af þremur fyrir leikmynd
ársins og svo Helgu Rós V. Hannam
sem fær einnig tvær af þremur
í flokknum búningar ársins.
Svo er ekki hægt að sleppa
þessari upptalningu án þess að
minnast á Sverri Þór Sverris-
son. Hann fékk einnig tvær
tilnefningar af þremur í
flokknum barnanefni
ársins; fyrir þættina um
Algjöran Sveppa og
fyrir bíómyndina. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI