19. júní - 19.06.1990, Page 14
ekki sóttur nema þegar ég átti síðasta barn
ið - sú fæðing gekk seint. Maður var orð-
inn þreyttur."
En þú hefur verið hraust þegar þú
gekkst með börnin.
„Nei, ég get varla sagt það. Ógleðin angr-
aði mig fram yfir miðjan meðgöngutímann
og svo hef ég verið slæm af ofnæmi frá
æsku - en það þótti nú heldur undarlegt
og helst talið til móðursýki. Þá var ekki
vitað mikið um þennan sjúkdóm og lítill
skilningur á hvernig hann lýsir sér. Síðan
vill það mér til að ég næ einhvers staðar I
blað þar sem honum er lýst - mikið fannst
mér gott aó lesa þaó."
Þú áttir börnin á stríðsárunum. Var
ekki erfitt að fá föt og annað á hóp-
inn?
,,Jú blessuð vertu, það var á tímabili allt
skammtað, maður varð að nota alls konar
tuskur utan á börnin. Þá var allt notað sem
hægt var. Þá þótti nú gott að fá lérefts-
poka. Þeir voru notaðir I allt mögulegt;
rúmfatnaó, þarnaföt, svuntur,m.a.s. saum-
aði ég mér kjól úr pokum og litaði hann
grænan og þegar hann varð upplitaður lit-
aði ég hann aftur, brúnan. Litirnir voru
ekki mjög góðir."
Hvað gastu notað fyrir bleyjur?
,,Það get ég sagt þér! Gömul sængurver
og lök. Svo voru notaðir kjötpokar, þessir
sem skrokkarnir eru látnir í - þá var helst
að fá I sláturhúsunum en ekki var það nú
alltaf. Eitt sinn bað ég mann sem fór I húsið
að ná í nokkra fyrir mig, en hann fékk enga
þegar hann sagði til hvers ætti að nota þá!
Svo var nú það. Nú geta mæðurnar sem
betur fer keypt á börnin sín það sem þær
vilja og eiga nóg - flestar a.m.k. Ég vildi
óska það væru allar. Það er margt sem
hefur breyst til batnaðar sem betur fer -
meira til af flestu þótt sumt sé farið út í
öfgar."
Og hvernig gekk búskapurinn með
börnin ung og smá?
„Þau voru ung, börnin mín, þegar þau
fóru að hjálpa til og dugleg voru þau. Allt
bjargaðist þetta einhvern veginn. Elsti son-
ur minn var rafvirki og hann lagði rafleiósl-
ur I bæinn - þá fengum við okkur Ijósamót-
í söludeildum Pósts og síma býðst þér gott úrval af
vönduðum símtœkjum auk alhliða símaþjónustu
Söludeildir Pósts og síma um land allt bjóða eingöngu viðurkenndan
úrvalsbúnað og örugga viðgerðar- og viðhaldsþjónustu.
Hjá okkur færðu gott úrval af allskyns símtækjum og aukabúnaði á góðum
greiðslukjörum.
PÓSTUR OG SÍMI
Póst- og símstöðvar um land allt og söludeildir
Kringlunni, Kirkjustraeti og Ármúla 27.
14