19. júní - 19.06.1990, Síða 48
Auður Guðjónsdóttir,
hjúkrunarfræðingur (og
sjómannskona):
Mitt ráð til dætra minna
og annarra kvenna er ein-
faldlega það að eyða ekki
um efni fram og vera alltaf
viss um að eiga fyrir skuld-
unum. Þegar farið er út í
miklar fjárfestingar á borð
við húsbyggingu eða íbúð-
arkaup verður maður að
gera sér grein fyrir vaxta-
kostnaðinum og fá aðstoð
við útreikningana ef þeir eru
of flóknir. Þessa reglu nota
ég í peningamálum heimil-
isins, en ég sé alfarið um
AURARÁÐ
HVAÐA GULLNU REGLU VILTU GEFA
ÖÐRUM KONUM í PENINGAMÁLUM?
10KONURSVARA
þau þar sem ég er gift sjó-
manni.
Að mínu áliti ættu sjó-
mannskonur að fá sérstakan
skattafslátt þar sem þær
þurfa að annast allt sem
snýr að heimilinu, hvort sem
það er uppeldi barnanna,
viðgerðir á húsinu og bíln-
um eða peningamál. Sjó-
mannskonur geta því í raun-
inni ekki unnið fulla vinnu
utan heimilisins þótt margar
verði að gera það. Sjó-
mannskonur og einstæðar
mæður búa við mjög svip-
aðar aðstæður og sæta
sömu vinnuþrælkuninni -
við erum eins og einstæðar
mæður með góðar trygg-
ingar.
Reyndar er ég þeirrar
skoðunar að það eigi að
skattleggja konur almennt
öðruvísi en karla því þær
vinna mikilvæg störf sem
liggja utan hagkerfisins og
eru þar með ósýnileg og
einskis metin. Kvennabar-
áttan hefur skilað okkur því
að nú getum við menntað
okkur og unnið við það sem
hugur okkar stendur til en
hún hefur ekki náð lengra
en svo að heimilisstörfin eru
enn í okkar höndum. Þá
vinnu finnst mér að mætti
launa okkur með 50% skatt-
afslætti enda gætum við þá
skorið aðeins niður vinnu
utan heimilisins og hugsað
betur um börnin okkar.
Kristín Sigurðardóttir,
viðskiptafræðingur:
Betra er að þiggja vexti en
greiða.
Sumar munu ætla þegar
þær heyra þessa gullnu
reglu í fjármálum, að þær
gætu ekki nýtt sér hana. En
það er ekki rétt.
Fólk segir stundum að það
eigi rétt fyrir skuldum og
jafnvel tæplega það. Það
geti varla veitt sér helstu
nauðsynjar hvað þá safnað
í sjóði. En þeir sem geta
greitt skuldir og afborganir
með vöxtum ættu að sýna
hyggindi. Þeir eru að spara,
en eftir á og á kostnaðar-
saman hátt.
Því er ástæða til að hugsa
sinn gang, sýna fyrirhyggju
og láta aðstæður vinna með
sér fremur en móti.
Afborgunarkaup eru mjög
dýr.
Betra er að þiggja vexti en
greiða.
Fjölmargir kostir eru í boði
til ávöxtunar. Dagblöðin
birta upplýsingar og eins
veita bankar og verðbréfa-
fyrirtæki greiðlega upplýs-
ingar um ávöxtunarkjörsín.
Ef fólk getur losað sig
undan því helsi sem skulda
klafi er þá er mikið unnið.
Góð yfirsýn yfir fjármál sín
er öllum nauðsyn og þeim
mínútum sem fara reglulega
í þá vinnu er vel varið. Slík
yfirsýn er líka forsenda þess
að ná tökum á fjármálum
sínum og hefja reglulegan
sparnað. Ekki má ætla sér
meira í fjármálum en það
sem vel má ráða við og
ætla þarf borð fyrir báru.
Safna þarf fyrir greiðslum
og skuldbindingum sem oft
er óhjákvæmilegt að taka á
sig og stefna að því að safna
eigin öryggissjóði. Þvífylgir
frelsi.
Það er einnig þægileg til-
finning að vera ekki bundin
fjárhagslega í næstu fram-
tíð. Slíkt gefur einnig meiri
möguleika í framtíðinni og
þegar gerð eru stærri inn-
kaup er hægt að nýta sér
staðgreiðsluafslátt.
Skoða þarf vel hug sinn
þegar keypt er inn hvort
ekki sé vel ráðstafað. Menn
og jafnvel skynlausar
skepnur hafa alla tíð séó sér
hag í því að safna forða til
vetrar þegar harðnar á daln-
um. Slíkterenn ífullu gildi.
Það er betra að þiggja
vexti en greiða.
Ingibjörg R. Guðmunds-
dóttir, formaður Lands-
sambands ísl. verslunar-
manna:
Fyrst og fremst ráðlegg ég
konum að láta engan,
hvorki maka né aðra, taka
48