19. júní - 19.06.1990, Blaðsíða 73
jafnan rétt kvenna og karla segir
að greiða skuli sömu laun fyrir
sömu vinnu. í ráðinu fór fram mik-
il umræða um hvað væri sambæri-
leg vinna. Enginn dómur hafði á
þeim tíma fallið í dómstólum
landsins sem hjálpaði við úrlausn
þessa erindis og félagsmálaráðu-
neytið hafði ekki sett reglugerð til
leiðbeiningar við framkvæmd lag-
anna. Að lokum myndaðist meiri-
hluti í ráðinu um að skrifa félags-
málaráðuneyti og óska eftir að
sett væri reglugerð sem leiðbeindi
til að hægt væri að taka á málum
eins og þessum. Nokkrar konur
kærðu stöðuveitingar. í þó nokkr-
um tilvikum úrskurðaði Jafnréttis-
ráð að gengið hefði verið fram hjá
konum vegna kynferðis. Er
ánægjulegt til þess að vita að fleiri
og fleiri konur sækja í eftirsóknar-
verðar stöður og hafa kjark til að
kæra ef þær telja á sér brotið.
Verði frumvarp til nýrra jafnréttis-
laga að lögum verður töluverð
breyting á starfsemi ráðsins. Þá
verður sérstakt Jafnréttisráð skip-
að fulltrúum stjórnmálaflokka og
kvennasamtaka sem vinnur fyrst
og fremst að stefnumótun og her-
ferðum í jafnréttismálum. Jafn-
framt verður mynduð sérstök fimm
manna kærunefnd jafnréttismála
og á KRFÍ þar fulltrúa. Nýtt Jafn-
réttisráð var skipað frá 1. desem-
ber sl. Þær Arndís og Esther gáfu
ekki kost á sér en í stað þeirra
komu Guðrún Árnadóttir og
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Framkvæmdanefnd um
launamál kvenna
KRFÍ á fulltrúa í Framkvæmda-
nefnd um launamál kvenna. i bréfi
dags. 2. mars 1 989 var óskað eftir
tilnefningu í nefndina á ný. Helga
Sigurjónsdóttir var þá fulltrúi í
nefndinni og Ásthildur Ketilsdóttir
varamaður hennar. Þær breytingar
urðu að Ásthildur varð aðalmaður
og Guðrýn Eyjólfsdóttir varamað-
ur hennar.
Fundir I Framkvæmdanefnd um
launamál kvenna eru að öllu jöfnu
einu sinni í mánuði og oftar ef
með þarf eða eitthvað stendur til.
Fundarstjóri, þetta árið er Guð-
rún Hansdóttir.
aII hf Heiðvangi 4, Hellu.
cll III. Simi 98-75870
18 eða eftir samkomulagi
Lokað þriðjudaga.
Hofum ávallt
fyrirliggjandi:
Gosbrunna, úti og inni,
styttur, dælur og Ijós,
garðdverga, fuglao.fl.
ttigarðskreytinga. v