Fréttablaðið - 04.12.2010, Page 124

Fréttablaðið - 04.12.2010, Page 124
96 4. desember 2010 LAUGARDAGUR SEGJA SKILIÐ VIÐ GLEE Krakkarnir sem slegið hafa gegn í Glee verða að finna sér annað að gera árið 2012. Söngvarinn Justin Bieber sannaði fyrir heiminum að hann er meira en bara sæt táningsstjarna, þegar hann mætti í spænskan spjall- þátt á dögunum. Bieber hafði í för með sér töfratening Rubiks og sýndi æstum áhorfendum hvern- ig hann leysti úr þrautinni, en það tók hann ekki nema eina og hálfa mínútu. Þegar Bieber var búinn, stóð hann upp og afhenti trylltum aðdáendum í salnum kubbinn. Poppstjarn- an hefur víst verið að þjálfa hæfileik- ann í ein- hvern tíma og ljóst að það hefur skilað árangri, allavega í þetta skipti. Icelandair-spil Þorbjörns Ingasonar vöktu mikla athygli í fyrra þegar Fin- ancial Times og tímaritið Monocle settu þau á lista yfir það besta sem hægt væri að taka úr flugvélum. Þorbjörn hefur nú hannað forsíðu á síðarnefnda blað- ið. Hönnuðurinn Þorbjörn Ingason hannar forsíðuna á desember/jan- úar-útgáfu tímaritsins Monocle sem er ritstýrt af hinum virta Tyler Brúlé en hann situr einnig í ritstjórastóli Wallpaper, áhrifa- mikils blaðs á sviði útlits og hönn- unar. Efni blaðsins eru spár þess um hvað muni gerast árið 2011 og í fljótu bragði virðist forsíðumynd- in fremur einföld. Öðru nær. „Mitt hlutverk var að finna „element“ eða tákn fyrir hvern efnisþátt í blaðinu. Ég hannaði þau í tölvu, prentaði út og klippti niður í pappírsmódel,“ útskýrir Þorbjörn. Pappírsmódelunum var síðan stillt upp þannig að mynd- in væri í réttum hlutföllum. Þor- björn fékk Torfa Agnarsson ljós- myndara til að taka myndina sem síðan var notuð á forsíðuna. Hönnuðurinn segir Monocle-menn hafa verið sátta, þeir hafi alla- vega notað myndina, hann sent reikning sem síðan var borgaður. „Þetta er ekki mikill peningur, ég er allavega ekki að fara að græja yfirdráttinn eða borga niður hús- næðislánið.“ Verkefnið kom upp í október á þessu ári og raunar í beinu fram- haldi af umfjöllun blaðsins um spil- in góðu þótt Þorbjörn hafi vissu- lega unnið á stofunni sem gefur blaðið út fyrir margt löngu. „Og ég hef verið í sambandi við þá síðan,“ útskýrir Þorbjörn sem er byrjaður með eigin stofu og er kominn með umboðsmann í New York. „Nú er maður orðinn sjálfstæður verktaki og þetta verkefni var því ágætlega tímasett enda hugsaði ég það sem ágætis kynningu fyrir mig og mín verk,“ segir Þorbjörn en áðurnefnt tímarit er nú fáanlegt í öllum betri bókaverslunum landsins. freyrgigja@frettabladid.is MIKIL VINNA Forsíðan á nýjasta Monocle var ekki hrist fram úr erminni heldur liggur að baki mikil smáatriðavinna þar sem pappírsmódel koma töluvert við sögu. Þegar pappírsmódel- unum hafði verið stillt upp í réttum hlutföllum tók Torfi Agnarsson mynd og hún var síðan notuð á forsíðunni. SPILIN KVEIKJAN Iceland Air-spilin sem Þorbjörn hannaði vöktu töluverða athygli á hönnuðinum sem er nú kominn með umboðsmann í New York. HANNAÐI FORSÍÐU MONOCLE Kvikmyndin The Tourist, með Angelinu Jolie og Johnny Depp í aðalhlutverkum, verður frumsýnd innan skamms og hafa leikararnir verið duglegir við að kynna mynd- ina með því að veita viðtöl. Í viðtali við vefritið Pop Sugar segist Jolie hafa átt í erfiðleikum með að túlka kvenleika persónu sinnar. „Búningahönnuður kvikmynd- arinnar vildi að persóna mín væri kynþokkafull og fáguð en einnig skemmtileg og lífsglöð. Það tók mig smá stund að venjast hælun- um og hönskunum sem ég þurfti að vera í, ég held það viti allir nú orðið að ég er ekkert sérstaklega kvenleg alltaf. Þetta voru því mikil viðbrigði fyrir mig, sérstaklega eftir að hafa verið nýbúin að leika í kvikmyndinni Salt, þar sem ég var allt annað en kvenleg,“ sagði leikkonan. Hún sótti innblásturinn fyrir persónuna á ólíklegasta stað, til eins árs gamallar dóttur sinn- ar, Vivienne. „Yngsta dóttir mín, Vivienne, er mjög stelpuleg í eðli sínu og ég ákvað að leika fullorðna útgáfu af henni.“ Háu hælarnir þvæld- ust fyrir Angelinu EKKI KVENLEG Leikkonan Angelina Jolie segist ekki vera sérlega kvenleg kona að eðlisfari. NORDICPHOTOS/GETTY Ryan Murphy, höfundur hinna vin- sælu þátta um krakkana í Glee, hefur tilkynnt að meirihluti leikaranna muni líklegast hætta árið 2012. Ástæðan ku vera sú að persónurnar í þáttunum verða þá útskrifaðar úr menntaskóla og því þurfi aðrir leikarar að taka við. „Við munum mynda nýjan hóp af leikurum á hverju ári. Það er ekk- ert sorglegra en nemandi með skalla,“ segir Ryan. Aðalleikkona þáttanna, Lea Michele, vill alls ekki hætta og von- ast til að fá að halda áfram á einhvern hátt. „Ég fæ kannski að koma aftur sem kennari í Glee,“ segir Lea. Glee-leikarar hætta Bieber býr yfir ýmsum hæfileikum EKKERT MÁL Justin Bieber leysti töfra tening Rubiks á einni og hálfri mínútu í spænskum spjallþætti á dögunum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.