Fréttablaðið - 16.12.2010, Page 4
4 16. desember 2010 FIMMTUDAGUR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
15°
2°
-3°
3°
-1°
-3°
2°
2°
23°
5°
10°
1°
20°
-2°
4°
11°
2°Á MORGUN
Strekkingur eða hvass-
viðri víða um land.
LAUGARDAGUR
Strekkingur eða hvass-
viðri víða um land.
2
-2
0
-2
0
-3 -4
-2
-2
-3
-1
-3
-3 -4
-3
-6
-2
-6
-2
-11
-35
13
8
7
8
10
16
12 23
15
4
5
VETRARVEÐUR
Vetur konungur
ræður ríkjum á
landinu næstu
daga enda kólnaði
verulega liðna nótt.
Það verður talsvert
vindasamt næstu
daga og þá aðal-
lega með strönd-
um. Norðanlands
má búast við snjó-
komu á morgun en
sunnan til verður
nokkuð bjart.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
SJÁVARÚTVEGUR Veiðar Íslendinga á
þorski í íslenskri fiskveiðilögsögu
hafa hlotið vottun sem byggist á
ströngustu kröfum sem settar eru á
alþjóðavettvangi. Vottunin staðfest-
ir ábyrga fiskveiðistjórnun og góða
umgengni um auðlindir sjávar.
Fiskifélag Íslands, sem í eru
helstu samtök hagsmunaaðila í
íslenskum sjávarútvegi, hafði for-
göngu um að byggja upp vottunar-
verkefnið á Íslandi, en það byggir
á alþjóðlegum staðli; leiðbeinandi
reglum matvælastofnunar Sam-
einuðu þjóðanna (FAO) um vottun
fiskveiða og siðareglum FAO um
ábyrgð í fiskimálum. Írska fyrir-
tækið Global Trust Certification
(GTC) var fengið til að gera úttekt
á stefnu og framkvæmd í þorsk-
veiðum Íslendinga og hefur gefið
út vottorð sem staðfestir að þorsk-
veiðarnar samræmist alþjóðlegum
kröfum.
Peter Marshall, framkvæmda-
stjóri GTC, sagði við afhendingu
á vottunarskírteininu í Sjóminja-
safninu Víkinni í gær að vottunin
sýndi að þorskveiðum Íslendinga
væri vel stjórnað og af ábyrgð.
„Ísland hefur hér rutt veginn í
vottunarmálum sem fleiri þjóð-
ir og svæði eru nú í auknum mæli
að fara, meðal annars Alaska og
Kanada.“
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, segir áfang-
ann mikilvægan fyrir Ísland. „Við
sjáum fram á að íslenskar sjávar-
afurðir eigi enn greiðari leið inn á
mikilvæga markaði og að útflutn-
ingstekjur af sjávarafurðum verði
áfram mikilvæg burðarstoð í okkar
efnahagslífi.“
Vottunin er mikilvæg fyrir
íslenskan sjávarútveg, sem fær
nú staðfest að greinin mæti kröf-
um markaðarins um sjálfbæra nýt-
ingu endurnýjanlegra auðlinda.
Markmiðið með verkefninu „Ice-
land Responsible Fisheries“ er að
efla bæði innra starf í greininni
og kynningu erlendis á íslenskum
sjávarafurðum. Gerður hefur verið
samningur við Íslandsstofu um
kynningu og markaðssetningu.
Íslenskur sjávarútvegur skilaði
þjóðarbúinu 209 milljörðum í gjald-
eyristekjur árið 2009. Útflutning-
ur á þorskafurðum er 36 prósent af
heildarverðmæti útfluttra sjávaraf-
urða. svavar@frettabladid.is
Ábyrgar þorskveiðar
við Ísland vottaðar
Þorskveiðar við Ísland standast allar ströngustu kröfur alþjóðasamfélagsins.
Vottun írsks vottunarfyrirtækis var kynnt í gær. Slík viðurkenning er nauðsyn-
leg ef halda á góðri stöðu á alþjóðlegum mörkuðum með fiskafurðir.
Í LANDI Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi hafa lengi stefnt að því að taka upp íslenskt
merki sem vottar veiðar og stjórnun þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/JSE
Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi hafa um langt skeið
unnið gegn því að umhverfismerkið Marine
Stewardship Council (MSC) yrði tekið upp
hérlendis. Stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins,
Icelandic Group, hefur ákveðið að taka upp MSC.
IÐNAÐUR Norska ríkisstjórnin
hefur ákveðið að hefja undirbún-
ing að opnun hafsvæðisins á Jan
Mayen-hrygg fyrir olíuleit, að því
er fram kemur í frétt Orkustofn-
unar. „Liðin eru 16 ár frá því að
Norðmenn hófu síðast að opna
nýtt svæði fyrir olíuleit, og eru
þetta því nokkur tíðindi almennt
á sviði olíuleitar við Noreg,“ segir
í umfjölluninni. „Að auki sætir
þetta tíðindum fyrir Íslendinga,
því um er að ræða um 100.000 fer-
kílómetra svæði sem liggur til suð-
urs að Drekasvæðinu í íslenskri
lögsögu.“
Um þriðjungur svæðisins er
sagður innan samningssvæðis
Íslendinga og Norðmanna um
landgrunnið á milli Íslands og Jan
Mayen. „Á því svæði á Ísland rétt
á 25 prósenta þátttöku í rannsókn-
um og vinnslu á olíu og gasi.“ - óká
Ísland á rétt til hlutdeildar:
Opna olíuleitar-
svæði á Jan
Mayen-hrygg
BANDARÍKIN Bandaríska tímaritið
Time hefur valið Mark Zucker-
berg, stofnanda
samskiptavefs-
ins Facebook,
mann ársins
fyrir að hafa
haft mikil áhrif
á líf fólks víða
um heim.
Zuckerberg
er 26 ára gam-
all. Hann er því
yngstur allra
þeirra sem
tímaritið hefur
valið mann árs-
ins, að undanskildum flugkappan-
um Charles Lindberg, sem varð
fyrstur manna til að hljóta þessa
viðurkenningu. Það var árið 1927,
þegar Lindbergh var 25 ára.
Elísabet Bretadrottning var
einnig 26 ára þegar hún varð fyrir
valinu, en Zuckerberg er hálfum
mánuðum yngri en hún var þá.
Hún er reyndar nýbyrjuð að nota
Facebook. - gb
Zuckerberg maður ársins:
Breytti lífi fólks
með Facebook
MARK ZUCKER-
BERG Notendur
Facebook eru nú
meira en hálfur
milljarður manna.
DANMÖRK Bjórdrykkja og reyking-
ar hafa dregist saman í Danmörku
á undanförnum árum, ef marka
má nýlega könnun.
Á venjulegu heimili var 3.117
dönskum krónum varið í sígar-
ettur árið 2005. Upphæðin hafði
lækkað niður í 2.561 krónu árið
2008, en sígarettur hækkuðu einn-
ig í verði um rúmlega fjögur pró-
sent á þessu tímabili.
Eyðsla í bjór lækkaði úr 1.287
krónum í 1.081 krónu á sama tíma-
bili. Hins vegar jókst víndrykkja á
tímabilinu úr 2.305 krónum í 2.548
krónur. Samkvæmt könnuninni
eyddu Sjálendingar mestu í bjór
og sígarettur, en Kaupmannahafn-
arbúar mestu í vín. - þeb
Danir hafa dregið saman:
Minna fer í bjór
og sígarettur
STJÓRNMÁL Fæstir stjórnmálaflokk-
anna hafa skilað Ríkisendur skoðun
ársreikningum vegna ársins 2009
en skilafrestur þeirra var til 1. okt-
óber í ár. Í ársreikningum kemur
fram hvaða fyrirtæki hafa styrkt
flokkana, hversu miklum fjármun-
um þeir hafa úr að spila og svo
framvegis.
Lárus Ögmundsson hjá Ríkis-
endur skoðun segir að flokkarnir
eigi yfirleitt erfitt með að skila á
réttum tíma.
Þau stjórnmálasamtök sem höfðu
skilað í gær voru Borgarahreyfingin,
Hreyfingin, þinghópur Hreyfing-
arinnar, VG og Samtök fullveldis-
sinna. Lárus sagðist þó vita til þess
að skil væru „alveg að bresta á“ hjá
hinum flokkunum.
Einnig er stutt í að birtar verði
upplýsingar um kostnað við próf-
kjör frambjóðenda vegna sveitar-
stjórnarkosninga vorsins, en Lárus
segir þær verða annars eðlis en
hingað til.
„Það er greinilega orðin við-
horfsbreyting, sem manni finnst
nærtækt að ætla að endurspeglist í
allri þessari umræðu um styrkveit-
ingar til stjórnmálalífsins. Núna er
þetta nánast allt yfirlýsingar um að
kostnaður hafi verið undir 300.000
krónum hjá hverjum frambjóð-
anda,“ segir hann. - kóþ
Dræm skil ársreikninga til Ríkisendurskoðunar en allt annað viðhorf til prófkjara:
Fáir flokkar hafa skilað ársreikningi
ALÞINGI Stóru flokkarnir eru flestir of
seinir að skila upplýsingum um fjármál
sín fyrir árið 2009.
SVÍÞJÓÐ Fimmtugur maður frá
Egyptalandi hefur verið dæmd-
ur í fangelsi í Stokkhólmi í Sví-
þjóð fyrir ólöglegan umskurð á
drengjum.
Maðurinn var dæmdur í
tveggja mánaða fangelsi og til
greiðslu sektar fyrir níu ólög-
lega umskurði. Hann var einn-
ig dæmdur fyrir líkamsárás á
einn dreng, sem hann umskar án
nægilegrar deyfingar. Þá skaðaði
hann tvo drengi varanlega með
umskurðum.
Samkvæmt sænskum lögum
þarf sérstakt leyfi til að fram-
kvæma umskurð. - þeb
Egypskur maður í Svíþjóð:
Umskar dreng
án deyfingar
BANDARÍKIN, AP Bréfberi í bænum
Whitefish Bay, sem er í Wiscons-
in í Bandaríkjunum, sagðist hafa
talið sig vera ógurlega fyndinn
þegar hann mætti allsnakinn en
skælbrosandi með póstinn á skrif-
stofu til konu þar í bæ.
Þegar lögreglan handtók hann
nokkrum dögum síðar sagðist
hann þó kominn á þá skoðun að
líklega hafi þetta verið frekar
slæm hugmynd og heimskuleg.
Hann sagðist hafa komið nak-
inn með póstinn til þess eins að
koma konunni til að hlæja. - gb
Bar út póstinn allsnakinn:
Vonaðist til að
kalla fram bros
GENGIÐ 15.12.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
208,6391
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
115,89 116,45
181,97 182,85
154,04 154,90
20,67 20,79
19,542 19,658
16,98 17,08
1,3782 1,3862
178,13 179,19
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
-10kr.
VIÐ FYRSTU NOTKUN ÓB-LYKILSINS
Sæktu um ÓB-lykilinn á www.ob.is eða í síma 515 1141